Læknablaðið : fylgirit - 01.04.2007, Side 21
ÁGRIP VEGGSPJALDA / VÍSINDI Á VORDÖGUM
voru einstæðir en 16% kvenna. Af hópnum voru 33% starfandi,
42% á bótum og 14% atvinnulausir. Sjúklingum var fylgt eftir
í 3-7 ár. Á þeim tíma létust 17, eða 10% af heildarhópnum. Á
fyrsta ári eftir útskrift af gjörgæslu létust fimm, á öðru ári fimm
og á þriðja ári sjö, en engir eftir það. Samtals létusl því 23 (13%)
af heildarhópnum. Fjölþátta aðhvarfsgreining sýndi að fjöldi
tekinna taflna hafði forspárgildi um dánarlíkur eftir fyrstu komu
á gjörgæslu en ekki kyn, aldur, félagsleg staða, APACHE-stigun,
fyrri sjálfsvígstilraunir né aðalgeðgreining.
Cniræða: Þetta er ungur sjúklingahópur, meirihluti konur,
endurteknar tilraunir eru algengar, fíkn er algeng og félagslegar
kringumstæður oft erfiðar. Dánarhlutfall var 3% á gjörgæslu/
sjúkrahúsi sem er hátt fyrir aldurshópinn og dánarhlutfall var
áfram hátt fyrstu þrjú árin eftir sjálfvígstilraun (10%) þrátt
fyrir að >80% væri fylgt eftir innan geðgeirans. Fjöldi tekinna
taflna hafði best forspárgildi varðandi síðari dánarlíkur sem
hugsanlega gefur til kynna hversu alvarlegur ásetningurinn er.
Svo virðist sem þessi sjúklingahópur sé í sérstakri áhættu og
hugsanlegt að auka megi lífslíkur hans með því að fylgja honum
nánar eftir og huga að félagslegum úrbótum fyrstu árin eftir
sjálfsvígstilraun.
V 28 Aðgreiningarhæfni þunglyndis- og felmturskvarða
PHQ skimunartækisins
Valdís E. Pálsdóttir1, Hafrún Kristjánsdóttir2, Guðmundur B. Arnkelsson'
'Félagsvísindadeild HÍ,2geðsviði Landspítala
hafrunkr@landspitali. is
Inngangur: Samkvæmt breskum rannsóknum leita einstaklingar
með geðrænan vanda fyrst til heilsugæslu. Hérlendis virðist
þriðjungur skjólstæðinga heilsugæslu búa við geðrænan vanda
en meirihluti þeirra fær meðhöndlun hjá heilsugæslulæknum.
Almennt er talið að ómeðhöndlaðar lyndisraskanir hafi
alvarlegar afleiðingar og skjót og rétt greining og meðferð
því lykilatriði. Patient Health Questionnaire er 58 atriða
skimunarlisti fyrir átta geðröskunum og hentugur til notkunar
í heilsugæslu.
Markmið: Rannsókninni er ætlað að meta aðgreiningarhæfni
þunglyndis- og felmturskvarða PHQ.
Aðferð: Þátttakendur eru 203 einstaklingar sem tóku
þátt í hugrænni atferlismeðferð á nokkrum heilsugæslu-
stöðum. Allir þátttakendur svöruðu PHQ listanum og MINI
geðgreiningarviðtalinu.
Niðurstöður og umræður: Aðgreiningarhæfni þunglyndiskvarða
PHQ reyndist mjög góð, AUC = 0,88. Ef miðað er við 10
stig eða fleiri á myndu 83% þunglyndra finnast en aðeins
22% sem ekki þjást af þunglyndi myndu ranglega skimast
þunglyndir. Aðgreiningarhæfni felmturskvarða PHQ er einnig
góð, AUC = 0,83 en erfiðara að finna góð viðmið sökum lágs
algengis í úrtakinu. Ef miðað er við 10 stig líkt og gert er á
þunglyndiskvarðanum myndu minna 68,2% þeirra sem þjást
af felmtursröskun finnast, en 20% ranglega skimast með
felmtursröskun.
V 29 Mynstur öndunarhreyfinga hjá sjúklingum með ný-
greint slag
Guðbjörg Þóra Andrésdóttir1, María Ragnarsdóttir’, Haukur Hjaltason2,
Elías Ólafsson2-4
■Sjúkraþjálfun Bl, Landspítala, 2taugalækningadeild Landspítala, 3sjúkra-
þjálfun 14D Hringbraut, 4læknadeild HÍ
gthora@landspitali. is
Inngangur: Truflanir á öndun sjásl oft hjá sjúklingum með
nýgreint slag, en fáir hafa rannsakað þetta.
Markmið rannsóknarinnar voru að kanna hvort mynstur
öndunarhreyfinga sjúklinga með nýgreint slag er
1. eins og hjá heilbrigðum einstaklingum,
2. eins, hvort sem slagið er í vinstra eða hægra heilahveli.
Efniviður og aðferðir: Þátttakendur voru einstaklingar sem
lagðir voru inn á taugalækningadeild Landspítala vegna
bráðaslags á 22 mánaða tímabili (9/'04 til 7/'06) og voru með
verulega hreyfiskerðingu. Útilokaðir voru einstaklingar með
lungnasjúkdóma, hjartabilun, mikið málstol, heilabilun, aðra
sjúkdóma sem truflað gætu færni, slag í heilastofni og fyrra slag
í gagnstæðu heilahveli. Öndunarhreyfingar allra voru mældar
með ÖHM-Andra sem mælir hreyfingar kviðar og brjóstkassa.
Líkamleg geta var metin með MAS-kvarða. Einkenni gaumstols
voru metin með stafaútstrikunarprófi.
Niðurstöður: Þátttakendur voru 18, 10 með lömun í vinstri
líkamshelmingi (meðalaldur 62,2± 14,2 ár) og 8 með lömun í þeim
hægri (meðalaldur 65,1 ± 8,9 ár).Tíðni og ferill öndunarhreyfinga
í hvíldaröndun var óreglulegur hjá sex einstaklingum, (4 með
Cheyne-Stokes öndun) og enn óreglulegri í djúpöndun, einkum
hjá vinstri lömuðum. Rannsóknarhópurinn var með marktækt
meiri óreglu (p=0,003) í djúpöndun í ferli öndunarhreyfinga en
einstaklingar án taugasjúkdóma (14 hryggiktarsjúklingar), en
óregla á tíðni í djúpöndun var á mörkum þess að vera marktæk
(p=0,058). Meðalöndunartíðni slagsjúklinga var marktækt
örari en heilbrigðra í hvíld (p<0,05) og djúpöndun (p<0,001).
Ferill öndunarhreyfinga var marktækt minni hjá einstaklingum
með slag en heilbrigðum í djúpöndun (p<0,001). Ekki var
marktækur munur á hægri og vinstri lömuðum í öndunartíðni,
reglu í öndunartíðni, reglu í ferli öndunarhreyfinga og magni
öndunarhreyfinga.
Ályktanir: Einstaklingar með slag sýndu mikla óreglu í ferli
og tíðni öndunarhreyfinga. Einnig var öndunartíðni hærri og
öndun grynnri en hjá heilbrigðum, einkum í djúpöndun. Þetta
er í fyrsta sinn sem vísbendingar koma fram um að mynstur
öndunarhreyfinga sé truflað hjá sjúklingum eftir slag í heilahveli,
en frekari athuganir þarf til að draga víðtækari ályktanir.
V 30 íslensk viðmið fyrir orðaflæðispróf
María K. Jónsdóttir12, Anton Örn Karlsson2
‘Landspítala,2HÍ
marijon@landspitali. is
Inngangur: Svokallað orðaflæðispróf (e. verbal fluencey) er
algengt taugasálfræðilegt próf. Gerður er greinarmunur á
tvenns konar orðaflæði; merkingarflæði (t.d. telja upp dýr) og
hljóðungaflæði (telja upp orð sem byrja á ákveðnum bókstaf).
Læknablaðið/fylgirit 54 2007/93