Frjáls verslun - 01.04.2013, Blaðsíða 114
114 FRJÁLS VERSLUN 4. 2013
Ý
msir mælikvarðar benda
til að áhætta í fjár mála
kerfi nu hafi minnk að á
síð ustu mán uðum. Skuld
setn ing er enn allt of mik
il, bæði hjá heimilum og
fyrirtækjum, og vanskil of
mikil. En endur skipulagningu skulda heimila
og fyrir tækja miðar áfram. Vanskil lækkuðu
um þriðj ung á árinu 2012 og við bú umst við
áfram hald andi jákvæðri þróun þar.“
Þetta segir Sigríður Benediktsdóttir,
fram kvæmdastjóri fjármálastöðugleika
hjá Seðlabanka Íslands, m.a. í ítarlegu við
tali við Frjálsa verslun. Svið hennar hjá
bank anum rannsakar og greinir áhættur
sem raskað gætu stöðugleika íslenska
fjár málakerfisins. Það er gert með það að
markmiði að koma auga á veikleika sem
gætu leitt til alvarlegra áfalla. Þetta er í
sam ræmi við eitt meginhlutverka Seðla
banka Íslands, sem er að stuðla að stöðugu,
öruggu og virku fjármálakerfi.
„Sviðið hefur aðkomu að þeim málum
sem varða fjármálastöðugleika innan
bank ans. Því er ég og starfsmenn sviðsins
í mikilli samvinnu við aðra starfsmenn
bankans. Sviðið sinnir einnig reglubundnu
eftirliti með ákveðnum þáttum starfsemi
lánastofnana, eins og lausafjár og gjald
eyris jafnaðareftirliti. Auk þess er náið
sam starf við Fjármálaeftirlitið í því skyni
að stuðla að traustum undirstöðum og
heilbrigðu fjármálakerfi.“
Sviðið gefur út rit tvisvar á ári sem inni
heldur greiningu sviðsins á fjár mála stöðug
leika hérlendis á þeim tíma. „Þá er sér í
lagi litið til þess hvort kerfisáhætta sé að
aukast eða ekki og hvort viðnámsþróttur
fjár málakerfisins sé viðunandi. Ritinu er
ætlað að stuðla að upplýstri umræðu um
stöðugleika fjármálakerfisins, þ.e. um styrk
þess og veikleika og áhættu sem því kann
að vera búin.“
ALÞjóðLegt FyrirkOMuLAg
að einhver hafi fjármálastöðugleika á sínu
verksviði, er það þekkt skipulag hjá seðla -
bönkum?
„Flestum seðlabönkum í þróuðum löndum
er gert að stuðla að fjármálastöðugleika,
auk hins betur þekkta markmiðs að stuðla
að verðstöðugleika. Þetta fyrirkomulag
er því alþjóðlegt og það er þó nokkurt
samstarf á milli landa um hvernig best
sé að stuðla að fjármálastöðugleika. Sér
staklega er samstarfið náið við Norður
lönd in. Ég hef meðal annars heimsótt bæði
finnska og danska seðlabankann í því
augna miði að læra hvernig þeir uppfylla
þetta hlutverk sitt.“
Í síðasta Fjármálastöðugleika kemur fram
að margt hafi áunnist að undanförnu. Samt
eru vondu fréttirnar enn fyrirferðarmiklar
og kunnuglegar; skuldsetning heimila og
fyrirtækja enn mjög mikil, rekstrarum-
hverfi bankanna óvisst, staða Íbúða lána-
sjóðs er erfið, óleyst er staða innláns-
stofnana í slitameðferð, stærð kvikra og
ókvikra krónueigna er enn gríðarleg og
endurfjármögnunaráhætta þjóðarbúsins
er mikil. manni liggur við að spyrja, frá
sjónarhóli fjármálastöðugleika, hvað er í
lagi á Íslandi?
„Meginniðurstaða er að ýmsir mælikvarðar
benda til að áhætta í fjármálakerfinu hafi
minnkað á síðustu mánuðum. Skuldsetning
er, eins og þú bendir á, enn allt of mikil
bæði hjá heimilum og fyrirtækjum og
van skil of mikil, en endurskipulagningu
skulda heimila og fyrirtækja miðar áfram.
Vanskil minnkuðu um þriðjung á árinu
2012 og við búumst við áframhaldandi
SigRÍðUR bENEDiktSDóttiR
kerfisáhættan hefur minnkað
á íslenskum fjármálamarkaði.
Sjóhengjan er ekki réttnefni.
Meiri viðspyrna bankanna.
Skuldsetning heimila og
fyrirtækja enn of mikil.
Staða Íbúðalánasjóðs.
uppgjör innlánsstofnana í
slitameðferð.
Losun fjármagnshafta í
skrefum.
endurfjármögnunaráhættan.
Stjórnmálaleg áhætta.
Fara ekki með fé úr landi á
hvaða gengi sem er.
eigendur kvikra króna hafa
margir ekki tekið þátt í
útboðum Seðlabankans.
Landsbankabréfið.
Lítill afgangur af viðskiptum
við útlönd.
ríkissjóður fjármagnaður með
á að giska 25% af aflands -
krónum.
Álagspróf Seðlabanka og FMe.
Bólumyndun á hlutabréfa -
markaði?
Íslenska ríkið með svipað
lánstraut og það bandaríska.
„Þeim mun betur
sem staðið verður
að losun fjármagns
haft anna þeim mun
minni líkur eru á því
að þessir fjárfestar
dragi fjármuni sína
frá Íslandi í einum
grænum.“
Hér kemur ítarlegt viðtal
Sigurðar Más jóns sonar
við Sigríði Bene diktsdóttur,
fram kvæmdastjóra
fjármála stöðugleika hjá
Seðla banka Íslands. Þau
koma víða við.