Læknablaðið : fylgirit - 01.04.2007, Page 35

Læknablaðið : fylgirit - 01.04.2007, Page 35
ÁGRIP VEGGSPJALDA / VlSINDI Á VORDÖGUM Algengustu einkenni voru hósti, uppgangur og hiti. Flestir sjúklinganna reyndust með lungnakrabbamein á háu stigi, en sex sjúklingar voru á stigi IIIA eða IIIB. Þrír sjúklingar höfðu fengið bæði geisla- (44 Gy) og krabbameinslyfjameðferð fyrir lungnabrottnám. Aðrir þrír fengu geislun eftir aðgerð. Hjá sex sjúklingum var stúfurinn þakinn, ýmis með fleiðru eða bláæð (v. azygos) en límefni voru notuð í þremur tilvikum. Af átta sjúklingum með fistil þurftu aðeins þrír að gangast undir skurðaðgerð. Hjá tveimur þeirra var vöðvaflipi saumaður á berkjustúfinn og í einu tilviki var saumað yfir stúfinn. Hinir fimm voru meðhöndlaðir án skurðaðgerðar þar sem lokað var fyrir fistilinn með vefjalími (Tissel®) en því var sprautað í fistilgatið að innanverðu með berkjuspeglun. Stök meðferð dugði hjá fjórum en hjá einum þurfti endurtekna sprautun með vefjalími. Legutími var 21,5 dagar að meðaltali og enginn sjúklinganna lést innan 30 daga. Tveimur árum frá aðgerð voru þrír af átta sjúklingum á lífi. í dag er aðeins einn sjúklingur á lífi og hefur sá lifað í 98 mánuði. Álykfun: Berkjufleiðrufistill er frekar sjaldgæfur en alvarlegur fylgikvilli eftir lungnabrottnám við lungnakrabbameini. Tíðni fistla í þessari rannsókn (6%) er frekar lág, sérstaklega þegar haft er í huga að rúnrur fjórðungur sjúklinganna fékk geisla- og krabbameinslyfjameðferð fyrir aðgerðina. Sjúklingar með fistil eru yfirleitt karlar með langt genginn sjúkdóm í hægra lunga og langtímahorfur þeirra eru lakar. Einnig er áhætta á fistilmyndun aukin hjá þeim sem fá geisla- og/eða krabbameinslyfjameðferð fyrir og eftir aðgerð. Flesta berkjufleiðrufistla eftir lungnabrottnám er hægt að meðhöndla án skurðaðgerðar, t.d. með því að sprauta í þá vefjalími við berkjuspeglun. Tafla 1. Sjúklingar með fistil (n = 8) Viðmiðunar- hópur (n = 122) P-gildi Meðalaldur (ár) 62,3 63,4 óm Karlar (%) 7 (87,5) 99 (81,1) óm Hægra lungnabrottnám (%) 7 (87,5) 56 (45,9) < 0,01 Berkjustúfur þakinn (%) 5 (62,5) 73 (60) óm Geislun og/eða krabbameinslyfjameðferð, fyrir eða eftir lungnabrottnám 6(75) 70 (57,4) <0,05 Meðallegutími og miðgildi (dagar) 21,5 / 13 11,5 / 9 <0,01 Skurðdauði (<30 daga) 0 1 (0,8) óm óm = ómarktækt V 60 Nuss-aðgerð - nýjung í meðferð trektarbrjósts Tómas Guðbjartsson, Bjarni Torfason Hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala, læknadeild HI tomasgud@landspitali.is Inngangur: Trektarbrjóst (pectus excavatum) er algengur meðfæddur galli sem sést hjá einu af hverjum 1000 börnum og er fjórum sinnum algengara hjá drengjum en stúlkum. Trektarbrjóst er oftast án einkenna en getur í vissum tilvikum þrengt að hjarta og lungum. Langalgengasta ábending aðgerðar er þó til að lagfæra lýti. Fram til þessa hefur verið beitt opnum brjóstholsskurðaðgerðum þar sem geislungar eru fjarlægðir að hluta og rif ásamt bringubeini sveigð og fest með spöng, plötu og/eða stálvírum. Um er að ræða allstórar skurðaðgerðir með töluverðum fylgikvillum og langri sjúkrahússvistun. Reynt hefur verið að notast við sflikonfyllingu í stað lagfæringar á brjóstveggnum en fyllingin þolist illa vegna verkja. Nuss-aðgerð er ný meðferð við trektarbrjósti. Aðgerðinni var fyrst lýst fyrir 17 árum og felst í því að sterkum stálboga er komið fyrir aftan við bringubeinið og rétt úr trektinni. Aðgerðin hefur verið þróuð frekar á síðustu árum og er stálboganum nú komið fyrir með aðstoð brjóstholssjár og örin eftir aðgerðina eru því hverfandi lítil. Sjúkrahússvistun er í kringum eina viku en þann tíma fá sjúklingarnir epiduraldeyfingu. Stálboginn er oftast látinn sitja í tvö til þrjú ár og síðan fjarlægður. Árið 2004 var Nuss-aðgerð tekinn upp á íslandi í stað eldri og stærri aðgerðar við trektarbrjósti. Lýst er fyrstu aðgerðunm hérlendis og helstu skrefum aðgerðar með skýringarmyndum úr aðgerð. Niðurstöður: Alls hafa verið framkvæmdar 16 Nuss aðgerðir hér á landi (15 karlar, ein kona, meðalaldur 18,4 ár. Allar aðgerðirnar voru framkvæmdar til að lagfæra lýti. Einn sjúklingur var með Marfans-heilkenni og tveir með alvarlega hryggskekkju. Aðgerðirnar tóku að meðaltali 68 mínútur (bil 40- 110). Engir fylgikvillar komu upp í aðgerð og allir sjúklingarnir lifðu aðgerðina. Tveir sjúklingar fengu yfirborðssýkingar í skurðsár sem létu undan sýklalyfjameðferð og tveir sjúklingar fengu loftbrjóst. Annan síðastnefndu sjúklinganna þurfti að leggja inn og gekkst hann undir fleygskurð á lunga með aðstoð brjóstholssjár. Árangur aðgerðanna (útlitslegur) var metinn tveimur vikum frá aðgerð og reyndist ágætur í 12 (75%) tilfellum og góður (skor 4) hjá fjórum (25%). Sjúklingarnir voru drengir á aldrinum 15 til 25 ára. Aðgerðartími var stuttur og sjúkrahúsdvöl á bilinu sjö til 13 dagar. Aðgerðirnar voru án stærri fylgikvilla í öllum tilvikum. Ekki þurfti að snúa neinni aðgerðanna í opna aðgerð. Trektarbrjóstið tókst að lagfæra í öllum tilvikum með góðum árangri. Stálbogarnir bíða nú þess að verða fjarlægðir. Ályktun: Nuss-aðgerð er örugg og fljótleg aðgerð við trektarbrjósti sem skilur eftir lítil ör. Aðgerðin leysir af hólmi allstóra opna aðgerð og verður því að teljast fýsilegur kostur sem meðferð við trektarbrjósti hjá börnum og ungu fólki. V 61 Valmiltistökur á Landspítala 1993 til 2004 Bergþór Björnsson1, Guöjón Birgisson', Pétur Hannesson2, Margrét Oddsdóttir1-1 'Skurðlækningadeild og 'myndgreiningadeild Landspítala, "læknadeild HÍ bergthor@landspitali.is Inngangur: Brottnám á milta er vel þekkt meðferð við ýmsum góðkynja og illkynja blóðsjúkdómum. Fram til ársins 1991 var um að ræða stóra opna kviðarholsaðgerð en miltistöku með kviðsjá var fyrst lýst það ár. Byrjað var að gera þessar aðgerðir á Landspítala árið 1994. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna Læknablaðið/fylgirit 54 2007/93 35

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.