Frjáls verslun - 01.04.2013, Blaðsíða 34
34 FRJÁLS VERSLUN 4. 2013
SkoðUN
þau Hafa orðið
Hlutabréf í kauphöllum helstu landa greinast í tvennt um mitt ár 2013.
Leiðandi eru hlutabréf á Wall
Street og í Þýskalandi auk
smærri kauphalla í Asíu og
Mexí kó en Indland og Bretland
fylgja á eftir. Lækkun og jafn vel
langvarandi lækkun er ríkj andi í
stórum kauphöllum í evru lönd
um svo sem á Spáni og Ítalíu og
í Frakklandi en einnig í Japan,
Kína, Brasilíu, Kanada og Rúss
landi. Í fyrstnefndu kauphöll un
um hafa hlutabréf brotist upp
úr 13 ára löngum flötum ferli og
náð hærri hágildum en árin 2007
og 2000. Bretland og Indland
eru nálægt þeim áfanga en í síð
asttöldu kauphöllunum er verð á
hlutabréfum mun lægra en 2007.
Þrátt fyrir 70% hækkun Nikkei í
Tókýó frá nóvember 2012 til apríl
2012 eru hlutabréf þar enn 30%
ódýrari en 2007.“
Sigurður B. Stefánsson segir
að lækkandi verð á hrávörum
og veikt gengi gjaldmiðla í
ríkjum sem háð eru hrávöruút
flutningi séu ein helsta skýringin
á þess ari misvísun í framvindu
milli helstu kauphalla um mitt
ár 2013. Hann segir að dræm
eftirspurn eftir hrávörum viti ekki
á gott í heimsbúskapnum og
eigi rætur í hægum hagvexti og
jafnvel samdrætti. Seðlabankar
iðnríkjanna keppast við að auka
peningamagn í umferð af ótta
við nýtt skeið verðhjöðnunar
og enn rýrari hagvöxt og meira
atvinnuleysi.
„Núverandi hækkunarleggur
á Wall Street og uppbrot yfir
hágildið 2007 getur naumast
orðið langvarandi nema til komi
hækkandi verð á hrávörum og
aukinn hagnaður fyrirtækja í
hrávörulöndum og greinum.
Bandaríkin eru í hlutverki eim
reiðar í heimsbúskapunum árið
2013 en mikilvægt er að úr
rætist í þjóðarbúskap hægfara
Evrópuríkja og Asíuríkja þar sem
hægt hefur á hagvexti.“
lækkandi hrávöruverð
vekur ugg
siGuRðuR B. sTefÁnsson
– sjóðstjóri hjá eignastýringu landsbankans
ERLEND
HLUTABRÉF
Fasteignamarkaðurinn er á svipuðu róli og hann hefur verið það sem af er ári,“ segir Ingibjörg
Þórðardóttir. „Að mati margra
fasteignasala hefur fólk verið að
bíða eftir því hvernig ríkisstjórnin
hygðist meðhöndla stökkbreytt
húsnæðislán sem eru vísitölu
tryggð. Forsætisráðherra hefur
nú sagt að fasteignaeigendur
þurfi ekki að hafa áhyggjur af því
að missa af leiðréttingu lána þó
svo að þeir selji húsnæði sitt og
er það mjög jákvætt gagnvart
húsnæðismarkaðnum.“
Ingibjörg segir að verð á hús
næði hafi almennt staðið í stað
á árinu og ekki hækkað. „Hins
vegar tel ég að um leið og línur
fara að skýrast um hvernig lána
leiðréttingar verðryggðra lána
fari fram og eins málefni ÍLS,
þannig að sjóðnum verði gert
kleift að bjóða upp á önnur lán
en verðtryggð, muni það hafa
góð áhrif á fasteignamarkaðinn.
Ekki verður þó séð að verð
hækki mikið en þetta mun hjálpa
fasteignamarkaðnum að komast
í nokkuð eðlilegt horf og um leið
mörgum öðrum atvinnugreinum,
en gríðarlega mörg störf tengjast
fasteignamarkaðnum. Umtalsvert
af nýbyggingingarframkvæmd
um er nú í gangi og byggingar
verktakar ólíkt því sem hefur
verið undanfarin ár bjartsýnni en
áður á að markaður sé fyrir hendi
fyrir eignirnar. Almennt eru menn
orðnir bjartsýnni á að húsnæðis
markaðurinn sé á leið til mun
betri vegar því mikil uppsöfnuð
þörf er fyrir hendi bæði fyrir
kaupendur og seljendur, en brýnt
er þá eins og ég nefndi hér að
framan að leysa úr óvissu.“ á svipuðu róli
inGiBjöRG ÞÓRðaRDÓTTiR,
– formaður félags fasteignasala
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
Dow Jones síðustu tólf mánuðina
ÁRelÍa eyDÍs GuðmunDsDÓTTiR
– dósent við viðskiptafræðideild
HÍ og ráðgjafi
STJÓRNUN
Árelía Eydís Guðmundsdóttir bendir á að konum hafi fjölgað í stjórnum
undan farið og sérstaklega síðan
á aðalfundum fyrirtækja í vor og
tengist það lögum um kynjahlut
föll í stjórnum sem taka gildi 1.
september.
„Það verður gaman að sjá
áhrifin af því en almennu áhrifin
ættu að koma fram á næstu
þrem ur árum eða hér um bil.
Flestöll fyrirtæki eru búin að
skipa konur í stjórn en það eru
um þrjú hundruð konur í stjórn
um íslenskra fyrirtækja og svo
eru alltaf sumar konur í fleiri en
einni stjórn. Við munum sjá eftir
ákveðinn tíma þessi áhrif fjöl
breytni í stjórnun,“ segir Árelía
og bendir á að í Bandaríkjunum
t.d. sé lögð áhersla á fjölbreytni út
frá öðrum sjónarhornum en hér.
„Þeir leggja áherslu á fjölbreytni
í stjórnum og eru það þættir
eins og til dæmis bakgrunn ur,
ólík menntun og þekking, kyn
þátt ur og fulltrúar mismunandi
atvinnugreina.
Við sem Íslendingar þurfum að
vera opin fyrir því að fá útlend
inga í stjórnir. Fjölbreytni er ekki
bara út frá jafnrétti heldur skiptir
máli að fá ólíka sýn, reynslu
og þekkingu. Það er t.d. kona í
stjórn Íslandsbanka sem er með
tengslanet erlendis og hefur þar
af leiðandi aðra sýn og kemur
inn með nýja stjórnarhætti.“
Erlendir aðilar í stjórnum
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Markmið Landsbankans er að veita viðskiptavinum bestu
mögulegu þjónustu. Bankaviðskipti eiga að vera ánægjuleg
og byggjast á trausti og skilningi. Við erum stolt af því að
vera með ánægðustu viðskiptavini meðal fjármálafyrirtækja.
Kynntu þér þjónustu Landsbankans. Við tökum vel á móti þér.
„Starfsfólk bankans
reyndist mér vel,
það gaf sér tíma.“
Þorvaldur Helgi Auðunsson
Viðskiptavinur Landsbankans
J
ó
n
s
s
o
n
&
L
e
’m
a
c
k
s
•
jl
.i
s
•
s
Ía