Frjáls verslun - 01.04.2013, Blaðsíða 145
FRJÁLS VERSLUN 4. 2013 145
mark aðinum. Á sama tíma og
markaðshlutdeild félags ins
hefur nær tvöfaldast og rekstur
þess styrkst gríðarlega hefur
félagið nú skilað eigendum
sínum vaxandi hagnaði síðustu
fjögur árin. Félagið er komið
í hóp 100 stærstu fyrirtækja
landsins og er númer 40 á lista
yfir Framúrskarandi fyrirtæki
ársins 2012. Hjá félaginu eru
yfir 30.000 viðskipta vinir og er
félagið með um 11% af heildar
iðgjöldum á vátrygginga markað
inum. Af þessum árangri erum
við ákaflega stoltar.“
hvaða árangur eru þið ánægð-
astar með innan Varðar að
undanförnu?
„Við erum að sjálfsögðu
mjög ánægðar með þann við
snúning sem hefur orðið á
rekstri félagsins en það eru ekki
mörg ár síðan félagið var rekið
með miklu tapi. Tekist hefur
að koma á fót öflugu félagi
sem veitir þremur rótgrónum
vátryggingafélögum verðuga
samkeppni. Með hverju árinu
verðum við sterkari, ekki
bara fjárhagslega, heldur sýna
mælingar að ímynd félagsins
er góð og að okkar mati er ljóst
að félagið á enn góð sóknarfæri
á markaðinum. Við erum
minnsta félagið á markaðinum,
og vorum óþekkta félagið, en
með miklum vilja og metnaði
hefur starfsfólkinu tekist að
byggja upp öflugt fyrirtæki
á aðeins fáeinum árum. Við
erum mjög stoltar af þátttöku
okkar í þessu starfi. Við erum
líka ákaflega stoltar af því að
viðskiptavinir félagsins séu
meðal þeirra ánægðustu á
markaðinum. Það segir meira
en þúsund orð um árangurinn
sem náðst hefur.“
hvernig metið þið vænt ing arn ar
í atvinnulífinu eftir kosningar?
„Það er gríðarlega mikilvægt
að hin margumræddu „hjól
atvinnulífsins“ fari að snúast
hraðar. Væntingarnar um betri
tíma eru til staðar en það er
mikilvægt að við förum að sjá
breytingar á rekstrarumhverfi
fyrirtækja. Hækkun skatta
almennt og álagning sérstaks
fjársýsluskatts hefur haft
íþyngjandi áhrif á rekstur
Varðar og lagt stein í götu
okkar þegar kemur að vexti
og mannaráðningum. Við
kjós um hins vegar að horfa til
framtíðar og teljum að fram
undan séu bjartari tímar fyrir
atvinnulífið.“
hvernig er staðan hjá Verði
varðandi lögin um kynja hlut-
föll í stjórn sem taka gildi 1.
september nk.?
„Vörður uppfyllir þegar
ákvæði nýrra laga um kynja
hlutföll í stjórnum fyrir
tækja sem taka gildi hinn 1.
september nk. Í stjórn félags
ins eru fimm, þar af tvær
kon ur. Stjórnin er skipuð
þeim Guðrúnu Blöndal og
Mört hu Eiríksdóttur, Jóni
Björnssyni, Jens Erik Christ en
sen og Janus Petersen. Jafn
framt er jafnt kynjahlutfall
í fram kvæmdastjórn félags
ins þar sem eiga sæti þrjár
konur og þrír karlar. Fram
kvæmdastjórnina skipa auk
okkar þriggja þeir Guðmundur
Jóhann Jónsson, forstjóri,
Sigurður Óli Kolbeinsson,
fram kvæmdastjóri vátrygginga
sviðs, og Atli Örn Jónsson,
framkvæmdastjóri sölu og
þjónustusviðs.
Einnig má til gamans geta
að kynjaskipting meðal þeirra
70 starfsmanna sem fastráðnir
eru hjá félaginu er hnífjöfn
sem er í raun ekkert annað en
skemmtileg tilviljun. Það verð
ur samt ekki annað sagt en að
jafnræðið sé í hávegum haft hjá
Verði.“
Er Vörður með sérstaka form -
lega jafnlaunastefnu?
„Vörður er með formlega
jafnréttisstefnu en innan
hennar er sérstaklega tekið á
launajafnrétti. Það er markmið
okkar að konur og karlar
njóti sömu launakjara fyrir
jafnverðmæt og sambærileg
störf. Til að framfylgja þessu
hefur félagið nýlega látið
framkvæma jafnlaunaúttekt
í samvinnu við PWC og
erum við gríðarlega stoltar
af þeim niðurstöðum sem
hún gaf. Þar fékkst staðfest
að laun karla og kvenna
eru mjög jöfn hjá félaginu.
Niður stöður úttektarinnar
voru jákvæðar með tilliti til
sögulegs launamismunar
karla og kvenna því þar kom
fram að heildarlaun kvenna
hjá félaginu væru 2% hærri
en heildarlaun karla þegar
búið var að taka tillit til áhrifa
vegna aldurs, starfsaldurs,
menntunar, starfshóps, stöðu í
skipuriti og vinnustunda eins
og gert er í þessum úttektum.
Slíkar niðurstöður staðfesta að
fyrirtækið greiðir jöfn laun fyrir
jafnverðmæt störf. Þetta eru
okkur gríðarlega mikilvægar
niðurstöður því þær segja
töluvert til um stöðu þessara
mála hjá fyrirtækinu og eru til
þess fallnar að laða að hæfasta
starfsfólkið og stuðla að jákvæðri
ímynd fyrirtækisins.“
„Samkvæmt
nýlegri úttekt PWC
greiðir Vörður jöfn
laun fyrir jafn
verðmæt störf sem
við erum mjög
stoltar af í ljósi
sögulegs launa
munar kynjanna.“