Frjáls verslun - 01.01.2012, Blaðsíða 20
20 FRJÁLS VERSLUN 1. TBL. 2012
Í stuttu máli
Í hruninu haustið 2008 varð meira hrun í sumum atvinnugreinum en öðrum. Mest varð hrunið í bankastarfsemi,
byggingageiranum og bílainnflutningi.
Bankaþjónusta hafði þanist út í bólunni
og eðlilega varð þar mestur samdráttur.
Þrátt fyrir hrunið í bankaþjónustu er
gengismunur í bankakerfinu með því
hæsta í heiminum hér á landi; þ.e. mun
ur inn á útlánsvöxtum og innláns vöxtum.
Hann er 5 til 6% en erlendis eru bankar
hins vegar reknir á 1 til 3% vaxtamun.
Pétur Einarsson, forstjóri Straums,
sagði á dögunum á Stöð 2 að enn væri
offramboð á viðskiptabankastarfsemi
hér á landi og rekstrarkostnaður of
mikill. Pétur sagði þörf á hagræðingu
á viðskiptabankasviðinu. Þar beindust
spjótin vitanlega að Íslandsbanka, Arion
banka og Landsbankanum.
„Þetta eigi samt ekki endilega við um
fjárfestingabankastarfsemi og ýmis
verkefni sem minni verðbréfa og ráð
gjafar fyrirtæki sinna,“ sagði Pétur.
oFFramBoð á
BankastarFsemi
Eru bankarnir of margir og of margt fólk í vinnu hjá þeim? Verða sameiningar?
jaðrar Við
almættisVerk
Mér finnst þetta vera allsherjar handarbakavinna og í raun algjört klúður,“ sagði Sigurður Líndal, prófessor við
Háskólann á Bifröst, í viðtali við Morgunblaðið
um þá ákvörðun Alþingis að kalla stjórnlagaráð
saman til fjögurra daga vinnu í næsta mánuði.
Alþingi hyggst efna til ráðgefandi þjóðarat
kvæðagreiðslu í sumar um drög að nýrri stjórn
arskrá og taldi nauðsynlegt að stjórnlagaráð
kæmi saman í fjóra daga.
Skýrt kemur fram í stjórnarskrá Íslands að
það er Alþingis að breyta stjórnarskránni.
Sigurður Líndal segir að tillögur stjórnlaga
ráðs um breytingar á stjórnarskránni þarfnist
rækilegrar skoðunar. „Eins og málin standa
í bili, að það takist að leysa þetta á einum
mánuði. Ég held það myndi jaðra við almættis
verk,“ sagði Sigurður við Morgunblaðið.
Samkvæmt tillögunni verður lagt fram frum
varp um nýja stjórnarskrá næsta haust um leið
og málið verður tekið til efnislegrar meðferðar.
Sigurður Líndal.
Steingrímur J. Sigfússon ráð herra viður kenndi að það væri ekki viðeigandi orðbragð að
segja öðr um þingmanni að þegja líkt
og hann sagði við Sigmund Davíð
Gunnlaugsson, formann Fram
sóknar flokksins, í þingsal. „Af hverju
drull ast þú ekki til að segja land ráð,“
bætti Steingrímur svo við eftir að
hann var sestur aftur í sæti sitt.
Steingrímur sagði nokkrum dög
um síðar við fréttamenn eftir ríkis
stjórnarfund að þetta væri ekki stór
atburður í hans huga. „En ég er
nógu stór til að viðurkenna það að
þetta er ekki viðeigandi orðbragð,“
sagði Steingrímur.
Hann sagði að þetta hefðu verið
orða hnippingar úti í þingsalnum
og ekki ætlaðar fyrir fjölmiðla eða í
hljóðritun. „Við þurfum væntanlega
báðir að sitja á strák okkar og stilla
skap okkar í framhaldinu.“
orðBragðið
ekki Viðeigandi
STEINGRíMUR J.:
12,8% VerðBólga
Hvað er verðbólgan mikil? Horft til eins mánaðar er hún 12,8%
uppreiknuð til eins árs. Það er það
sem vísitala neysluverðs hækkaði á
milli janúar og febrúar, samkvæmt
mælingum Hagstofunn ar.
Þetta er mikil verðbólga og útlit
fyrir að meira sé í pípunum. Laun
hækkuðu 1. febrúar og verð á ben
síni hefur hækkað jafnt og þétt – og
spáð er frekari hækkunum. Sé hins
vegar litið til verðbólgu síðustu tólf
mánaða mælist hún 6,3%. Verðbólgu
markmið Seðlabankans er 2,5% á
ársgrundvelli.
„Við þurfum væntanlega báðir að sitja á strák
okkar og stilla skap okkar í framhaldinu.“