Læknablaðið : fylgirit - 01.04.2007, Blaðsíða 36
ÁGRIP VEGGSPJALDA / VÍSINDI Á VORDÖGUM
ástæður þessara aðgerða hér á landi og bera saman við opnar
aðgerðir með tilliti til aðgerðarlengdar, fylgikvilla og legutíma.
Efniviður og aðferðir: Farið var yfir sjúkraskrár sjúklinga sem
gengust undir brottnám á milta á Landspítala sem valaðgerð á
rannsóknartímanum. Skráð var ábending aðgerðar,þættir tengdir
aðgerð, legutími eftir aðgerð og fylgikvillar. Rannsóknin var
samþykkt af Persónuvernd og Vísindasiðanefnd Landspítala.
Niðurstöður: Á tímabilinu voru gerðar 66 valmiltistökur.
Meðalaldur sjúklinga við aðgerð var 49,8 (8,9-82,3) ár, ekki
var munur á aldri milli þeirra sem fóru í opna aðgerð og þeirra
sem fóru í kviðsjáraðgerð. Karlar voru 34 en konur 32, ekki
var munur á aldri milli kynja. I 27 tilfellum var byrjað með
kviðsjáraðgerð en í þremur tilfellum þurfti að skipta yfir í opna
aðgerð, í tveimur tilfellum vegna blæðingar og í einu tilfelli
liggja ekki fyrir upplýsingar um ástæðu. Opnar aðgerðir voru 38
og í einu tilfelli vantaði upplýsingar. Kynjaskipting í hópunum
var jöfn. Algengustu ábendingar aðgerðar voru blóðflögufæð
32, eitilfrumukrabbamein 10 og hnattrauðkornakvilli
(spherocytosis) fimm. Samsvörun milli ábendinga aðgerða
og meinafræði sýna var góð. Miðgildi aðgerðartíma var 110
mínútur, fyrir kviðsjáraðgerðir 132 mínútur en opnar 91 mínúta
(p<0,0001). Meðal blæðing var 670 ml, í kviðsjáraðgerðum
var meðal blæðing 580 ml en í opnum 730 ml (p=0,4413).
Meðallegutími var 8,4 dagar, eftir opnar aðgerðir var legulengd
11,2 dagar en 4,4 eftir kviðsjáraðgerðir (p=0,0394). í 39 tilfellum
komu ekki fram fylgikvillar en hjá 23 sjúklingum komu fram
fylgikvillar, upplýsinar vantar í fjórum tilfellum. Af sjúklingum
sem fóru í opnar aðgerðir fengu 15 (42%) fylgikvilla og eitt
dauðsfall varð innan 30 daga frá aðgerð. Af sjúklingum sem fóru
í kviðsjáraðgerð fengu 8 (31%) fylgikvilla. Ekki var marktækur
munur á tíðni fylgikvilla.
Ályktun: Miltistaka um kviðsjá hefur í för með sér tilhneigingu
til minni blæðingar í aðgerð og færri fylgikvilla en opin aðgerð.
Legutími er styttri eftir kviðsjáraðgerðir en opnar aðgerðir.
Kviðsjáraðgerðir eru tímafrekari en opnar aðgerðir.
V 62 Nýrnahettubrottnám með kviðsjá á íslandi 1997-2005
Bergþór Bjömsson', Margrét Oddsdóttir1-2
‘Skurödeild Landspítala, 2læknadeild HÍ
bergthor@landspitali. is
Inngangur: Æxli í nýrnahettum eru sjaldgæf en geta verið
margvísleg. Frá 1997 hafa valaðgerðir vegna nýrnahettuæxla
á Islandi verið gerðar með kviðsjártækni. Flestar aðgerðirnar
hafa verið gerðar af einum skurðlækni. Tilgangur þessarar
rannsóknar var að kanna árangur umræddra aðgerða hér á landi
og bera saman við erlendar niðurstöður.
Efniviður og aðferðir: Sjúkraskrár allra voru skoðaðar og
upplýsingum safnað um ástæður aðgerða, þætti tengda aðgerð,
fylgikvilla, fjölda legudaga og vefjagreiningu.
Niðurstöður: Fjarlægðar voru 53 nýrnahettur úr 48 sjúklingum
á tímabilinu frá 1997 til 2005. Konur voru í meirihluta (37),
meðalaldur sjúklinga var 53,6 ár (24,4-78,8). Algengara var að
vinstri nýrnahetta væri fjarlægð en sú hægri (34/19), í fjórum
tilfellum voru báðar nýrnahettur fjarlægðar í sömu aðgerð.
Meðalstærð sýna var 6,8 cm (4,5-10,5). Ástæður aðgerða voru
17 vegna stærðar kirtils, 12 vegna hækkunar aldosterons í
blóði, 10 vegna gruns um litfíkilsæxli, fjórir vegna Cushings
heilkennis/sjúkdóms, fjórir vegna offramleiðslu karlhormóna,
tveir vegna gruns um meinvarp. Meðal agerðartími var 168
(87-370) mínútur (ein nýrnahetta) og meðalblæðing var 117 ml
(0-650). Aðgerðartími var marktækt lengri þegar um litfíkilsæxli
var að ræða (233 mínútur) en aðrar fyrirferðir (p=0,003) og í
þeim aðgerðum var blæðing einnig meiri (260 ml) en í öðrum
aðgerðum á annarri nýrnahettu (p<0,0001). Fylgikvillar voru
sjaldgæfir, engir meiriháttar. Meðal legutími var 2,6 dagar
(1-6 dagar). Aldrei þurfti að skipta yfir í opna aðgerð. Einn
sjúklingur reyndist óvænt vera með illkynja æxli og einn sem
talinn var vera með litfíkilsæxli reyndist ekki hafa það.
Ályktanir: Nýrnahettubrottnám um kviðsjá hafa gengið
vel á Islandi og er í dag valmeðferð við góðkynja fyrirferð
í nýrnahettu. Niðurstöður á Islandi eru í góðu samræmi við
niðurstöður erlendra rannsókna. Brottnám litfíkilsæxla með
kviðsjá er örugg þó það sé tímafrekara og hafi í för með sér
lítillega meiri blæðingu en brottnám annarra æxla.
V 63 Árangur af ísetningu lyfjabrunna á Landspítala yfir
eins árs tímabil
Bergþór Björnsson1, Pétur Hannesson2, Agnes Smáradóttir1, Páll Möller1
‘Skurðlækningadeild, 2 myndgreiningadeild og 3lyflækningadeild krabba-
meina Landspítala
bergthor@landspitali.is
Inngangur: Notkun lyfjabunna hefur aukist undanfarin ár á
Landspítala. Erlendar rannsóknir sýna að tíðni bráðra sem og
síðkomina fylgikvilla er lág. Þetta hefur ekki verið rannsakað
áður hér á landi og því var tilgangur rannsóknarinnar að kanna
notkun lyfjabrunna á Landspítala auk tíðni fylgikvilla og bera
saman við niðurstöður erlendra rannsókna.
Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var afturskyggn. Allir
fullorðnir sjúklingar sem fengu lyfjabrunn á skurðlækningadeild
Landspítala Hringbraut á tímabilinu 1. september 2005 til
31. ágúst 2006 voru teknir inn í rannsóknina. Skráðar voru
upplýsingar úr aðgerð, niðurstöður lungnamyndatöku eftir
ísetningu og klínískar upplýsingar á meðan á notkun stóð. Farið
var yfir myndrannsóknir allra sjúklinga, bæði lungnamyndatöku
og síðari viðeigandi rannsóknir. Rannsóknin var samþykkt af
Vísindasiðanefnd Landspítala og Persónuvernd.
Niðurstöður: Settir voru 128 lyfjabunnar í 121 sjúkling.
Heildarfjöldi daga þar sem sjúklingar voru með lyfjabrunn
var 32.290. Konur voru 85, karlar 44. Meðalaldur sjúklinga
var 57 (18-86,4) ár. Algengasta ástæða ísetningar var
krabbameinslyfjameðferð (n=121). Algengustu greiningar voru
brjóstakrabbamein (34), ristil- og endaþarmskrabbamein (31),
eitlakrabbamein (12) og briskrabbamein (8). í 14 tilfellum náði
slanga ekki inn í efri miðbláæð og í 19 tilfellum var slanga niður
undir hægri gátt eftir ísetningu. I sex tilfellum lá slanga niður
í hægri gátt og í þremur tilfellum færðist slanga þangað síðar.
Snemmkomnir fylgikvillar við ísetningar voru sex ástungur á
slagæð (án alvarlegra afleiðinga), tvö loftbrjóst sem hvorugt
greindist fyrir útskrift og í einu tilfelli blæðing sem leiddi til
enduraðgerðar. Eftir 101 ísetningu komu ekki fram neinir
36
Læknablaðið/fylgirit 54 2007/93