Frjáls verslun - 01.01.2012, Blaðsíða 111
FRJÁLS VERSLUN 1TBL. 2012 111
mikill sérvitringur. Kipps skilur eftir ungan
son sinn og heldur til þorpsins og telur að um
auðvelt verk verði að ræða. Annað kemur í
ljós. Hann er varla sestur að í þorpinu þegar
hann tekur eftir því að tíð slys og sjálfsmorð
hafa gert það að verkum að foreldrar halda
börnum sínum innandyra. Þegar Kipps dvelur
nótt eina einn í húsi Drablow heyrir hann í
drukknandi barni og sér svipi látinna barna
ráfa um húsið og ná grennið. Þegar Kipps
hefur jafnað sig á þess um atburði fer hann
að rannsaka málið og kemst að því að börnin
hafa öll látist sama mánaðardag á mörgum
árum. Upphafið má rekja til „Konunnar í
svörtu“ sem hafði ekki get að bjargað syni
sínum frá drukknun og er afturgnga hennar
á ferð og þegar hún sér barn þá er það
dauðadæmt. Kipps telur sig hafa lausn á
þessu máli og grefur upp líkamsleifar sonarins
og sameinar móður hans í gröf henn ar.
Þetta hefur þveröfug áhrif og nú snýr aftur
gangan sér að syni Kipps. Mótleikarar Daniels
Radcliffes eru þekktir breskir leikarar, þar á
meðal Ciarn Hinds, sem lék á móti Radcliffe
í síðustu Harry Pottermyndinni, Harry Potter
and the Deadly Hollows, og Janet McTeer,
sem einna þekkt ust er fyrir að leika í breskum
úrvals sjón varps þátta röðum.
Leikstjóri The Woman in Black er James
Watkins sem á aðeins eina kvikmynd að
baki, Eden Lake (2008), sem eins og The
Woman in Black er hryllingsmynd og skartar
Michael Fassbinder í einu aðalhlutverkinu.
Þess má svo geta að annað tveggja fram
leiðslu fyrirtækja The Woman in Black er hið
sögufræga Hammer Films, sem hefur ekki
framleitt kvikmynd í tuttugu ár en var á árum
áður aðalframleiðandi ódýrra hryllingsmynda,
m.a. eftir sögum Edgars Allans Poes, og
kvik mynda um Drakúla og Frankenstein svo
eitthvað sé nefnt. Leikarar á borð við Vincent
Price, Christopher Lee og Peter Cushing urðu
frægir og ódauðlegir í augum hryllings mynda
aðdáenda.
Framtíðin er björt
Ljóst er að Daniel Radcliffe er að leika upp fyrir
sig í aldri, en hann er aðeins 22 ára og leikur
lögfræðing sem kominn er með reynslu, hefur
verið í hjónabandi og á einn son. Hann er því
mjög ólíkur Harry Potter og það er það sem
Radcliffe vill. Hann hefur sagt að Harry Potter
kaflanum í lífi sínu sé lokið og hann muni
ekki taka að sér hlutverk sem minni á Potter
myndirnar heldur leita sem lengst út fyrir þær.
Radcliffe er þó afar þakklátur fyrir að hafa
fengið tækifæri til að leika Harry Potter þótt
mikill hluti æsku- og unglingsáranna hafi farið
í kvikmyndaleikinn. „Það er fyrst nú sem ég
geri mér grein fyrir því að það verður verulegt
átak að komast út úr Harry Potter. Fólk er með
svo fastmótaðar hugmyndir um mig sem erfitt
verður að víkja úr huga þess.“ Og hann segir
að það hafi verið mikil forréttindi að fá að leika
á móti stórkostlegum leikurum og læra af þeim
og sá leikari sem hann lítur mest upp til er Gary
Oldham. „Þegar ég lít yfir feril hans hugsa ég
með mér: Þetta er leiðin sem ég vil fara – og ég
held ég geti það.“
Næsta kvikmyndahlutverk Daniels Rad cliffes er ekki síður krefjandi en hlutverk hans í The Woman in Black. Þá leikur
hann beatskáldið Alan Ginsberg í Kill Your
Darlings sem fjallar um morð sem var framið
1944 en skáldin af beatkynslóðinni, Alan
Ginsberg, Jack Kerouac og William Burroughs,
drógust inn í atburðarásina.
kvIkmYNDIr
Daniel radcliffe í hlutverki lögfræðingsins
Arthurs Gibbs í the Woman in black.
Janet mcteer og Daniel radcliffe í hlutverk-
um sínum.
Kenneth Branagh bókar Kate
Winslet
Þrátt fyrir að Thor, í leikstjórn
Kenneths Branaghs, hafi verið
ein vinsælasta kvik mynd in á
síðasta ári gaf hann ekki kost
kost á sér í framhaldsmyndina
Thor 2 sem verið er að gera
um þess ar mundir. Branagh
er eins og ávallt með margt á
prjónunum sem hefði þá setið á
hakanum, hann hefur nýlokið við
að leika Kurt Wallander í þremur
sjón varps myndum og er með
í undir búningi að leikstýra The
Guernsey Literary And Potato
Peel Pie Society, sem gerð
er eftir samnefndri skáldsögu
og fjallar um rithöfund í síð ari
heimsstyrjöldinni sem fékk áhuga
á bókaklúbbi á eyjunni Guernsey
sem var hersetin af nasistum.
Branagh hefur tryggt sér Kate
Winslet í aðalhlutverkið. Þau
eru ekki ókunnug hvort öðru en
Winslet og Branagh léku Ófelíu
og Hamlet í kvik myndaútgáfu
Branaghs frá árinu 1997.
Lincoln
Eftir að hafa tekið sér frí frá
leikstjórn í þrjú ár skilaði Steven
Spielberg frá sér tveimur kvik
myndum í lok síðasta árs, The
Adventures of Tintin og War
Horse. Hann lætur ekki deigan
síga og á þessu ári frumsýnir
hann Lincoln sem fjallar um
Abra ham Lincoln og er gerð
eftir ævisögunni Team of Rivals:
The Political Genius of Abraham
Lincoln eftir Doris Keene
Good win sem leggur áherslu
á pólitískan feril Lincolns og
baráttu hans við andstæðinga
sína á þessu sviði sem leiddi
síðan til endaloka þrælastríðsins.
Sem fyrr er Spielberg með
þunga vigtarleikara. Daniel Day
Lewis leikur Abraham Lincoln
og í öðrum hlutverkum eru m.a.
Joseph GordonLevitt, Jared
Harris, Tommy Lee Jones,
James Spader, Hal Holbrook,
David Straithern og Sally Field
sem leikur Mary Todd Lincoln,
eiginkonu forsetans. Lincoln
verður frumsýnd á haust mán
uðum.
Great Hope Springs
Meryl Streep er á toppnum
eina ferðina enn. Þessi frá bæra
leikkona, sem erfitt væri að
mót mæla að sé mesta kvik
mynda leikkona sem uppi hefur
verið, á óskarinn vísan eftir
frammi stöðu sína sem Margaret
Thatcher í Iron Lady og er hún
þegar búin að innbyrða Golden
Globehnöttinn. Næsta kvikmynd
hennar er á léttari nótum og
heitir Great Hope Springs.
Streep hefur þegar lokið leik svo
ekkert er því til fyrirstöðu að hún
mæti á allar verðlaunahátíðir
og fer að líkindum ekki tóm
hent til baka. Great Hope
Springs fjallar um miðaldra
hjón sem taka eina helgi í að
leita hjálpar til að bjarga hjóna
bandinu. Tommy Lee Jones
leikur eiginmanninn og Steve
Carrell sálfræðing þeirra. Great
Hope Springs verður frum sýnd
í byrjun desember, sem er góð
tímasetning fyrir óskars verð
launin 2013.
Bíófréttir
kenneth branagh og kate Win-
slet í hamlet (1997). meryl streep
steven spielberg við tökur á
lincoln seint á síðasta ári.