Frjáls verslun - 01.01.2012, Blaðsíða 81
FRJÁLS VERSLUN 1TBL. 2012 81
Ert þú með skýra mynd af
þínum viðskiptavinum?
Þegar þú tekur ákvörðun um greiðslukjör
viðskiptavinar, gjaldfresti, úttektir og
upphæð viðskiptareiknings grundvallast
hún alltaf á lánstrausti. Við bjóðum
þér aðgang að traustum upplýsingum
um íslensk og erlend fyrirtæki sem
hjálpa þér að taka ábyrgar og farsælar
ákvarðanir í viðskiptum hvort sem þú
þekkir viðkomandi aðila eða þarft að
kynnast honum betur.
TRYGGÐU ÞÉR TRAUSTAR UPPLÝSINGAR
UM STÖÐU VIÐSKIPTAVINA ÞINNA
Höfðabakka 9
110 Reykjavík
Sími: 550 9600
Fax: 550 9601
www.creditinfo.is
Njósnari í innsta hring
En fólkið vildi fljúga með Nor
weg ian. Fyrir árslok voru vélar
nar orðnar sjö og hvarvetna þar
sem Björn Kjos boðaði komu
véla sinna féll verð á flugmið um.
Farþegum fjölgaði að sama skapi.
Svo fór að bera á að SAS lækk
aði verðið rétt áður en Nor wegian
mætti til leiks. Grun samlegt hvað
SAS vissi mikið um hvað sagt var
á skrifstofu Norwegian. Hvernig
gat SAS vit að hvað Kjos sagði í
trúnaðar samtölum?
Kjos kærði til lögreglu og í ljós
kom að SAS hafði njósn ara hjá
honum. Tölvuskeyti gengu á
milli. Stjórarnir hjá SAS beittu
öllu brögðum til að stöðva sam
keppnina. Þetta kostaði SAS
100 milljónir norskra króna
í sekt og jók að sama skapi
vinsældir Norwegian. Björn Kjos
var orðinn Hrói höttur innan
lands flugsins.
Hann bætti svo smátt og smátt
við millilandaflugi til vinsælla
staða í Evrópu, stórborga og
sólar stranda, og draumurinn
hef ur alltaf verið að hefja lang
flug. Það verður næsta skref.
Dýrt óskabarn
En af hverju hefur Birni Kjos
tekist það sem aðrir hafa orðið
að gefast upp við – nefnilega
að ná fótfestu á markaði þar
sem SAS hefur ráðið lögum
og lofum? SAS er að hluta
ríkis hluta félag í eigu þriggja
nor rænna ríkja og var fyrir
marga Norðurlandabúa „óska
barn þjóðanna“. Það bjó við
fákeppni, réð mark aðnum, var
dýrt félag með flók inn rekstur
í þremur lönd um og þunga
yfirbyggingu. Norwegian
byrjaði án yfirbygg ingar; bara
Kjos og nokkrir samverkamenn
með skrifstofur í vinnuskúrum.
Öll þjónusta var í lágmarki og
flugið miðað við það sem hent
aði vélum af gerð inni Boeing
737 – lengri leiðir inn anlands
og Evrópuflug. Núna er Keflavík
meðal áfangastaða.
Hann kom inn á markaðinn
þegar hagræðing í öllum
rekstri var lausnarorðið, þar
á meðal í opinberum rekstri.
Ríkið hafði áður fastan samning
hjá SAS um flug fyrir opinbera
starfsmenn. Nú var þessum
starfs mönnum sagt að leita að
ódýrasta farinu hverju sinni. Það
var oftast hjá Norwegian. Björn
fékk því ríkisstarfsmenn til sín í
stórum hópum.
Norwegian leitaðist við að
fljúga á tímum sem hentuðu
far þegunum, t.d. snemma að
morgni og seint að kveldi vegna
vinnu ferða. SAS flaug bara
þeg ar félaginu hentaði.
Allt á netinu
Netið hefur líka hjálpað Birni
Kjos. Hann hóf rekstur einmitt
þegar sala á netinu varð að
reglu. Áður voru farmiðar seldir
á söluskrifstofum. Fólk fór til
SAS af gömlum vana. Á netinu
var hægt að bera saman verð
og það var oftast lægst hjá Nor
wegian.
Síðan má ekki gleyma að
flug ferðalög hafa aukist mjög á
öldinni með bættum hag al menn
ings og fallandi verði. Allir eru
flugríkir. Flugfélög eins og Nor
wegian setja miða á útsölu og
allir eru að spá í að ferðast.
Björn Kjos hefur því verið
réttur maður á réttum tíma.
Hann er sá fyrsti sem nær
árangri á Norðurlöndum með
lággjalda félag vegna þess að
SAS mistókst að kæfa félagið í
fæðingu. Þeir hjá SAS voru þá
búnir af drepa af sér tvo áskor
endur. Gamla aðferðin við að
drepa keppinauta með undir
boðum mistókt að þessu sinni
vegna breyttra aðstæða og
ef til vill vegna þrjósku Björns
Kjos. Hann tapaði fé fyrstu árin
og hefur enn ekki grætt mikið
á rekstrinum. Honum er heldur
ekki lýst sem peningamanni;
hann er keppnismaður.
En farþegunum hefur fjölgað
ár frá ári. Enn er það fyrst og
fremst ferðafólkið sem hefur
grætt á samkeppninni. Og fólk ið
stendur með sínum Hróa hetti.
Allt á netinu
Netið hefur líka
hjálpað Birni Kjos.
Hann hóf rekstur
einmitt þegar sala
á netinu varð að
reglu. Áður voru
farmiðar seldir á
söluskrifstofum.