Frjáls verslun - 01.01.2012, Blaðsíða 105
FRJÁLS VERSLUN 1TBL. 2012 105
TExTi: svava jÓnsdÓTTir / myndir: GEir Ólafsson ofl.
„Við blöndum saman góðum íslenskum heimilismat og heilsuréttum inn á milli; við
erum t.d. með grænmetisrétti um einu sinni í mánuði.“
sælir og hefur Gunnar Már
einka þjálfari verið okkur innan
handar við samsetningu á rétt
um en um hollan og næringar
ríkan mat er að ræða.“ Dæmi
um matseðil „léttra rétta“ einn
daginn: Ferskur peruþeytingur,
hægelduð bleikja með brúnum
hrísgrjónum, mangó, fersku
salati og estragondressingu,
brauð, ávöxtur og dressing; allt
í einum pakka.
„Þá erum við með grillseðil
þar sem fólk getur t.d. valið
rist aðar samlokur, djúpsteiktan
kjúkling, hamborgara, djúp
steikt an fisk og svo er alltaf
súpa dagsins með brauði og
áleggi.
Við blöndum saman góðum
íslenskum heimilismat og heilsu
réttum inn á milli; við erum t.d.
með grænmetisrétti um einu
sinni í mánuði. Fiskur og kjúkl
ingur er vinsælasti maturinn.
Svo erum við með einn og einn
„steikardag“; það fer líka vel í
landann.“
Morgunmatur og veislu
þjón usta
Maturinn býður líka upp á morg
unmat og nefnir Rúnar morgun
verðarfundi í því sambandi. „Við
erum með sjö mismunandi mat
seðla fyrir morgunmat og koma
starfsmenn frá okkur á staðinn
og stilla upp morgunverðar hlað
borði. Það getur verið allt frá
einhvers konar heilsumorgun
mat – ávaxtabökkum og bústi
– og alveg upp í beikon, egg og
amerískar pönnukökur.“ Þá má
minna á ávaxta, græn metis og
ostabakka fyrir fundi og einnig
samlokubakka. Fyrir tæki sem fá
hádegismat frá fyrirtækinu geta
líka pantað ávexti. Rúnar rekur
einnig fyrirtækið Kokk ana veislu
þjónustu og þau fyrir tæki sem
eru í viðskiptum hjá Matnum
fá betri kjör en ella ef halda á
veislur.
Þjónusta MATARINS
Bakkamatur sem hentar fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og er sendur
á vinnustaði. Matur sendur í fyrirtæki í stærri einingum og sjá starfs
menn þeirra sjálfir um að skammta og ganga frá. Heildarumsjón
mötuneyta. Sarfsmenn Matarins sjá þá um matseld, frágang og þrif.
Það er margt í boði frá matnum.
starfsmaður matarins kemur með
bakkamat á vinnustað. hentar vel
fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.