Frjáls verslun - 01.01.2012, Blaðsíða 113
FRJÁLS VERSLUN 1TBL. 2012 113
Blindrabókasafnið starfar samkvæmt lögum um safnið frá árinu 1983 og er hlutverk þess að
sjá blindum, sjónskertum og
öðrum þeim sem ekki geta nýtt
sér prentað letur fyrir hljóð
bók um eða aðgengilegum
texta á rafrænu formi. Safnið
telur nú um 6.000 titla. Ég hef
verið forstöðumaður frá árinu
2007 og felst starf mitt í öllum
almennum rekstri. Hér eru
7,25 fastir starfsmenn og á
þriðja tug verktaka sem lesa
inn bækur í hljóðverum okkar.
Við höfum nýverið yfirfært allan
bókakostinn af snældum yfir á
rafrænt form og breytt dreif
ingarkerfi okkar þannig að allir
lánþegar geta ýmist halað því
efni sem þeir vilja niður í tölvur
eða fengið bækurnar sendar á
diskum. Lánþegafjöldinn hefur
þrefaldast á undanförum árum
og þessa dagana erum við að
koma upp nýrri framleiðslu
vél því ein slík dugir ekki fyrir
allan þennan fjölda. Við erum
líka í óðaönn að kynna okkur
nýjan rafbókastaðal sem heitir
Epub3 og undirbúa nýtingu nýs
ís lensks talgervils sem væntan
legur er á þessu ári svo eitthvað
sé nefnt.“
Þóra Sigríður er gift Karli Emil
Gunnarssyni þýðanda og eiga
þau tvö börn, 13 og 11 ára. „Ég
hef lokið mastersnámi í bók
menntum frá Háskóla Íslands
og nú síðastliðið vor lauk ég
diplómu í stjórnsýslufræðum
fyrir stjórnendur í opinberum
rekstri. Það er nám sem ég
myndi mæla með fyrir alla sem
starfa við stjórnun í opinbera
geiranum. Annars finnst mér
gaman að læra sífellt eitthvað
nýtt svo ég sæki alls konar
námskeið, mest hvað varðar
stjórn un en nú er mig farið að
langa á allt öðruvísi námskeið
og ég var að skrá mig á jóga
nám skeið.
Hvað varðar áhugamálin þá
hef ég mikinn áhuga á því sem
ég vinn við þessa stundina og
því sem er að gerast á öðrum
svipuðum stofnunum úti í heimi.
Ég les til dæmis allt sem ég
kemst yfir varðandi rafbókavæð
inguna. Þess utan les ég al
mennar bækur og reyni að fylgj
ast með því hvað er að gerast í
bókaútgáfu á hverjum tíma. Ég
er mikill sundfíkill og syndi helst
fimm til sex sinnum í viku. Fyrir
utan að sund er gott til að hvíla
hugann kemur sundið í veg
fyrir vöðvabólgu og stirðleika.
Mér finnst yndislegt að ferðast
um landið með fjölskyldunni
og stefni á slíkar ferðir í sumar.
Nokkrum sinnum höfum við
farið í Hrísey með vinafólki og
vonandi gengur slík ferð upp í
sumar. Reyndar eru áhugamálin
fjölmörg og eini ótti minn er að
ég nái ekki að gera allt sem mig
langar til áður en yfir lýkur. Ég
hef undanfarna mánuði verið að
undirbúa bókarskrif um ákveðið
efni og ég vona að ég komist
eitthvað á veg með skrifin á
þessu ári, þetta er allt spurning
um tíma og skipulag.“
Þóra Sigríður Ingólfsdóttir
– forstöðumaður Blindrabókasafns Íslands
„Ég er mikill sundfíkill og syndi helst fimm til sex sinnum í viku. Fyrir utan að sund er gott
til að hvíla hugann kemur sundið í veg fyrir vöðvabólgu og stirðleika.“
Nafn: Þóra Sigríður Ingólfsdóttir
Fæðingarstaður: Reykjavík,
14. júní 1966
Foreldrar: Rannveig Jónsdóttir og
Ingólfur Arnar Þorkelsson (19252005)
Maki: Karl Emil Gunnarsson
Börn: Rannveig Karlsdóttir og
Kormákur Karlsson
Menntun: MA í bókmenntum og
diplóma í opinberri stjórnsýslu