Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2012, Side 84

Frjáls verslun - 01.07.2012, Side 84
84 FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012 Bókin Guerilla mark­eting er þekkt nafn í heimi viðskipta­bókmennta. Hún er sögð ein af 100 bestu bókum um viðskipti frá upphafi og hefur selst í yfir 20 milljónum eintaka. Hún hefur verið gefin út á 62 tungumálum og er kennd í MBA­námi víða um heim. Höfundurinn, Jay Conrad Levinson, er væntan­ legur til landsins í október nk. Samkvæmt íslenskri orðabók er skæruliði sá sem á í skæru­ hern aði og skæruhernaður skil ­ greind ur sem sá „hernaður þar sem áhersla er lögð á margar að greindar árásir sem óvinurinn veit aldrei hvar er að vænta“. Skæru hernaður hefur og ekki úr sama fjármagni að moða og hefðbundinn hernaður og því leitar skæruliðinn óhefðbund­ inna leiða til að ná fram mark­ miði sínu. Markaðsmaðurinn sem nýtir sér hugmyndir Guer­ illa marketing er um margt eins og skæruliðinn. Hefur úr minna fjármagni að moða en stóru fyrir tækin sem eyða oft ómældu fjármagni í markaðssetningu og nýtir því óhefðbundnar og fjölbreyttar leiðir sem koma við skiptavinum á óvart og vekja athygli. Markviss, hagkvæm og árangursrík nálgun Bókin Guerilla marketing er af mörgum skilgreind sem mark ­ aðs biblía einyrkja, minni og meðal stórra fyrirtækja. Engu að síður er það svo að fjölmörg stærri fyrirtæki hafa nýtt sér hugmyndafræði skæruliðamark­ aðssetningarinnar og nýtt til þess mikið fjármagn. Höfund ­ ur segir að þó svo að stóru fyrir tækin kaupi bókina ekki í bílförmum megi klárlega sjá merki þess að einhver þeirra nýti hugmyndafræði hennar í sinni markaðsnálgun. Upphaflega var hún þó hugs ­ uð fyrir þá sem vilja ná góðum árangri með lágmarks tilkostn­ aði. Þegar lesin er gagnrýni á nýjustu útgáfu bókarinnar kemur glögglega í ljós að les­ endum finnst hún ekki endilega beina kastljósinu lengur að ódýr um leiðum en engu að síður er að finna í bókinni tíma ­ lausar og klassískar leiðir til að nálgast markaðsmálin á mark ­ vissan, hagkvæman og árang­ urs ríkan hátt. Það er með þessi lögmál eins og önnur, ef þeim er beitt markvisst og stöðugt – þá virka þau. Frá upphafi til enda Nálgun höfundar á markaðsmál er markviss og byrjar á byr­ juninni. Hann skilgreinir um hvað markaðsmál snúast og Samkvæmt ís­ lenskri orðabók er skæruliði sá sem á í skæru hern aði og skæruhernaður skil greind ur sem sá „hernaður þar sem áhersla er lögð á margar að greindar árásir sem óvinur­ inn veit aldrei hvar er að vænta“. Bókin Guerilla Marketing kom út árið 1983 og hefur síðan þá nýst fjölmörg- um fyrirtækj um til að nýta markaðsfjármagnið sem best. Í tilefni af komu höfundar bókarinnar, Jay Conrad Levinson, til Íslands í október er fjallað um þessa klassísku bók í endurbættri útgáfu sem út kom árið 2007. Ein af 100 bestu bókum um viðskipti TexTi: unnur valborG HilmarsdóTTir Unnur Valborg Hilmarsdóttir stjórnendaþjálfari hjá vendum skæruliðA markaðssetninG Höfundar bókarinnar, Jay Conrad Levinson. bækur

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.