Frjáls verslun - 01.04.2013, Blaðsíða 12
12 FRJÁLS VERSLUN 4. 2013
Verður hún næsti forsætisráðherra Noregs? Já, er spá flestra sem spurðir
eru. Þó eru mörg ljón á veginum áður en kona verður á ný æðstráðandi í Noregi.
Þó er núna bara ein kona sem kemur til greina og hún heitir Erna Solberg.
ný landsmóðir?
Á tímabili kölluðu blaðamenn hana JárnErnu og líktu henni þar við Járnfrúna Margaret
Thatcher í Bretlandi. Þessi ímynd
er horfin og núna er fullyrt að
Erna sé farin að máta sig í
for sætisráðherrastólinn sem
full trú sanngirni og sátta. Hún
er hætt að deila hart og halda
fram umdeildum skoðunum. Er
ný landsmóðir að búa sig undir
hlutverk sitt? Samaburður við
Gró Harlem Brundtland er óhjá
kvæmilegur.
Erna Solberg er 52 ára gömul.
Engu að síður hefur hún verið
þingmaður frá árinu 1989 eða í
nær aldarfjóðrung. Fáir búa að
svo langri þingreynslu. Hún er
hægrikona, og hefur verið for
maður Hægri, hins gamla hóf
sama íhaldsflokks Norðmanna,
frá árinu 2004 eða í níu ár. Hún
var jafnframt ráðherra sveitar
stjórnarmála eitt kjörtímabil árin
2001 til 2005 þegar Kjell Magne
Bondevik var forsætisráðherra.
Ernu verður því ekki borið
reynslu leysið á brýn. Og engum
dettur í hug að segja að hún
geti ekki stýrt landinu. Verra
er að ná samkomulagi við alla
þá flokka sem hafa raðað sér
á hægri væng stjórnmálanna.
Í því efni er staða flokkanna
önnur en er á Íslandi.
Sundrung
Ýmsar sögulegar ástæður liggja
til þess að fylgi landsmanna
skiptist á átta stjórnmálaflokka.
Það af eru fjórir á hægrivængn
um; gjarnan kallaðir borgarlegir
flokkar. Það verður að semja við
marga flokka til að ná meirihluta
fylgi að baki ríkisstjórn.
Og innan þessa flokkahóps
gildi hið fornkveðna að frændur
eru frændum vestir. Stefna
borgara flokkanna fjögurra er um
margt lík en áherslur í einstök
um atriðum mjög ólíkar. Sama
ástand og klofningur var á
vinstrivængum þar til sátt náðist
fyrir kosnignar 2005. Ágreinings
málin voru lögð til hliðar og
boðið fram með það að mark
miði að mynda ríkisstjórn undir
forsæti Jens Stoltenberg. Sú
stjórn hefur setið síðan.
En meðal borgaraflokkanna
hefur ekki náðst hliðstætt sam
konulag. Ósættið fer þvert á móti
vaxandi nú þegar líður að kosn
ingum 9. september í haust.
Þarna reynir á forystuhæfileika
Ernu Solberg. Nær húin að
sameina krafta allra borgara legu
flokkanna að baki sér? Þetta
snýst ekki bara um pólitík heldur
og um persónulega eiginleika
formannsins. JárnErna hefur
skipt um stíl og er nú orðinn
mannasættir.
Lesblindur leiðtogi
Erna er fædd í Bergen árið 1961,
dóttir dæmigerðs miðstéttar fólks.
Faðir hennar vann á skrifstof
unni hjá strætisvögnum borgar
innar og móðirin vann líka á
skrifstofu. Námsárin voru fremur
erfið því það uppgötvaðist ekki
fyrr er Erna var orðin 16 ára að
hún var lesblind. Engu að síður
lauk hún öllum prófum og er
með háskólagráðu í stjórnmála
fræði.
Og eins og oft er með lesblint
fólk á hún létt með að koma
fyrir sig orði – hinu talaða orði
en skrifar minna. Þetta kann að
vera ein ástæða þess viðurnefn
ið JárnErna festist á tímabili
við hana. Erna þótti snörp í um
ræðuþáttum í sjónvarpi þegar
öðrum vafðist tunga um tönn.
Allt frá því Erna kom fyrst á
þing 28 ára gömul hefur hún
reynt að breyta ásýnd flokksins.
Hún hefur viljað gera flokkinn
alþýðlegri og draga úr helstu
íhaldseinkennum.
Sögulega séð hefur Hægri
verið flokkur kaupskipaútgerða
og embættismanna – flokkur
góðborgara. Áratugum saman
á liðinni öld var flokkurinn utan
ríkisstjórna og náði ekki að
sam eina borgaralegt fylgi að
baki sér, ólíkt því sem var með
frjáls lynda hægriflokka í Evrópu.
Útivinnandi móðir
Erna hefur markvisst unnið að þvi
að höfða almennt til mið stéttar
fólks. Hún er sjálf dæmigerð fyrir
útivinnandi móður. Einu sinni
var hún spurð um þrif á heimil
inu. Hún sagðist láta næga að
setja salmíak í skál þegar gestir
kæmu. Þá ilmaði allt af hrein
læti! Þetta þótti hneykslnanlegt
á betri heimilum. Hefur hún
engar vinnukonur?!
Nei, vinnukonur eru bara á
heimilum stórútgerðarmanna og
forstjóra. Hins vegar hefur eigin
maður Ernu, Sindre Finnes,
fengið viðkurkenningu sem
„karlmaður ársins“ fyrir framlag
sitt til heimilsiverka. Svona er
líf venjulegra borgara. Þau eiga
tvö börn.
Allt er þetta mikilvægt til að
eyða hinum gamla íhaldsbrag
á flokknum. Hin fjölmenna milli
stétt hefur leitað til annrra flokka
og jafnvel yfir til Verkamanna
flokksins. Markmið Ernu er að
ná þessu fylgi heim og henni
hefur miðað vel.
Á leið til sigurs
Skoðanakannanir síðustu mán
uði benda til að áætlun Ernu
muni heppnast. Fylgi Hægri er
komið yfir 30 prósent að jafnaði.
Það er meira en tvöfalt fylgi á
við það sem var þegar hún tók
við. Fólk laðast að flokknum
vegna þess að yfirstéttarbrag
urinn hvarf með Ernu.
Jafnframt þykir Erna hafa
mild að málflutning sinn. Ljóst er
samt að hún fylgir hinu „nor
ræna módeli“ í efnahagsmálum.
Boðar einhverjar skattalækkanir
en jafnframt mikla aðhalds
stefnu í ríkisfjármálum. Vel
ferðar kerfið verður hins vegar
látið standa óhreyft.
Erna Solberg er líklegust til að verða
næsti forsætisráðherra Noregs:
TexTi: Gísli KrisTjánsson.
ERNa SoLbERg
„Fólk laðast að flokknum vegna þess að
yfirstéttarbragurinn hvarf með Ernu.“
Erna Solberg hefur leitast við að laða venjulegt fólk að hægriflokknum.
Fáðu svarið með Stjörnur.is appinu
„Hvar er næsti veitingastaður?“
118
Í krafti