Frjáls verslun - 01.07.2012, Side 62
62 FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012
Draumastaður
sprotafyrirtækisins
Ásbrú er draumastaður sprotafyrirtækisins og þar eru nú meira en hundrað
fyrirtæki og stofnanir. Þróunarsetrið Eldey, eitt stærsta og glæsilegasta
frumkvöðlasetur landsins, er einnig þar með aðsetur.
Á s b r ú
Að sögn Óla Arnar Eiríkssonar, verkefnastjóra hjá Kadeco, þjónar Þróunarsetrið Eldey frumkvöðlum
og sprotafyrirtækjum, auk starf
andi fyrirtækja sem vilja efla sig
með nýsköpun og vöruþróun:
„Miklar endurbætur hafa staðið
yfir í húsnæðinu í Eldey til að
tryggja að frumkvöðlasetrið bjóði
bestu mögulegu aðstöðu fyrir
frumkvöðla til að stíga sín fyrstu
skref, þróa viðskiptahugmyndir
sínar og koma sprotafyrirtækjum
á legg.
Húsnæðið er í heild 3.300 fer
metrar og skiptist í kennslu og
fyrirlestrarrými, fundaaðstöðu og
skrifstofu og smiðjuaðstöðu fyrir
frumkvöðlafyrirtæki. Þróunarsetrið
er rekið af Heklu, atvinnuþróunar
félagi Suðurnesja, og í dag má
finna þrjátíu fyrirtæki og stofnanir
innan veggja þess.
Á fyrirtækjahótelinu Eldvörp
býðst litlum og meðalstórum fyrir
tækjum flott sameiginleg aðstaða
(fundaherbergi, ráðstefnuher
bergi, kaffistofa, salerni) og sam
vist með öðrum fyrirtækjum.
ásókn í rannsóknarsetur
Iðnfyrirtæki eru að koma til okkar
vegna styrkleika Suðurnesja í
hagnýtingu bæði sjávarfangs og
jarðvarma. Keilir er með rann
sóknarmiðstöð og tækni fræðinám
sem snýr að þessum kjarnasvið
um. Fyrirtæki sækja því bæði
í að komast í rannsóknarsetrið
þeirra og einnig í að geta nýtt sér
nemendur við að rannsaka eða
framkvæma fýsileikakannanir á
þáttum sem liggja kannski fyrir
utan daglegan rekstur.
Nýjasta iðnfyrirtækið sem kemur
hingað á Ásbrú er Málmey sem
sérhæfir sig í smíði á vélum og
búnaði fyrir fiskvinnslufyrirtæki.
Á svæðinu er frábær aðstaða til
ráðstefnuhalds og haldnar hafa
verið nokkrar mikilvægar slíkar
eins og Startup Iceland (sem
var haldin í maí síðastliðnum),
ráðstefna Keilis um flugumferð
og eldgos (haldin árið 2010) og
alþjóðlegar þjálfararáðstefnur
Keilis. Við búum yfir mjög breiðri
línu af húsnæði fyrir ráðstefnur.“
„Fyrirtæki sækja því
bæði í að kom ast í
rannsóknar setr ið
þeirra og einnig í að
geta nýtt sér nem -
end ur við að rann-
saka eða fram kvæma
fýsi leik a kannanir á
þátt um sem liggja
kannski fyrir utan
dagleg an rekstur.“
Óli Örn Eiríksson, verkefnastjóri hjá Kadeco.
stofnár: 2006.
stofnendur: Íslensk stjórnvöld.
viðskiptahugmyndin: Breyta bandarískri varnarstöð í borgaralegt
samfélag á sem skemmstum tíma.
markmið fyrirtækisins: Byggja upp einstakt samfélag frumkvöðla,
fræða og atvinnulífs.
Texti: Hrund Hauksdóttir
ræturnar