Frjáls verslun - 01.04.2013, Blaðsíða 20
20 FRJÁLS VERSLUN 4. 2013
Ný RÍkiSStJóRN
Gustar um ráðherra á Bessastöðum
Það var vindasamt á Bessastöðum þegar ráðherrar úr ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks komu saman til ríkisráðsfundar 23. maí sl. og ríkisstjórn Sigmundar Davíðs tók formlega við
völdum. Forseti Íslands veitti fráfarandi ríkisstjórn lausn frá störfum fyrr um morguninn. Enginn
af nýju ráðherrunum hefur setið í ríkisstjórn áður. Þrír af níu ráðherrum eru konur. Fjórir ráðherr ar
koma úr Framsóknarflokknum en fimm úr Sjálfstæðisflokki.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála og efnahags ráðherra, og Gunnar Bragi
Sveins son utanríkisráðherra fengu lyklana
að ráðuneytum sínum afhenta fljótlega eftir
ríkisráðsfundinn en aðrir ráðherrar fengu
lyklana daginn eftir.
Sigmundur Davíð er yngsti forsætisráð
herr ann í sögu lýðveldisins, 38 ára að aldri,
fæddur 12. mars 1975. Bjarni Benediktsson
er 43 ára, fæddur 26. janúar 1970.
Meðalaldur ráðherra í ríkissstjórn Sigmund
ar Davíðs er 45,9 ár en var 55,3 ár hjá
ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.
Ráðherrar ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs
eru þessir:
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis-
ráðherra.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags-
ráðherra.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra.
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra.
Illugi Gunnarsson, mennta- og menningar-
málaráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra og umhverfis- og
auðlindaráðherra.
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra.
Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðis-
málaráðherra
Sú nýbreytni varð á verkaskiptingu ráðu
neytanna í nýrri ríkisstjórn að hagskýrslu
gerð og upplýsingar um landshagi,
þ.m.t. málefni Hagstofu Íslands, færast
til forsætisráðuneytisins frá fjármála og
efna hagsráðuneytinu. Forsætisráðuneytið
tekur einnig við verkefnum frá mennta og
menningarmálaráðuneyti er varða þjóðmen
ningu. Til fjármála og efnahagsráðuney
tisins flytjast verkefni frá atvinnuvega og
nýsköpunarráðuneytinu er snerta lagaumg
jörð og eftirlit með fjármálamarkaðnum.
hefðbundin mynd á tröppunum fyrir utan bessastaði. það gustaði um ráðherrana; það blæs á toppnum.