Frjáls verslun - 01.01.2012, Blaðsíða 106
106 FRJÁLS VERSLUN 1. TBL. 2012
Dr. Anna Dóra Sæþórsdóttir lauk nýverið við doktorsrit-
gerð þar sem hún rannsakaði náttúrutengda ferðamennsku
með hliðsjón af hugtakinu þolmörk ferðamennsku og hvað
ferðamannastaðir þola mikinn fjölda ferðamanna.
Ég tel að við getum tekið á móti einni millj ón erlendra ferðamanna en það er háð því hvenær árs ins
þeir koma og hvert á land þeir
fara,“ segir Anna Dóra Sæþórs
dóttir, dósent í ferða málafræðum
við Háskóla Íslands. Hún segir
að um helm ingur erlendra ferða
manna komi hingað til lands með
flugi yfir sumartímann – í júní, júlí
og ágúst – en hinn helmingurinn
dreifi st á hina níu mánuði ársins.
„Álagið er mjög mikið þessa
þrjá mánuði og það væri ekki
heppilegt ef ferðamönnum
fjölg aði miklu meira á sumum
stöð um á landinu á sumrin.
Tækist hins vegar að dreifa
þeim betur um landið og fá þá
til að heimsækja aðra staði og
ná betri dreifingu á aðra mánuði
ársins þá getur landið vel tekið
á móti fleiri ferðamönnum.
Vandinn liggur í að of margir
eru að skoða sömu staðina á
sama tíma en það veldur miklu
álagi á landið og innviðina auk
þess sem upplifun ferðamanna
verður síðri ef það eru margir
ferðamenn í kringum þá. Þess
vegna þola margir af mest
heim sóttu stöðunum ekki fleiri
gesti miðað við óbreytt ástand.“
Anna Dóra segir að besta
leiðin til að taka á móti fleiri
erlendum ferðamönnum sé að
þeir komi á öðrum árstímum og
nefnir hún átak Íslandsstofu og
iðnaðarráðuneytisins, Ísland allt
árið, í því sambandi. „Ef það
heppnast þá er þetta frábær
leið til þess að taka á móti fleir
um vegna þess að aðaláhersl
an er á að þeir komi á öðrum
árstímum. Með því móti gætum
við tekið á móti milljón erlend
um ferðamönnum á ári.“
Alvarlegt mál
Anna Dóra segir að tveir staðir
hafi komið verst út þegar ferða
menn voru spurðir sumarið
2000 hvort þeir upplifðu að of
margir ferðamenn væru á sömu
ferðamannastöðum og þeir:
Fjórð ungur gesta í Skaftafelli
upp lifði of mikið fjölmenni og um
20% gesta í Landmannalaugum.
„Við endurtókum síðan þessa
rannsókn í Landmannalaugum
árið 2009 og þá var hlutfall þeirra
sem fannst of margir ferða menn
vera á staðnum komið upp í
30%. Þetta tel ég vera mjög
alvarlegt mál og að grípa þurfi í
taumana. Þetta segir samt held
ur ekki alla söguna því svo er
annar hópur sem er hættur að
heimsækja Landmannalaugar
vegna fjölmennisins. Þetta
fólk fer heldur í Lónsöræfi, að
Langa sjó eða á aðra slíka staði.
Þúsundir manna ganga
Lauga veginn frá Landmanna
laug um í Þórsmörk á hverju ári,
enda er leiðin ein sú stórkostleg
asta sem til er. Hún er hins
vegar að verða mjög ásetin og
ef markmiðið er að þar eigi að
vera hægt að upplifa víðerni
verður að huga að því að létta
álagið á þeirri gönguleið.
Við þyrftum fleiri góðar göngu
leiðir og koma þeim betur á
kortið þannig að ferðamenn
þekki annað en Laugaveginn.
Kerlingarfjöll eru t.d. ævintýra
land göngumannsins. Þau eru
dæmi um stað þar sem hægt er
að fá góða og mikla þjónustu
á hálendinu. Þar er hægt að fá
gistingu í smáhýsum og eld aðan
mat og þar er búið að stika tugi
kílómetra af gönguleið um um
stórbrotið landsvæði. Borgar
fjörður eystri er annar staður
þar sem heimamenn hafa gert
frábæra aðstöðu fyrir göngufólk
og stikað margar gönguleiðir.
Það er þó dýrt að koma nýjum
stöðum á kortið.
Svo eru aðrar gönguleiðir
eins og t.d. gamla þjóðleiðin
um Kjöl og sú mikla saga sem
henni tengist. Það væri hægt
að gera margt í kringum það
svæði en það er hins vegar ekki
hægt vegna þess að þar vantar
bæði drykkjarvatn og rennandi
vatn fyrir salerni. Það þyrfti því
að fjárfesta í borholum á helstu
áfanga stöðunum en án þess er
ekki boðlegt að gera út á gamla
Kjal veg sem göngusvæði.“
Veturinn
Spurð um áfangastaði fyrir
erl enda ferðamenn yfir vetrar
tímann nefnir Anna Dóra
Vatna jökulsþjóðgarð sem sé
aðdráttarafl ekki síður á veturna
en sumrin; jöklaferðir, flugelda
sýningu sem sé að verða árleg
ur viðburður við Jökulsárlón
og svo hafi margir áhuga á að
skoða norðurljósin.
„Það þarf margt að ganga
upp til að vetrarferðamennska
verði að veruleika. Ferðaþjón
ustuaðilar vinna vel saman á
Suðurlandi og Suðausturlandi
enda eru þeir mun sterkari
þegar þeir vinna saman en
hver í sínu lagi. Ferðaþjónustan
á þessu svæði er því smám
saman að eflast og það eykur
hagræði fyrirtækjanna og eflir
byggðina þegar upp er staðið.
Þetta þarf að gerast víðar.“
Mismunandi markhópar
Anna Dóra segir að við skipu
lagningu ferðamannastaða þurfi
að taka tillit til þolmarka þeirra
og hinna mismunandi mark
hópa sem koma til landsins.
„Ég hef kallað einn markhópinn
náttúrusinna en þeir sækjast
eftir að upplifa ósnortin víðerni,
þeir eru viðkvæmir fyrir allri
röskun á náttúrunni, vilja hafa
mannvirki og innviði í algjöru
lágmarki og þola ekki mikinn
fjölda ferðamanna í kringum
sig. Svo er annar hópur sem
sækist eftir góðri þjónustu, vill
uppbyggingu og er ekki við
kvæmur fyrir fólksfjölda. Það
er ekki hægt að gera þessa
hópa ánægða á sama staðn
um því þeir sækjast eftir svo
mismunandi þáttum. Því þarf
að móta stefnu um til hvaða
markhópa mismunandi svæði
eigi að höfða og skipuleggja
ferðamannastaði með tilliti til
þess. Um getur verið að ræða
viðkvæm svæði sem þola alls
ekki mikinn fjölda; ef ætlunin er
að fá ferðamenn þangað ættu
það að vera náttúruferðamenn
vegna þess að sá hópur er
fá mennur og það þarf ekki að
byggja mikið upp í kringum þá.“
Anna Dóra segir að á há lend
ið sæki fólk sem vill upplifa
víðerni, áskoranir og fámenni
og þess vegna megi ekki beina
mikl um fjölda þangað. „Það
er meira sparisvæði; það er
líka spari vegna þess að við
getum hagnast miklu meira á
ferðamönnum í byggð. Þar býr
fólk sem starfar við ferðaþjón
ustu og veitir góða þjónustu.
Þar er hægt að selja vörur og
upplifun og því þarf nýsköpun
að vera sem mest í byggð.“
Anna Dóra segir að þótt
Ís lendingar geti tekið á móti
milljón erlendum ferðamönn
um ætti það ekki endilega
að vera stefnan. „Markmiðið
er ekki endi lega að fá millj
ón ferðamenn heldur að fá
sem mestan arð af þeim sem
hingað koma og bæta afkomu
greinarinnar. Til að svo megi
verða borgar sig að byggja
atvinnu greinina upp hægt og
rólega en ekki með offorsi þar til
blaðran springur framan í okkur.
Megin markmiðið hlýtur að vera
að ferðaþjónustan sé rekin á
sjálf bæran hátt.“
TExTi: svava jÓnsdÓTTir / mynd: GEir Ólafsson
Anna Dóra sæþórsdóttir.
getuM við tekið á Móti
fleiri ferðAMönnuM?