Frjáls verslun - 01.04.2013, Blaðsíða 127
FRJÁLS VERSLUN 4. 2013 127
Reitir
Aukin eftirspurn
eftir vistvænu atvinnuhúsnæði
Reitir er stærsta fasteignafélag landsins og leigir atvinnuhúsnæði til flestra stærstu fyrirtækjanna
á Íslandi. Kringlan, hótel Hilton og hótel Natura eru stærstu fasteignir félagins.
Innan eignasafns Reita eru um 130 fasteignir sem eru samtals um 410.000 fer metrar að stærð. Á meðal
þekktra eigna í eigu Reita eru
Kring lan, Hótel Hilton og Hótel
Natura og Kauphallarhúsið
auk fjölda sögufrægra húsa í
Kvos inni. Þar vinnur fyrirtækið
náið með Minjavernd að því að
varðveita þau menningarlegu
verðmæti sem þar felast og segir
Kristjana Ósk Jónsdóttir, mark
aðs og kynningarstjóri Reita,
fyrirtækið hafa metnað fyrir því
að húsin fari vel í um hverfi sínu
og geri það jafnvel enn betra.“
hvað hefur verið efst á baugi
inn an þíns fyrirtækis að
undan förnu?
„Við höfum séð aukna eftir
spurn eftir leigu á vistvænu
atvinnu húsnæði. Við erum nú
t.d. að þróa vistvæna skrifstofu
garða við Höfðabakka 9 þar
sem við endurnýjum eldra
hús næði að kröfum viðskipta
vina okkar. Við leggjum ekki
eingöngu áherslu á vistvæn
byggingarefni og rekstrarvörur
heldur reynum við að skapa
um hverfi sem eykur vellíðan og
afköst starfsfólks í húsunum.
Þannig fara saman markmið
okkar og viðskiptavinanna.
Þá fögnuðum við nýlega 25
ára afmæli en saga Reita nær
aftur til byggingar Kringlunnar
1987 og hefur eignasafnið
okk ar verið í þróun síðan. Um
áramótin var stofnað nýtt félag
í samstæðunni, Reitir þjónusta,
sem heldur utan um rekstur
sameigna og húsfélaga. Við
stefn um á að bjóða viðskipta
vinum upp á aukna þjónustu
enda höfum við mikla reynslu
af rekstri fasteigna sem við
vilj um gjarnan deila með við
skipta vinum okkar.“
hvaða árangur ertu ánægðust
með innan fyrirtækis þíns að
undanförnu?
„Við höfum unnið ötullega
að því undanfarin misseri að
hækka útleiguhlutfall fasteigna
okkar, nú um áramótin var
hlutfallið 96% sem telst mjög
gott í þessari atvinnugrein. Við
höfum endurbætt stjórnarhætti
félagsins til samræmis við
kröf ur sem gerðar eru til kaup
hallar skráðra fyrirtækja og
skráð lykilverkferla. Samhliða
þessu hefur starfsánægja auk ist
hjá félaginu samkvæmt mæl
ingum VR.“
hvernig metur þú væntingarnar
í atvinnulífinu eftir kosningar?
„Við metum væntingar í
atvinnulífinu góðar, til okkar
leitar fjöldi einstaklinga og
fyrirtækja með áhugaverð ar
hugmyndir að sprota fyrir tækj
um og nýjum verkefnum. Við
náum því miður ekki að anna
eftirspurn eftir vinsælustu
staðsetningum, sér í lagi í
Kringl unni og í miðbænum.
Skattabreytingar hugsaðar til
að örva atvinnulífið hafa verið
boð aðar. Ef þau markmið ná
fram að ganga verður það
jákvætt fyrir atvinnulífið í
heild.“
hvernig er staðan í þínu fyrir -
tæki varðandi lögin um kynja -
hlutföll í stjórninni sem taka
gildi 1. september nk.?
„Við höfum uppfyllt kröfur
nýrra laga um kynjahlutföll í
stjórnum síðan 2009. Stjórnar
formaður Reita er Elín Árna
dóttir, sem einnig er fram
kvæmdastjóri fjármála sviðs
hjá Isavia, og í stjórn inni situr
einnig Martha Eiríks dóttir.“
Er fyrirtæki þitt með sérstaka
formlega jafnlaunastefnu?
„Reitir eru með formlega
starfskjarastefnu sem tekur til
allra starfsmanna, óháð kyni.“
texti maría ólafsdóttir / mynd: geir ólafsson
Nafn: kristjana ósk Jónsdóttir
aldur: 33 ára
menntun: Viðskiptafræðingur frá
hÍ með m.Sc. í fjármálum fyrir-
tækja frá hR
hjúskaparstaða: gift braga
Skaft asyni, eigum tvö börn, þorra
sex ára og helgu Sigríði tveggja ára
Sumarfríið: ætla að ferðast inn -
an lands í sumar, kíkja í útilegur og
sumarbústaði
tómstundir: Líkamsrækt, tónlist
og ferðalög
Frá hægri: inga Rut Jónsdóttir, forstöðumaður viðskiptasviðs; kristjana ósk Jónsdóttir, markaðs- og kynningar-
stjóri og arna grímsdóttir, lögmaður Reita fasteignafélags.