Frjáls verslun - 01.01.2012, Blaðsíða 66
66 FRJÁLS VERSLUN 1. TBL. 2012
arar, hafa gott úthald í langan
tíma.“ Þær telja bestan árangur
nást þegar fólk er ekki aðeins
ánægt og duglegt, heldur helgar
sig starfinu og því að byggja
upp til framtíðar.
Spreitzer og Porath nefna
fjögur atriði sem fyrirtæki geta
lagt áherslu á til að auka ham
ingju og ná auknum árangri.
Til að tryggja árangur þurfa öll
fjögur atriðin að vinna saman.
Þessi atriði eru ekki flókin og
þarfnast ekki mikilla fjárfestinga.
Stjórnendur þurfa aftur á móti
að vera opnir fyrir því að leiða
og hvetja fremur en að skipa
og gagnrýna. Í fyrsta lagi að
gefa fólki tækifæri til að taka
ákvarðanir um það sem snýr
að þeirra starfi og leysa sjálft
úr málum. Í öðru lagi að fá og
geta deilt upplýsingum. Án
upplý singa verða störfin flest
leiðigjörn og veita lítinn inn
blástur. Í þriðja lagi heiðarleg
framkoma. Illt umtal, niðurlægj
andi framkoma og óheilindi
hvers konar draga verulega úr
afköstum og gæðum vinnunn
ar hjá þeim sem upplifa slíkt. Í
fjórða lagi að veita endurgjöf.
Endurgjöf felur ekki aðeins í sér
viðurkenningu heldur skapar
einnig tækifæri til lærdóms og
þróunar. Ef endurgjöf er veitt
jafnóðum og beint til viðkomandi
hefur hún meiri áhrif.
jákvæð greind
Shawn Achor ritar stutta en inni
haldsríka grein undir fyrirsögn
inni Jákvæð greind (e. Positive
Intelligence). Hann fjallar um
það hvernig algengara er að við
lítum á að árangur sé forsenda
þess að við séum hamingjusöm,
fremur en að hamingjan sé
for senda fyrir árangri. Hann
segir frá því að í samanburðar
rannsókn þar sem bornar voru
saman 225 rannsóknir á ham
ingju og árangri hafi komið í ljós
að fylgni er milli hamingju og
árangurs. Því meiri hamingja því
meiri árangur. Hann bendir einn ig
á að algengur misskilningur
sé að hamingja okkar ráðist af
erfðum og umhverfi okkar, eða
blöndu af hvoru tveggja. Vissu
lega hefur hvort tveggja áhrif
en það ræður þó ekki mestu
um það hversu hamingjusöm
við erum. Þær venjur sem þú
temur þér, hvernig þú kemur
fram við vinnufélagana, hvernig
þú tekst á við streitu, allt þetta
getur þú haft áhrif á til að auka
hamingjuna og líkur á góðum
árangri. Með því að beina
hugs unum sínum meðvitað
frem ur að jákvæðum hlutum en
nei kvæðum, leggja áherslu á
hjálp semi og góð samskipti við
sam starfsfólkið og með því að
ná tökum á neikvæðum áhrifum
streitu eykurðu líkur á góðum
árangri. Máli sínu til stuðnings
vitnar Achor meðal annars í
rann sókn þar sem sýnt var fram
á að þeir sem lögðu áherslu á
að hjálpa samstarfsfólki sínu
voru 40% líklegri til að fá stöðu
hækkun en þeir sem gerðu það
ekki.
saga hamingjunnar
Síðustu greinina, Sögu hamingj
unnar (e. The History of Happi
ness), ritar Peter N. Stearns.
Hann fjallar um hvernig leitin
að hamingjunni hefur mótað
bæði vestræna menningu og
efnahag og hversu ólíkum aug um
mismunandi menningarheim ar líta
það hvernig við tjáum líðan okkar
og tilfinningar. Bæði trúarbrögð
og hörmungar hafa mótað
viðhorfin í gegnum tíðina og
almenn þróun til bættra lífskjara
og lífsgæða hefur almennt gert
okkur það auðveldara að brosa
og vera hamingjusöm.
Þessi þróun hefur haft áhrif á
samskipti bæði á vinnu stöðum
og heimilum og einnig á upp
eldi barna. Stearns velt ir upp
bæði jákvæðum og neikvæðum
hliðum þessarar þróunar. Hann
leggur áherslu á að við tökum
ekki núverandi aðstæður okkar
sem gefnar og að menning
mótist oftar en ekki af valkostum.
Nýir valkostir geti haft breytingar
í för með sér. Hann varar líka
við því að lögð sé ofuráhersla
á að vera hamingjusamur þar
sem það geti aukið á óhamingju
þeirra sem ekki njóta ham ingj
unn ar og fólk fari fremur í felur
með óhamingju sína.
Shawn Achor bendir
einnig á að algengur
misskilningur sé
að hamingja okk-
ar ráðist af erfðum
og umhverfi okkar,
eða blöndu af hvoru
tveggja.
Shawn Achor.
Stearnes varar við
því að lögð sé ofur -
áhersla á að vera
hamingju sam ur þar
sem það geti aukið
á óhamingju þeirra
sem ekki njóta ham-
ingjunnar.
Peter N. Stearns.
Allar eru þessar greinar athyglisverðar hver á sinn hátt og umræðan
í heild varpar ljósi á það hvernig við getum einungis með jákvæðu
hugarfari og viðhorfum haft umtalsverð áhrif á árangur. Á þeim
tímum sem við nú lifum þar sem þröngt er um fjármagn og tækifæri
kunna að virðast fá má því leiða líkum að því að hamingjan gæti
verið vannýtt auðlind.