Frjáls verslun - 01.04.2013, Blaðsíða 56
56 FRJÁLS VERSLUN 4. 2013
Í byrjun árs komst sprotafyrirtækið Skema á lista tímaritsins Forbes yfir þau tíu sprotafyrirtæki sem vert væri að fylgjast með árið
2013 og talsverðrar eftirvænt
ingar hefur orðið vart í íslenska
sprotaheiminum vegna þeirra
tækifæra sem Skema er talið
standa frammi fyrir. Þá hefur
kraftur og áræði frumherjans
Rakelar Sölvadóttur vakið mikla
athygli.
Skema sérhæfir sig í kennslu
og rannsóknum, með sálfræði,
kennslufræði og tölvunarfræði
að leiðarljósi. Skema stendur
fyrir námskeiðum fyrir ungt fólk
í leikjaforritun og hyggst stuðla
að því að kennsla í forritun verði
í boði í grunn og framhalds
skólum landsins auk þess að
rann saka þau áhrif sem kennsla
í forritun hefur á ýmsa þætti
þroska og námsgetu barna.
Segja má að aðferðafræði
Skema sé studd af rannsóknum
á sviði sálfræði, kennslufræði
og tölvunarfræði og hefur það
áhuga verða markmið að kenna
ungu fólki frá sex ára aldri að
forrita.
Rakel hefur gert víðreist
undanfarið og kynnt drög að
viðskiptamódeli sínu á Banda
ríkjamarkaði undir merkjum
reKode Education. Einnig kynnti
hún verkefnið fyrir fjárfestum á
Seed Forumráðstefnunni hér
í Reykjavík í apríl síðastliðnum
þar sem hún vakti talsverða
athygli. Rakel hefur sömuleiðis
kynnt viðskiptahugmyndina á
ráðstefnum bæði í New York og
San Francisco og nú hefur verið
tekin ákvörðun um að hefja
starfsemi vestanhafs síðar á
þessu ári, nánar tiltekið í Red
mond í Washingtonríki.
Viðræður við bandaríska
fjárfesta
„Við höfum verið í viðræðum
við fjárfesta úti í Bandaríkjunum
og ég er bjartsýn á að þær fái
jákvæða niðurstöðu. Það er því
allt útlit fyrir að við tökum inn
erlenda fjárfesta og setjum upp
höfuðstöðvar í Bandaríkjunum.
Þetta er ekki alveg eins og ég
hafði hugsað mér en svona
er þetta. Eins og er ástatt hér
heima núna er einfaldlega ekki
hægt að fá erlenda fjárfesta
til þess að fjárfesta í félagi á
Íslandi. Þess vegna verðum við
að setja félagið upp í Bandaríkj
unum,“ segir Rakel en hún
flytur út með fjölskyldu sína 16.
ágúst næstkomandi. Einnig
er unnið að því að koma upp
starfsstöðvum í Kaupmanna höfn
og Slóveníu auk þess sem aðilar
í Bretlandi eru áhuga samir.
Það kom fram hjá Rakel að
viðskiptaumhverfið hér á Íslandi
er erfitt fyrir sprotafyrirtæki eins
og hennar þegar kemur að því
að laða að fjárfesta. Fjármagns
höftin slíta í raun á öll tengsl við
erlenda fjárfesta og hefta einnig
þá innlendu. „Þá er því ekki
að neita að innlendir fjárfestar
hafa aðra nálgun og vilja fá
mun stærri eignarhlut fyrir minni
pening en þeir erlendu. Þar
virðist meiri skilningur á starfi
frumkvöðlanna,“ sagði Rakel.
Skema rekur í dag sjö manna
skrifstofu á Íslandi og verður
hún starfrækt áfram. Þar starfar
fólk sem er meðal annars
menntað í tölvunarfræði, marg
miðlun, sálfræði, viðskiptafræði
og með reynslu í menntakerfinu.
Skema stendur meðal annars
fyrir fjölbreyttum námskeiðum
í tölvuleikjaforritun fyrir börn
víðsvegar um landið árið um
kring auk þess að styðja við
skólakerfið í innleiðingu á kennslu
í forritun og nýtingu á spjaldtölv
um í kennslu. Gert er ráð
fyrir að skrifstofan hér heima
vinni náið með höfustöðvunum
í Bandaríkjunum í framtíðinni
ef mál æxlast eins og að er
stefnt. Og nálgun hennar er til
þess að gera einföld. „Hagkerfi
framtíðarinnar byggist á tækni,
þekkingu og tæknilæsi og því
er tölvumenntun barna einn af
lykilþáttum árangurs þjóðfé
laga í átt að menntun í takt við
tækniþróun. Við vonumst til að
geta lagt okkar lóð á þá vogar
skál,“ sagði Rakel.
TexTi: siGurður Már jónsson / Mynd: Geir ólafsson
Rakel Sölvadóttir: „hagkerfi framtíðarinnar byggist á tækni, þekkingu og
tæknilæsi.“
skema á lista forbes
Rakel Sölvadóttir hefur kynnt viðskiptahugmynd sína á ráðstefnum í New
York og San Francisco. Skema flytur höfuðstöðvar sínar til Bandaríkjanna.
„Aðferðafræði Skema
er studd af rannsókn
um á sviði sálfræði,
kennslufræði og
tölvunarfræði og hef
ur það áhugaverða
markmið að kenna
ungu fólki frá sex ára
aldri að forrita.“
100 ÁhRiFamEStU koNURNaR 2013