Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2012, Blaðsíða 25

Frjáls verslun - 01.01.2012, Blaðsíða 25
FRJÁLS VERSLUN 1TBL. 2012 25 S tarfsemi sviðsins má skipta í tvo meg in ­ þætti. Annars vegar veitir það ráðgjöf um skattarétt og lög fræði og gefur hins vegar út efni um þessi sömu málefni. Ráðgjöfin er mestmegnis til fyrirtækja, fagfélaga og rekstr­ araðila og tekur til allra sviða skattamála, bæði hér á landi og einnig í alþjóðlegri starfsemi. „Viðskiptavinir okkar eru af öll­ um stærðum og gerðum, enda koma þessi mál öllum við. Sum fyrirtæki starfa einungis hér á landi en meðal viðskiptavina okkar eru jafnframt mörg er­ lend fyrirtæki með starfsemi á Íslandi og eins íslensk fyrirtæki sem eru með mikla erlenda starfsemi. Þau þurfa því á mjög sérhæfðri ráðgjöf að halda varðandi ólík skattalög í mörg­ um löndum,“ segir Friðgeir. Mikilvæg innsýn í flókin mál Útgáfuþáttur starfseminnar hefur farið ört vaxandi síðustu ár að sögn Friðgeirs, enda ekki vanþörf á í síbreytilegu skatta umhverfi. Yfirgripsmesta útgáfan er hinn árlegi Skatta­ bæklingur, upplýsingarit um skattamál einstaklinga og fyrirtækja, tekinn saman af sérfræðingum PwC í skatta­ rétti. Þar er farið ítarlega og markvisst yfir helstu núgild­ andi skattalög og reglugerðir sem varða bæði einstaklinga og fyrirtæki. Skattabæklingurinn 2012 er nýkominn út og er aðgengilegur á pwc.is. Auk hins árlega skattabækl­ ings gefur skatta­ og lögfræði­ sviðið út mánaðarlegt rit, Skatta vaktina, þar sem fjallað er um nýjustu þróun í þessum efnum. Jafnframt eru sendir út smærri fréttapistlar um valið efni, s.s. á sviði virðisaukas­ katts. Þá eru haldin námskeið, bæði opin námskeið og eins fyrir starfsmenn einstakra fyrirtækja, þar sem farið er yfir helstu álitaefni og breytingar hvað varðar skatta og gjöld. „Í útgáfunni lítum við svo á að okkar hlutverk sé að miðla sem bestum upplýsingum um flókin málefni á sem skýrastan hátt. Þessi öra og reglulega útgáfa hefur sannað sig undan­ farið, því stjórnvöld hafa gert miklar breytingar, sér í lagi á óbeinum sköttum sem hafa aukist umtalsvert. Til að fylgj­ ast með þessari þróun þurfa stjórnendur reglulega og óháða upplýsingagjöf frá sérfræðing­ um með góða innsýn í málefn­ ið. Við finnum mjög sterkt fyrir því hversu vel útgáfustarf­ semin nýtist viðskiptavinum okkar við þessar aðstæður,“ segir Friðgeir og bætir við að hver sem er geti gerst áskrif­ andi að þessum útgáfum sér að kostnaðarlausu. Lögmannsþjónusta PwC Það er ósjaldan sem fyrirtæki og stofnanir þurfa ekki einung is ráðgjöf um skatta­ og lögfræði­ mál, heldur líka almenna lögmannsþjónustu. Þá þjónustu veitir PwC Legal, sem stofnað var fyrir tveimur árum. PwC Legal er sjálfstæð lögmanns­ stofa sem sérhæfir sig í félaga­ og fyrirtækjarétti og alþjóðleg­ um skattarétti. Að sögn Elísabetar Guðbjörns­ dóttur, framkvæmdastjóra PwC Legal, er viðskiptavina flóran fjölbreytt. „Það eru allt frá einyrkjum upp í stórfyrir tæki sem þurfa lögmannsþjón­ ustu á okkar sviði enda er það víð feðmt. Í raun má segja að það snerti á einhvern hátt alla sem eru með einhvers konar rekstur.“ Alþjóðlegur þekkingar­ brunnur Elísabet segir að greinilegt hafi verið strax frá fyrsta degi að mikil eftirspurn væri eftir slíkri lögmannsþjónustu. Þörfin hafi heldur ekki minnkað með tímanum. „Verkefnin hafa verið mörg og fjölbreytt, bæði fyrir fyrirtæki sem eru eingöngu með starfsemi hér heima og ekki síður fyrir fyrirtæki sem starfa á einhvern hátt erlendis líka. Sífellt meira reynir á hina alþjóðlegu hlið fjármuna og fyrir tækja, enda er í mörgum grein um óhjákvæmilegt að starfa á einhvern hátt með fyrirtækjum og stjórnvöldum í öðrum ríkjum með gerólíkt lagaumhverfi.“ Við slíkar aðstæður er mikil­ vægt að starfa með sérhæfðri lögmannsstofu á borð við PwC Legal en ekki skiptir síður máli að PwC Legal er hluti af alþjóðlegri keðju lögfræði­ fyrirtækja PwC. LögmennPwC Legal á Íslandi eiga því auðvelt með að sækja í alþjóðlegan þekkingarbrunn samstarfs­ fyrirtækjanna þegar kemur að málarekstri eða samningagerð erlendis. „Sífellt fleiri íslensk félög eru með starfsemi erlendis, stofna dótturfélög eða útibú og eins og gefur að skilja þarf aðstoð við slíkt, enda er fjármuna­ og fyrirtækjaréttur í fjarlægum löndum sjaldnast eitthvað sem stjórnendur þekkja. Engu að síður geta þessir hlutir skipt sköpum um hvort vel tekst til og því mikilvægt að vera vel undirbúinn og hafa reynda lög­ menn sér til halds og trausts,“ segir Elísabet. „Auk hins árlega skattabæklings gefur skatta- og lögfræðisviðið út mánaðarlegt rit, Skattavaktina, þar sem fjallað er um nýjustu þróun í þessum efnum.“ Elísabet Guðbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri PwC Legal. Friðgeir Sigurðsson, sviðsstjóri skatta­ og lögfræðiráðgjafar Pricewater houseCoopers (PwC) á Íslandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.