Frjáls verslun - 01.01.2012, Blaðsíða 72
72 FRJÁLS VERSLUN 1. TBL. 2012
Bílabúð Benna
Cayenne Diesel er með V6vél sem er í senn aflmikil
og þýðgeng. Það er varla að það heyrist að það sé
dísilvél sem knýr þennan bíl áfram, svo lágvær er
hún. Það finnst hins vegar á toginu sem virðist alveg
endalaust.
Vélin skilar 245 hestöflum, sem þykir kannski ekki mik ið á mælikvarða Porsche, en hámarkstog er 550 Nm. Það er því ljóst á þessum tölum að Cayenne Diesel
er dugnaðarforkur sem hentar til margvíslegra nota en er um
leið þægilegur í öllum venjulegum borgarakstri. Hröð unin úr
kyrrstöðu í 100 km hraða er í raun ótrúleg fyrir þetta stóran
dísilbíl; 7,6 sekúndur.
Þrátt fyrir aflmikinn bíl losar Cayenne Diesel nú aðeins 189
g/km af koltvísýringi út í andrúmsloftið og það skiptir veiga
miklu máli þar sem vörugjöld bifreiða reiknast út frá því hér
lendis og víðar. Cayenne Diesel er með átta þrepa Tiptronic
Ssjálfskiptingu sem á stóran þátt í minni eldsneytisnotkun
bílsins og meiri hröðun. Eldsneytiseyðsla í blönduðum akstri
er 7,2 lítrar.
Innrétting Porsche Cayenne ber þess merki að um lúxusbíl
er að ræða, efnisval og frágangur er eins og best getur orðið
og ber af í sínum flokki. Þar sækir Porsche í hönnum Porsche
Panamera sem frumsýndur var árið 2009.
Sala á Porsche Cayenne hefur farið fram úr björtustu von
um og hafa biðlistar myndast í Evrópu sökum gríðarlegrar
eftir spurn ar. Bílabúð Benna er umboðsaðili Porsche á Íslandi
og býður upp á reynsluakstur á Cayenne Diesel í Porsche
saln um, Vagnhöfða 23.
Cayenne Diesel
Vél: V6
Rúmtak: 2.967 rsm
Afl: 245 hestöfl við 3.8004.400 sn/mín.
Tog: 550 Nm
Eyðsla í blönduðum akstri: 7,2
Drifrás: Porscheveggripsstýring (PTM), sítengt
aldrif með sjálfvirkri læsingu á mismunadrifi.
Gírskipting: 8 þrepa Tiptronic S
Eigin þyngd: 2.100 kg
Hámarkshraði: 220 km/klst.
Verð: 13.900 þúsund.
Porsche Cayenne
Diesel
TE
xT
i:
Hr
Un
d
Ha
UK
sd
ÓT
Ti
r
/ m
yn
di
r:
G
Ei
r
Ól
af
ss
on
Porsche
Cayenne Diesel