Frjáls verslun - 01.04.2013, Blaðsíða 143
FRJÁLS VERSLUN 4. 2013 143
feng um við þriðja aðila til að
votta það sem við vissum vel
– að kynbundinn launamunur
fyrirfinnst ekki í fyrirtækinu.
Í okkar huga er ekki flókið að
tryggja jöfn laun milli kynja,
þetta er bara spurning um að
marka stefnuna og framfylgja
henni.“
Fullt nafn: Vala Valtýsdóttir
Staða: Eigandi og sviðsstjóri
skatta- og lögfræðisviðs
Starfsaldur hjá Deloitte: Sex ár
menntun: Lögfræðingur
– cand. jur.
Fjölskylda: Eiginmaður er gísli
óskarsson, sonur Valtýr, 22 ára,
og dóttir kolbrún klara, 20 ára,
tvær stjúpdætur, þær maría Vera,
30 ára, og Sandra björk, 29 árs,
og eitt barnabarn
Áhugamál: golf, fótbolti,
handbolti og aðrar íþróttir og
ferðalög og samvera með fjöl -
skyldu og vinum
Nú hafa verið sett lög um
kynja hlutföll í stjórnun hluta fé -
laga, hver er þín skoðun á því?
„Til langs tíma og í raun allt
þar til ákvæði um kynjahlutföll
voru sett í lög voru stjórnir í
hlutafélögum nær eingöngu
skipaðar karlmönnum.
Stundum eru því miður
aðstæður þannig að setja þarf
í lög ákvæði til að stuðla að
breyttum viðhorfum. Dæmi
um slíkt eru einmitt umrædd
ákvæði þannig að ég tel að
þarna hafi verið nauðsynlegt
að bregðast við, að minnsta
kosti tímabundið, til að brjóta
gamaldags hefðir við skipun
í stjórnir hlutafélaga. Vonandi
verður ekki til framtíðar nauð
synlegt að hafa slík ákvæði.“
Fullt nafn: Pálína Árnadóttir
Staða: Eigandi og yfirmaður
endurskoðunar
Starfsaldur hjá Deloitte: 13 ár
menntun: Löggiltur
endurskoðandi
Fjölskylda: Eiginmaður er Jóel
Svanbergsson, börnin karen ýr,
20 ára, adam Jens, 17 ára, og
Svanberg Leó, 8 mánaða, einn
uppkominn stjúpsonur, ketill
Sigurður, og eitt barnabarn
Áhugamál: Fjölskyldan, útivera,
ferðalög, hreyfing
Nú ert þú að koma til baka úr
fæðingarorlofi, hvernig stendur
Deloitte sig í því að aðstoða
starfsmenn við að samræma
vinnu og einkalíf?
„Ég tel að Deloitte standi sig
mjög vel í að koma til móts
við starfsmenn sem eru í fæð
ingarorlofi. Bæði geta starfs
menn skipt orlofinu eftir því
sem hverjum hentar og eins
er hægt að óska eftir lengra
fríi eftir að fæðingarorlofinu
lýkur. Þá er sveigjanleikinn í
vinn unni mikill og möguleiki
er á að vinna hlutastarf eftir að
orlofinu lýkur og/eða að hluti
vinnunnar sé unninn að heiman.
Sveigjanleikinn er lykilatriði
því þarfir starfs manna eru
mismunandi og er kom ið til
móts við konur eins og kostur er
á þessu tímabili hjá Deloitte.“
Fullt nafn: Sif Einarsdóttir
Staða: Eigandi og yfirmaður innri
endurskoðunar
Starfsaldur hjá Deloitte: 18 ár
menntun: Löggiltur endurskoðandi
Fjölskylda: Eiginmaður er
Ragnar Sverrisson og börnin
auður, 15 ára, geir, 11 ára, og
Lára kristín, 5 ára
Áhugamál: börnin mín, dagleg
hreyfing, handavinna, skriftir,
félagsstörf, tónlist og íslensk
náttúra. mesta stoð mín og stytta
er síðan maðurinn minn
býður Deloitte upp á þjónustu
fyrir fyrirtæki sem vilja bæta
ímynd sína og orðspor, bæði út
á við og inn á við?
„Hjá Deloitte hef ég undan
far in ár leitt þjónustu á sviði
innri endurskoðunar og innra
eftirlits, auk stjórnar hátta og
þjónustu við endur skoðunar
nefndir. Einn angi af þessari
þjónustu er einnig sam félags
ábyrgð fyrirtækja sem menn gefa
sífellt meiri gaum. Íslensk fyrir
tæki eru stöðugt að sýna góð um
stjórnarháttum meiri áhuga og
hafa fengið aðstoð okkar við að
fá vottun sem „fyrir myndar
fyrirtæki í stjórnar háttum“.
Fullt nafn: anna birgitta
geirfinnsdóttir
Staða: Eigandi og útibússtjóri
Deloitte í Reykjanesbæ
Starfsaldur hjá Deloitte: 20 ár
menntun: Löggiltur
endurskoðandi
Fjölskylda: Eiginmaður er Ívar
Valbergsson og börnin Finnur
guðberg, 9 ára, og guðbjörg
Sofie, 5 ára
Áhugamál: mestan áhuga á
fjölskyldunni og ferðalögum bæði
innanlands og erlendis.
Í fyrsta sinn í ár voru fleiri
konur hjá Deloitte sem luku
löggildingarprófi í endurskoðun
en karlar. hverju þakkar þú
þann árangur?
„Ég held að það megi fyrst
og fremst þakka því átaki
sem mannauðsstjóri réðst í
hér innanhúss fyrir nokkrum
misserum. Það skilaði þeim
árangri að í fyrsta skipti í fyrra
voru fleiri konur en karlar
á okkar vegum próftakar.
Hlutu þrír frá Deloitte lög
gildingu í fyrra og voru konur
í meirihluta í fyrsta sinn.
Í tengslum við þetta átak
kom umst við að því að það
er þrennt sem skiptir máli
til að árangur náist; viðhorf
kvennanna sjálfra, stuðningur
vinnustaðarins og stuðningur
heima fyrir. Við fórum því að
vinna með alla þessa þætti og
það hefur skilað árangri. Ég veit
af eigin raun að það er ekki létt
að fara í gegnum löggildingar
próf en með góðum stuðningi
eru allir vegir færir.“
„Ég tel að Deloitte
standi sig mjög vel í
að koma til móts við
starfsmenn sem eru
í fæð ingar orlofi.“
„Hjá Deloitte hef
ég undan far in ár
leitt þjónustu á
sviði innri endur
skoð unar og innra
eftir lits, auk stjórn
ar hátta og þjónustu
við endur skoðunar
nefndir.“