Frjáls verslun - 01.01.2012, Blaðsíða 19
FRJÁLS VERSLUN 1TBL. 2012 19
Í stuttu máli
lán heimila þegar
aFskriFuð um 200
milljarða
Almenningur er með á nótunum um það hvar verðmætin verða til og hvað sé undirstaða lífskjara á Íslandi. Fram
kom í könnun sem Viðskiptaráð lét Capacent Gallup gera
fyrir sig að um 94% landsmanna telja íslensk fyrirtæki skipta
öllu eða miklu máli þegar kemur að því að skapa góð lífskjör
á Íslandi. Um þessa könn un var fjallað á Viðskiptaþingi
Við skiptaráðs Íslands undir yfir skriftinni: Hvers virði er
atvinnu líf?“
atVinnulÍF undir-
staða lÍFskjara
KÖNNUN VIÐSKIpTARÁÐS:
Lán heimila höfðu í lok árs 2011 verið færð niður um rúma 196 milljarða króna
frá stofnun nýju bankanna,
samkvæmt tilkynningu frá
Samtökum fjármálafyrirtækja
á dögunum.
Niðurfærsla samkvæmt
110% leiðinni nam 44 millj örð
um króna frá ársbyrj un 2009.
Heildarniðurfærsla fast
eigna lána vegna endurút
reikn ings gengistryggðra
lána nam um áramót 108
millj örðum króna.
Lán vegna bifreiðaviðskipta
hafa verið færð niður um 39
milljarða króna við endur út
reikning.
Önnur úrræði bankanna við
að afskrifa lán heimila nema
um 5 milljörðum frá stofnun
þeirra.
Um áramótin voru tvö þús
und heimili með lán upp á
33 milljarða króna í fryst
ingu. Það eru um 17 millj ónir
króna á heimili.
Spurningin er hversu mikið
af þessum 33 milljörðum
bankarnir verða að afskrifa.
„Fjármálafyrirtækin hafa þegar
afskrifað 196 milljarða af lánum
heimila. Mest er vegna ólöglegra
gengisbundinna lána.“
hagar hagnast
um 1,9 milljarða
Hagar högnuðust um um 1,9 milljarða á níu mánaða tímabili í fyrra,
frá 1. mars til 30. nóvember.
Veltan var á sama tíma um
50 milljarðar króna. Þetta er
umtalsvert meiri hagnaður en
á sama tímabili árið á undan
þegar hagnaðurinn nam 787
milljónum króna.
Hagnaður fyrir afskriftir, fjár
magnsliði og skatta; EBITDA,
nam tæpum 3,1 milljarði króna
á tímabilinu í fyrra. Eigið fé í
lok nóvember var 5,7 millj
arðar króna og eiginfjárhlut
fall 23%.
Finnur Árnason, forstjóri Haga.
Íslendingar misstu
ekki aF dauðaFæri
þORSTEINN MÁR Á VIÐSKIpTAþINGI:
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, gagnrýndi ummæli
Magn úsar Orra Schram, þing
manns Samfylkingar, sem
sagði Íslendinga hafa misst
af dauðafæri með því að fara
ekki sömu leið og Færeyingar
við makrílveiðar. Þorsteinn
sagði að ríkissjóður Íslands
hefði fengið í sinn hlut um 20
krónum meira á hvert kíló af
makríl, borið saman við þann
færeyska, eða um þremur
millj örðum króna meira sé
mið að við 155 þúsund tonn.
Ástæðan fyrir þessu hafi
einkum verið sú að útleigði
færeyski makrílkvótinn var
keyptur af stóru erlendu
skipi og fyrir vikið hafi eng in
verðmæti, umfram leigu
gjaldið, skilað sér inn í fær
eyska hagkerfið.
Á meðan hafi íslenska útgerðin greitt hluta af
tekjum sínum í formi veiði
gjalds, skatta af launum, líf
eyris og opinberra gjalda og
loks skatta af hagnaði.
Þorsteinn Már gagnrýndi Magnús Orra Schram
sem sagði Íslendinga hafa misst af dauðafæri að
fara ekki sömu leið og Færeyingar.