Frjáls verslun - 01.01.2012, Blaðsíða 46
46 FRJÁLS VERSLUN 1. TBL. 2012
Af heimur.is
„Ég segi það algjörlega
skýrt: Að mínu viti er
efnahagssamdrættinum
lokið, kreppan er frá.
Á þriggja ára afmæli
ríkisstjórnarinnar
blasir við að það er
búið að moka út úr
Ágíasarfjósi Framsóknar
og Sjálfstæðisflokks
sem það tók þá flokka
næstum því átján
ár að fylla.“
Öss ur Skarphéðinsson.
Þessi pistill birtist á heimur.is 17. febrúar vegna orða jóns sigurðssonar, forstjóra Össurar,
á viðskiptaþingi um að krónan væri fíllinn í stofunni.
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, var
með skemmti lega líkingu þegar hann
sagði á Viðskiptaþingi að krónan væri
fíllinn í stofunni og að við þyrftum
nýjan gjaldmiðil. Hann sagði enn
fremur að núna væri krón unni þakkað
að ekki fór verr í hruninu og það
væri svipað og þakka brennuvargi
að ekki fór verr. Hann sagði einnig
að á Íslandi væru tvær krónur; önnur
óverðtryggð og hin verðtryggð.
Samlíkingin við fílinn í stofunni er það
sem nefnist á blaðamannamáli að tala
í fyrirsögnum. Lesendur staldra við og
hlustendur sperra eyrun.
Ég játa það fúslega að þessi líking
situr svolítið í mér. Fíll er stór og sterkur
en krónan er að mati Jóns mjög veikur
gjaldmiðill – í raun ónýtur, svo notuð séu
hans orð – og helsti galli krónunnar er
sveigjanleikinn; hvað hún sveiflast mikið.
Fíll í stofu finnst mér hafa lítinn sveigjan
leika.
Það er enginn vafi á því að miklar um
ræður verða á næstu árum um krónuna
og hvort hún sé of veikur gjaldmiðill og
henti fyrir svo lítið hagkerfi (stofuna) sem
Ísland er. Þær umræður eru af hinu góða.
Þar hafa báðir aðilar nokkuð til síns máls.
Í einni setningu liggur munurinn fyrst
og fremst í mismiklu atvinnuleysi.
Þegar krónan er lækkuð í efnahagslegri
óáran er vísvitandi verið að skerða
lífs kjörin og lækka raunlaun til að gera
vinnuaflið ódýrara; svo fleiri fái vinnu.
Ég hef hins vegar margoft sagt að
krónan er staðreynd; við búum við hana
og svo verður örugglega næstu árin. Við
þurfum að notast við hana áfram – hvort
sem okkur líkar betur eða verr. Og við
verðum að haga okkur eftir því.
Meginverkefni Íslendinga er núna efna
hagsstjórnin. Við þurfum að ná upp efna
hagsbata, stöðugleika, minna atvinnu leysi,
auknum hagvexti; byggja upp sterkt
og stöðugt efnahagslíf – fyrr uppfyllum
við t.d. ekki Maastrichtsamkomulagið
sem er forsendan fyrir nýrri mynt, þ.e.
ef menn vilja evru en ekki Kanadadollar
eða Bandaríkjadollar.
Allt þetta þurfum við að gera með krón
unni. Enda þarf hagkerfið að komast í
jafnvægi vegna þess að það er ekki
sama hvaða skiptihlutfall yrði notað ef
skipt yrði um gjaldmiðil. Í rauninni ætti
umræðan að snúast um það hvaða
gjaldmiðil við viljum nota eftir að krónan
er búin að koma okkur upp úr öldudaln
um – ennþá er 7 til 8% atvinnuleysi og
Hagstofan spáir miklu atvinnuleysi út
árið 2016, svo það er langt í land að
kreppan sé búin, mælt á þann kvarða.
Ég hef skilið þá sem vilja nýjan gjald
miðil að málið gangi út á það þegar fram
líða stundir að finna rétta tímapunkt inn
til að tryggja að sagan endurtaki sig
ekki; þ.e. að nýr gjaldmiðill yrði þá eins
konar forvörn við öðru stórfalli krónunnar
í framtíðinni.
Ég er ekki sammála nafna mínum að
krónan hafi fellt bankana. Mín skoðun
er sú að það hefði örugglega orðið
bankahrun á Íslandi þótt við hefðum haft
annan gjaldmiðil. Mér finnst því langsótt
að segja að krónan sé brennuvarg urinn!
Hrun krónunnar var afleiðing af hruni
bankanna og hruni efnahagslífsins.
Það varð bankahrun bæði í Banda ríkj u n
um og Evrópu þrátt fyrir stærri gjald miðla
en þeim bönkum var bjarg að. Ekki er séð
fyrir endann á þeim hildarleik. Skulda
vandinn í Evrópu sogar álfuna jafnt og
þétt niður þrátt fyrir gjaldmiðil inn. Það
er verðbólga í Evrópu og það er mikið
atvinnuleysi. Efnahagslögmál in eru þau
sömu, hver svo sem mynt in er.
Nafni minn persónugerir krónuna (fíll
og brennuvargur). Það er sniðugt til að
ná myndlíkingunni. En gjaldmiðlar eru
ekki persónur frekar en fyrirtæki. Það er
sagt að fyrirtæki geri svona og svona. Er
það svo? Fyrirtæki hafa stjórn endur og
starfsmenn sem taka ákvarðanir og hafa
t.d. siðferðisskyldur.
Verðbólga er ekki krónunni að kenna;
verðbólga er mannanna verk. Hvað
getur krónan gert að því að aðilar vinnu
markaðar semja um að skrúfa upp laun
í hagkerfi sem hefur skroppið saman
um 11%? Hvað getur krónan gert að því
að valin sé verðbólguleið í stað þess
að hugsa frekar um kaupmátt ráð stöf
unartekna? Hvað getur krónan gert að
því þótt Steingrímur J. hækki verð á
bensíni, víni og tóbaki og hækki allar
skuldir í landinu í leiðinni?
Heimilin í landinu skulda 1.300
millj arða í verðtryggðum lánum. 10%
verðbólga á ári hækkar skuldirnar um
130 milljarða á ári. Núna er verið að
ræða um einhverjar skyndilausnir eftir á,
að niðurskrifa skuldir um 200 millj arða
og öllum þykir nóg um.
Ég er sammála Jóni um að á Íslandi
séu tvær krónur; önnur óverðtryggð og
hin verðtryggð. Þegar verðtryggingin
var sett á 1979 var ævinlega rætt um að
best væri að verðtryggja bæði laun og
lán því þá kæmust menn fljótlega að því
að enginn græddi á verðbólgunni og þar
Fíllinn í stofunni
Úr tveimur pistlum
ritstjóra á heimur.is
Krónan er fíllinn í
stofunni og við þurfum
nýjan gjaldmiðil.
Jón Sigurðsson.