Frjáls verslun - 01.04.2013, Blaðsíða 10
10 FRJÁLS VERSLUN 4. 2013
Enginn átti von á að allt færi úr böndunum þótt gamli maðurinn við stýrið félli
frá. Þrjár dætur voru til að taka við og nú situr sú yngsta, Ane Mærsk Mc-Kinney Uggla,
í sætinu sem herra Møller vermdi fram á 99. aldursár. Allt er í öruggum höndum.
Yngsta dóttirin tók við
Ættarauðurinn er eign upp á 105 milljarða danskra króna – ríflega
2.200 milljarða íslenska – og
mest af því fé bundið í hutabréf
um í skipafélaginu A.P. Møller
Mærsk. Það er eitt stærsta
skipa félag heims og með um
fimmtung af landsframleiðslu
Dana í veltunni. Eign fjölskyld
unnar er komið fyrir í tveimur
sjóð um; almenn um sjóði og
fjölskyldusjóði. Saman eiga
þess ir sjóðir 58 prósent af skipa
fé laginu og fara með 76 pró sent
atkvæða á hlut hafa fundum.
Þetta er gamall ættar auður.
Kinkar bara kolli
Með þennan liðstyrk að baki sér
gegnir Ane „bara“ stöðu varafor
manns í stjórn auk þess að
stýra báðum sjóðum fjölskyldun
nar. Þetta fyrirkomulag býður
upp á árekstra. Góðir stjórnar
hættir – corporate governance
– eru tískuorð samtímans. Eru
góðir stjórnarhættir virtir ef einn
hluthafi hefur yfirburðastöðu í
almenningshlutafélagi?
Ane svaraði spurningu um
þetta í viðtali við Berlingske
Tidende: „Það eru stjórnendur
skipafélagsins og hlutafélags
ins sem koma með tillögur um
ákvarð anir. Við í sjóðum fjöl
skyld unnar kinkum kolli. En að
sjálfsögðu: Ef stefnan er röng
verður einhver að segja stopp
og það gerum við í sjóð um
fjölskyldunnar.“
Þetta þýðir að kúrsinn hjá
skip um A.P. MøllerMærsk
verður óbreyttur – nema sker
birtist fyrir stafni. Og þetta þýðir
líka að Ane er í hópi valdamestu
Dana þótt hún segist bara kinka
kolli á stjórnarfundum.
Og það eru alltaf sker í sjón
um. Óveðursský eru alltaf við
sjóndeildarhring en þoka á
siglingaleiðinni. Starf Ane er
ekki eins náðugt og hún gefur
í skyn.
Erfingjar fá minnihlutann
En erfingjar gamla herra Møllers
standa ekki dagsdaglega við
stjórnvölinn hjá skipafélaginu
þótt margir séu þar starfsmenn.
Forstjórinn heitir Nils Smede
gaard Andersen.
Það eru auðæfi fjölskyldunnar
allt frá því afinn hóf útgerð fyrir
um öld sem athyglin beinist að.
Það eru sjóðirnir tveir. Almenni
sjóðurinn á eignir upp á 85
milljarða danskra króna, þar af
eru fimm milljarðar í öðrum fjár
festingum en skipafélaginu.
Hagnaðurinn af þessum
sjóði, það er í stórum dráttum
arðurinn af hlutabréfunum í
skipafélaginu, hefur verið nýttur
til ýmissa góðra verka. Þar er
frægast óperuhúsið nýja í Kaup
mannahöfn.
Hinn sjóðurinn er kallaður
fjöl skyldusjóðurinn og er til
muna minni, aðeins 20 milljarð
ar danskra króna. Það eru
peningar sem arfar og útarfar
ætt arinnar fá með tíð og tíma.
Þetta eru allt peningar sem
hafa safnast upp á rúmri öld og
Ane segist verða að hugsa öld
fram í tímann þegar hún tekur
ákvarðanir.
Fjölmenn ætt
Ane er ekki heldur eini erfing
inn þótt hún sitji í sæti gamla
mannsins. Þær systur eru þrjár
og þær eiga allar börn. Hóp
ur erfingja er stór og fer ört
stækkandi. Og flest hefur þetta
fólk – dætur, börn, tengdabörn
og barnabörn – unnið hjá skipa
félaginu eða dótturfélögum
þess. Starfsmenn þar eru ann
ars 115 þúsund.
Elst erfingjanna er Leise
Mærsk McKinney Møller,
fædd árið 1941. Hún á þrjár
dætur. Næst er Kirsten Mærsk
Mc Kinney Olufsen, fædd 1944.
Hún á fjóra syni. Og svo er Ane,
fædd 1948, og á tvo syni, báða
starf andi hjá félaginu.
Þetta er fríður hópur – og nóg af
per sónum og leikendum í danskt
ættardrama um völd, pen inga,
ástir og örlög.
Lífið eftir andlát danska skipakóngsins
Arnolds Mærsk Mc-Kinney Møller:
TexTi: Gísli KrisTjánsson.
a.P. møLLER-mæRSk
„Það eru stjórnend
ur skipafélagsins og
hlutafélagsins sem
koma með tillögur
um ákvarðanir. Við í
sjóðum fjölskyldunn
ar kinkum kolli. En
að sjálfsögðu: Ef
stefnan er röng verð
ur einhver að segja
stopp og það ger um
við í sjóðum fjöl
skyldunnar.“