Frjáls verslun - 01.04.2013, Blaðsíða 129
FRJÁLS VERSLUN 4. 2013 129
Nafn: Ragnhildur geirsdóttir
aldur: 41 árs
menntun: CS í vélaverkfræði,
mS í iðnaðarverkfræði og mS í
viðskiptafræði
hjúskaparstaða: gift Ágústi
þorbjörnssyni rekstrarráðgjafa og
eigum saman tvö börn, eins og
fjögurra ára. Ágúst á til viðbótar
tvo syni, 18 og 21 árs
tómstundir: Útivist og hreyfing
eins og skíði, hjólreiðar,
gönguferðir og hlaup
Sumarfríið: Útilegur og
sumarbústaðurinn í húsafelli.
Stórfjölskyldan fer svo saman til
Spánar
bankaráð Landsbankans:
tryggvi Pálsson formaður, Eva
Sóley guðbjörnsdóttir, Danielle
Pamela Neben, helga björk
Eiríksdóttir, Jón Sigurðsson,
kristján Davíðsson og þórdís
ingadóttir
séu bæði konur og karlar.“ Í
framkvæmdastjórn bankans
sitja sjö framkvæmdastjórar
auk bankastjóra og eru fjórir af
framkvæmdastjórunum konur.
Varðandi stjórnarhætti innan
bankans segir Ragnhildur
að lögð sé mikil áhersla á að
viðhafðir séu góðir stjórnar
hætt ir. „Í bankakerfinu er mikið
regluverk sem þarf að fara
eftir og auðvitað skapar það
ákveðinn ramma.“
góð yfirsýn
Ragnhildur segir að sem
stjórn andi leggi hún áherslu
á að virkja sem best fólkið í
kringum sig og að hafa góða
yfirsýn. „Lykilatriði í stjórnun
er samvinna við fólkið sem
maður er að vinna með. Það er
mikilvægt að vera með góða
stjórnendur sem eru traustir,
framtakssamir og hafa skýra
sýn á þau viðfangsefni sem þeir
eru að vinna að. Það er mitt
verk efni að móta stefnuna og
koma verkefnum í ákveðinn
farveg.“
Sjálf er hún með ung börn og
í kröfuhörðu starfi. „Mér finnst
ánægjulegt að það eru talsvert
margar konur, bæði ungar og
eldri, sem eru orðnar áberandi í
íslensku atvinnulífi. Ég held að
fyrir margar konur snúist þetta
um samspil vinnu og einkalífs,
sérstaklega þegar börnin koma
til sögunnar. Með aukinni
sam vinnu á heimilinu held ég
að staða kynjanna muni smám
saman jafnast.“
Margt öflugt og gott
Ragnhildur segir að tækifærin
í bankakerfinu til að hagræða
séu talsverð. „Það hefur
verið nokkuð til umræðu
að bankakerfið á Íslandi sé
of dýrt og ég held að það sé
eitt hvað til í því. Það felast
tæki færi í að einfalda ferla og
nýta tæknina enn betur. Svo
þarf einfaldlega að minnka
sóun, í hvaða formi sem hún
er. Það eru ákveðin tækifæri
fyrir bankana að vinna saman
á þessu sviði og hefur það m.a.
verið gert í gegnum Reiknistofu
bankanna og Auðkenni.
Ísland er það lítið land að við
ættum að sjá tækifæri í því að
vinna sam eiginlega að aukinni
hag ræðingu og vera með vel
rekna banka á alþjóðavísu.
Það þarf að passa upp á að
bönk unum verði ekki settar of
miklar skorður á þessu sviði af
samkeppnissjónarmiðum því
góður rekstur ætti á endanum
að skila sér í betri þjónustu og
kjörum til viðskiptavinanna.“
Breytt hugarfar
Ragnhildur telur að horfurnar
eftir kosningar séu góðar. „Ég
er ánægð með þá jákvæðni sem
forystumenn stjórnarflokkanna
boða svo sem varðandi aukna
samvinnu í stjórnmálum.
Maður skynjar breytt hugarfar
í stjórnmálunum og ég vil sjá
í auknum mæli að fólk vinni
sam an að góðum hugmyndum.
Svo kemur í ljós hvernig nýrri
ríkisstjórn gengur að fram
kvæma það sem hún hefur
boðað.“
Ragnhildur geirsdóttir.