Frjáls verslun - 01.01.2012, Blaðsíða 42
42 FRJÁLS VERSLUN 1. TBL. 2012
verkAlýðs
hreyfing í vAndA?
Verkalýðshreyfingin togast á milli ólíkra póla. innlend þjónusta ræður ekki við kauphækkanir.
Útflutningsgreinar græða á lágu gengi og geta borgað. Ofan í kaupið er verkalýðshreyfingin einn
helsti kapítalisti landsins gegnum aðild sína að lífeyrissjóðunum.
r verkalýðs hrey fi ngin
báðum megin við borð
ið í kjarabaráttunni
vegna fjárfestinga
líf eyrissjóðanna?
Gylfi Arnbjörnsson,
forseti ASÍ, segir svo
ekki vera. Vilhjálmur
Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akra
ness, er á öðru máli.
Stefán Einar Stefánsson,
formaður VR, vill hóflegar kröfur en harð
ari stefnu gagnvart ríkisstjórninni. Það er
því ekki von á friði innan hreyfingarinnar
á næstunni.
Vilhjálmur er einn helsti gagnrýnandi
núverandi forystu, ekki bara vegna líf eyris
sjóðanna; hann vill meiri hörku í kröfugerð
á hendur vinnuveitendum.
En Vilhjálmur býr líka að þeirri sérstöðu
að mikill meirihluti félagsmanna hans
vinn ur við útflutning í sjávarútvegi eða
stóriðju. Vegna lágs gengis er þar gróði,
sem ekki hefur skilað sér til fólksins. Í
sam tali við Frjálsa verslun líkir Vilhjálmur
verka lýðshreyfingunni við „gamalmenni
sem liggur í rúminu með gevitennurnar í
glasi við hliðina“.
svIkIN lOFOrð
Annað hljóð heyrist þegar Stefán Einar
Stef ánson, formaður VR, er spurður. Hann
tal ar um samstöðu.
„Það er sanngirnismál að allir sitji við
sama borð,“ segir Stefán Einar og tel ur
að í launakröfum verði miðað við getu
fyrirtækja í öllum greinum til að borga.
Fólkið í VR er í þjónustunni. Þjón ustu fyrir
tækin tapa á lágu og sífellt lækk andi gengi.
„Ég get gagnrýnt forystu ASÍ fyrir að
láta ekki betur í sér heyra og ganga harðar
á ríkisstjórnina að standa við sín loforð
við síðustu kjarasamninga,“ segir Stefán
Einar. Hann segir eins gott að fella loforð
stjórnarinnar út úr samningunum því þau
hafi enga merkingu.
„Ég er fylgjandi því að taka upp síðustu
samninga og strika það út sem stjórnin
lofaði. Það er ekki hægt að semja við aðila
sem ekki stendur við orð sín,“ segir Stefán
Einar.
GetUm sÓtt meIrA
Vilhjálmur á Akranesi segir að þeir sem
geti sótt meiri kjarabætur verði að fá að
gera það. Fyrirtæki, sem flytja allar sínar
afurðir út en greiða mikið af kostnaði í
íslenskum krónum, geti borgað meira.
„Þetta hefur ekki alltaf verið svona,“
segir Vilhjálmur. „Stundum hafa þjónustu
greinarnar getað borgað meira og þá hafa
hinir látið það gott heita þótt þeir fengju
minna. Það er því óréttlátt núna að draga
fólk til dæmis í fiskvinnslu niður vegna
þess að gengið er óhagstætt innflutningi og
verslun.“
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að
þetta misvægi í atvinnurekstrinum verði
fyrst og fremst leiðrétt með aðgerðum
stjórnvalda, það er að efnahagsstefnan leiði
til hækkandi gengis, auk þess sem hægt er
að leiðrétta á sjálfum vinnustöðunum með
bónusgreiðslum og sérkjarasamningum.
öll sPJÓt á rÍkIsstJÓrNINNI
„Þetta misvægi var áður alltaf leyst með
gengisfellingum og verðbólgu. Viljum við
taka þá aðferð upp að nýju,“ spyr Gylfi?
TExTi: Gísli KrisTjánsson / myndir: GEir Ólafsson
Gylfi Arnbjörnsson,
forseti ASÍ: „Okkar
leið er samstaða því
við viljum forðast
víxlverkanir launa
og verðlags.“