Frjáls verslun - 01.01.2012, Blaðsíða 98
98 FRJÁLS VERSLUN 1. TBL. 2012
Um 2.400 erlendir gestir komu á ráðstefnu ECPR í fyrrasumar sem var haldin í samstarfi
við stjórn málafræðideild og Stofnun stjórnsýslufræða við Háskóla Íslands. Um er að
ræða fjölmennustu alþjóðlegu ráðstefnu sem haldin hefur verið á Íslandi. Þótt allt hafi
gengið vel vantaði gisti staði fyrir hluta gesta og komu þá m.a. starfsmenn og nemendur
Háskólans til aðstoðar.
Sjötta evrópska ráðstefna stjórnmála fræðinga á vegum European Consortium for Political
Research (ECPR) var haldin í
Háskóla Íslands í ágúst í fyrra
og komu hingað til lands um
2.400 erlendir stjórnmálafræð
ingar, fræðimenn og nemendur.
Stofnun stjórnsýslufræða og
stjórnmála og stjórnmálafræði
deild Háskóla Íslands sáu um
skipulagningu ráðstefnunnar.
Margrét S. Björnsdóttir aðjúnkt,
dr. Ólafur Þ. Harðarson, Ásta
Möller forstöðumaður og Jökull
Torfason, stjórnmálafræðinemi
og formaður Politica, sátu í
undir búningsnefnd. Starfsfólk
Gestamóttökunnar vann auk
þess að undirbúningi í sam
vinnu við fyrrnefnda aðila.
Þeg ar að framkvæmdinni kom
tóku auk þeirra þátt rúmlega
20 stjórnmálafræðinemar sem
voru á vakt um allt svæðið og
leiðbeindu gestum og fyrirlesur
um í alls 300 málstofum auk
aðstoðar allra umsjónarmanna
húsnæðis HÍ. „Þarna kom sam
an harðsnúin sveit. Við vorum
búin að vinna að undirbúningi
ráðstefnunnar í þrjú til fjögur
ár en áttum alls ekki von á að
hún yrði svona fjöl menn,“ segir
Margrét.
Ótrúleg viðbrögð
Gestamóttakan sá um að taka
frá og útvega gestum gistingu
innan tiltekins frests. Það kom
hins vegar í ljós um 10 dögum
áður en hún hófst að allt gisti
rými í Reykjavík, nágrenni
borg arinnar, á Suðurnesjum
og í Árborg var fullbókað. „Það
var allt troðfullt og við stóðum
frammi fyrir því að um 5070
manns yrðu að hætta við að
koma því þeir fengu hvergi inni.
Ég sendi tölvupóst til allra
starfsmanna Háskólans og
stúdentaráð sendi póstinn
til allra nemenda þar sem
yfirskriftin var: Neyðarkall. Fólk
var spurt hvort það gæti hýst
erlenda stjórnmálafræðinga í
nokkra daga. Viðbrögðin voru
ótrúleg. Ég hef örugglega
fengið tilboð um 200 gistirými
en starfsmenn, stúdentar og
ættingjar þeirra buðust til að
taka fólk í hús. Enginn þurfti að
hætta við að koma og var öllum
komið í gistingu.“
Vel heppnuð
Nær allar byggingar Háskóla
Íslands voru nýttar á meðan á
ráðstefnunni stóð.
„Okkur í Háskólanum fannst
merkilegt eftir á að hyggja
hvað þetta gekk allt smurt fyrir
sig. Húsnæði Háskólans er
afskaplega gott þótt margt sé
komið til ára sinna. Það var
allt vel merkt og hugað vel að
þörfum gesta.“
Margrét nefnir að fyrir utan
þessa skipulagningu hafi þurft
að sjá um að gefa öllum þess
um fjölda að borða en auk
Hámunnar á Háskólatorgi setti
Múlakaffi upp veitingastað í
íþróttahúsi Háskólans. „Þeim
tókst í sameiningu að sjá öllum
fyrir mat og drykk auk þess sem
Háman skipulagði 30 mót tökur
meðan á raðstefnunni stóð.“ Þá
þurfti að skipuleggja ferðir og
sjá um ýmsa aðra þjónustu sem
Margrét segir að Gesta móttakan
hafi annast með prýði.
„Við fengum mikið lof fyrir
skipulagninguna og í nýju tíma
riti ECPR er grein um ráðstefn
una á Íslandi. Þar er hún
talin ekki bara sú fjölmennasta
heldur einnig sú ráðstefna
sam takanna sem standi upp úr
hvað varðar skipulag auk þess
sem hún þykir hafa heppnast
ein staklega vel.“
Mikil landkynning
Margrét segir að hópurinn fjöl
menni hafi sett svip sinn á bæinn
þessa sumardaga. „Okk ur var
sagt að miðbærinn væri fullur
af stjórnmálafræðingum. Ég
ef ast ekki um að viðskiptalegt
gildi hafi verið mikið. Auk þess
kynntist fólk landinu og fékk
góða þjónustu því við vönduð
um okkur. Ég held þetta sé mikil
landkynning. Þetta hefur mikið
gildi fyrir okkur Íslendinga og
að sjálfsögðu vonandi einnig
fyrir gestina.
Þetta var mikið ævintýri og
skemmtilegt. Við í Háskóla
Ís lands erum mjög stolt af því að
þetta skyldi takast.“
TExTi: svava jÓnsdÓTTir mynd: GEir Ólafsson ofl.
Margrét S. Björnsdóttir.
„Við fengum
mik ið lof fyrir
skipu lagn inguna
og í nýju tímariti
EC PR er grein um
ráðstefnuna á Ís
landi.“
um 2.400
ráðstefnugestir