Frjáls verslun - 01.04.2013, Blaðsíða 60
60 FRJÁLS VERSLUN 4. 2013
„Margt jákvætt hefur átt sér stað hjá Arion
banka á undanförnu ári, m.a. hefur vöru og
þjónustuframboð til viðskiptavina okkar
aukist jafnt og þétt þannig að við getum betur
mætt ólíkum þörfum þeirra. Ef ég á að nefna
einn atburð þá held ég að útgáfa bankans
á skuldabréfi í erlendri mynt standi upp úr.
Höfuðmarkmið útgáfunnar var að brjóta ísinn
og sýna að íslensk fjármálafyrirtæki geti sótt
sér erlenda fjármögnun. Þetta var mikilvægt
skref og liður í því að skapa aðstæður sem
auðvelda afnám gjaldeyrishaftanna.“
Monica Caneman segir að sex orða ævi
sagan sé: Hagfræðingur, eiginkona, móðir,
bankastarfsmaður, stjórnarmaður og lífsgleði.
Monica segist telja að fyrirtæki og þjóðir
þurfi á ólíkum stjórnendum eða leiðtogum
að halda. „Ég hef ekki tekið einhvern einn
stjórnanda mér til fyrirmyndar en ég hef hins
vegar alltaf dáðst að Nelson Mandela og
hans mikla hugrekki, einlægni og getu til að
fyrirgefa. Hann er sönn fyrirmynd.“
Monica segir að ungir stjórnendur þurfi að
huga vel að upplýsingamiðlun til starfsfólks
þannig að því sé stefna fyrirtækisins ljós
sem og helstu markmið. „Þeir eiga ekki að
hræðast ákvarðanatöku né það að prófa nýja
hluti. Þá á ekki að spara hrós og hvatningu til
starfsfólks.“
Hún er sammála því að setja þurfi sérstaka
jafn launastefnu innan fyrirtækja, sem hefur
verið gert í bankanum. „Það er því miður
staðreynd að víðast er óútskýrður launa
mun ur á milli kynjanna. Jafnlaunaúttekt var
framkvæmd fyrir tveimur árum og verður hún
endurtekin í haust en þá kemur í ljós hvernig
þær aðgerðir sem við gripum til hafa skilað sér.“
Monicu finnst afnám gjaldeyrishaftanna
brýnasta verkefni nýrrar ríkisstjórnar. „Aukin
fjárfesting er annað mikilvægt verkefni en
hlutverk stjórnvalda er að skapa aðstæður
sem hvetja til arðbærra fjárfestinga.“
Monica er stjórnarformaður the 4th public
pension fund og BigBag AB. Hún er í stjórn
SAS AB, Storebrand ASA, Poolia AB, My
Safety AB, intermail AS, Schibsted Sverige
AB og SOS Children villages.
nelson Mandela sönn FYrirMYnd
Monica Caneman, stjórnarformaður arion banka:
100 ÁhRiFamEStU koNURNaR 2013
Kræktu í
KPMG appið
á
Gluggaðu í skattabæklinginn,
kíktu á molana og fylgstu með
fyrirhuguðum viðburðum.
app.kpmg.is