Frjáls verslun - 01.04.2013, Blaðsíða 102
102 FRJÁLS VERSLUN 4. 2013
Þrátt fyrir að margt hafi áunnist í jafn réttisbaráttu undan farinna ára tuga eigum við langt í land með
að ná fram jöfnum rétti karla og
kvenna á ótalmörgum sviðum.
Af 195 sjálfstæðum ríkjum í
heiminum er aðeins 17 stjórn
að af konum. Á heimsvísu eru
aðeins 20% þingmanna konur.
Í viðskiptalífinu er hlutur kvenna
að sama skapi rýr, 4% forstjóra
Fortune 500fyrirtækjanna í
Bandaríkjunum eru konur og
aðeins 14% framkvæmdastjóra
sömu fyrirtækja eru konur. Þá er
óræddur launamunur kynjanna
sem lítið hefur breyst í áratugi.
Sheryl Sandberg, fram
kvæmda stjóri Facebook, gerir
þessa uggvænlegu stöðu kvenna
að yrkisefni í nýútkominni bók
sinni Lean In og leggur höfuð
áherslu á hvað konur geta gert
til að breyta henni. Því eins og
fram kemur í bókinni þýðir þessi
skarði hlutur kvenna að þegar
teknar eru ákvarðanir sem varða
okkur öll heyrast raddir kvenna
ekki til jafns við raddir karla.
„Hvað myndir þú gera ef þú
værir óhrædd“ er spurningin
sem Sheryl vill spyrja konur til
að hvetja þær til að að opna
augun fyrir því hvers þær eru
megnugar ef óttanum er ýtt til
hliðar. Hún hvetur konur til að
beina kastljósinu að því hvað
þær geta gert til að breyta
stöðu sinni í stað þess að ein
blína á það sem þær geta ekki.
Megintilgangur bókarinnar er
að hvetja konur til þess að láta
vaða þegar til áhrifa kemur á
hverju því sviði sem þær kjósa
að láta til sín taka á og ef þær
vilja á annað borð láta að sér
kveða.
En hvernig?
Aðalsmerki bókarinnar eru ráð
Sheryl um hvernig konur eiga
að komast til áhrifa. Þessi ráð
dregur hún saman í nokkur lykil
atriði sem í grunninn eru þau
sömu og hún fjallaði um í erindi
sínu á TEDráðstefnu árið 2010.
Erindið varð kveikjan að bókinni
en það fór eins og eldur í sinu
um heiminn þegar það var birt
á vefsíðunni TED.com. Ráðin
sem hún gefur eru í raun lexíur
sem hún hefur lært á sínum
farsæla ferli sem stjórnandi en
í bókinni segir hún ófáar sögur
af sigrum og mistökum sínum
og annarra. Þótt megininn
tak bókarinnar sé það sama
og í erindinu á TED er farið
mun dýpra í efnið í bókinni og
fleiri efnisþættir teknir með í
reikning inn.
Sæti við borðið
Það fyrsta sem Sheryl nefnir
sem konur þurfa að gera til að
auka líkur á að þær komist til
áhrifa er að taka sér sæti við
borðið. Alltof oft halda konur sig
til baka, efast um ágæti sitt og
eigna árangur sinn utanaðkom
andi þáttum. Tekin eru skemmti
leg dæmi um það í bókinni
hvernig karlar eiga auðveldara
með að trana sér fram, efast
síður um eigið ágæti og eigna
eigin getu árangur sinn. Sömu
leiðis sýna rannsóknir að konur
dæma sína frammistöðu oft
lakari en hún raunverulega er á
meðan karlar meta sína frammi
stöðu gjarnan betri en raunveru
leikinn segir til um.
Ekki fara fyrr en þú ferð
Annað ráð sem Sheryl gefur kon
um er að pakka ekki fyrr en að
ferðalaginu er komið. Hún hafi
á sínum ferli alltof oft rekist á
konur sem við það eitt að íhuga
barneignir fara að hika við að
taka að sér krefjandi verkefni,
jafnvel hafna stöðuhækkunum
eða flutningi í starfi. Þetta geri
Unnur Valborg Hilmarsdóttir
stjórnendaþjálfari hjá vendum
„Sheryl Sandberg,
fram kvæmda stjóri
Facebook, gerir þessa
uggvænlegu stöðu
kvenna að yrkisefni
í nýútkominni bók
sinni Lean In og
legg ur höfuð áherslu
á hvað konur geta
gert til að breyta
henni.“
bækUR
Um konur, vinnuna og viljann til að vera í forystu. Af 195 sjálfstæðum
ríkjum í heiminum er aðeins 17 stjórnað af konum. Á heimsvísu eru aðeins 20%
þingmanna konur. „Hvað myndir þú gera ef þú værir óhrædd“ er spurningin
sem Sheryl Sandberg, framkvæmdastjóri Facebook, spyr konur í bókinni Lean
In til að hvetja þær til að sjá tækifærin.
Bókin Lean in:
konur – látið vaða!