Frjáls verslun - 01.05.2011, Síða 119
FRJÁLS VERSLUN 5.tbl.2011 119
jafnréttisstEfna fyrirtækja
Hjá PwC hefur hlutfall kvenna aukist ár frá ári en endurskoðendafyrirtæki hafa löngum verið að mestu mönnuð körlum. Í
stjórnun fjölgar konum líka hægt og sígandi
og á síðasta ári var kona í fyrsta skipti kos
in í þriggja manna stjórn félagsins.
Hvert er hlutfall kvenna á meðal stjórn
enda PwC og hvert er hlutfall þeirra í
stjórnum?
Að sögn Elínar Árnadóttur hdl. hjá PwC
á Íslandi gegna konur störfum mann auðs
stjóra og fjármálastjóra hjá fyrirtækinu:
„Innan eigendahópsins eru þrjár konur
á móti 17 körlum svo þar er hlutfallið ekki
hagstætt konum. Þetta er nú bara staðan og
í takt við þjóðfélagið almennt. Á nýlegum
aðalfundi SA kom fram að konum í stjórn
um hefur lítið fjölgað undanfarin ár, þrátt
fyrir alla umræðuna, og það er engu líkara
en það sé bara verið að bíða eftir að lögin
um kynjakvóta taki gildi, ekkert gerist fyrr.
Það er auðvitað merkilegt, sérstaklega með
það í huga að rannsóknir sýna að fyrirtæki
sem stjórnað er af konum eða konur eru
meðal stjórnenda skila betri hagnaði en þar
sem eingöngu karlar ráða ríkjum. Maður
hefði haldið að arðsemissjónarmiðin væru
næg ástæða til að fjölga konum meðal
stjórn enda. Því er oft haldið fram að konur
gefi ekki kost á sér til stjórnarsetu en það er
ekki rétt, margar konur og félög kvenna
birta lista yfir konur sem eru hæfar og
reiðubúnar til stjórnarsetu. Við erum sjálf
sagt ennþá alltof föst í staðalímyndunum,
það er rosalega erfitt að breyta þeim, virðist
ekki hægt nema með handafli. Sem er
dapurleg staðreynd.
Stjórnskipulagið hjá okkur er frekar flatt
og ræðst meira af þeim verkefnum sem við
sinnum hverju sinni. Við erum hins vegar
með marga verkefnisstjóra sem eru konur,
þar er hlutfallið mun hagstæðara eða fjórar
konur á móti hverjum þremur körlum.
Á þeim hvílir að miklu leyti hin daglega
stjórnun verkefna, sem afkoma okkar bygg
ist á. PwC er með jafnréttisáætlun eins og
vonandi flest fyrirtæki.“
mætum mikilli eftirSpurn eftir
lögmannaþjónuStu með
pwc legal
„Fyrirtæki sem okkar þarf sífellt að huga
að nýjum þjónustuþáttum og þurfum
við að vera fljót að bregðast við breytt um
aðstæðum. Við erum t.d. með nýja þjón ustu
línu sem býður fyrirtækjum upp á að greina
kynbundinn launamun og fá stað festingu á
að þau greiði jöfn laun óháð kyni. Við höfum
orðið vör við aukna um ræðu um þessi mál
og þá blasir við að fyrirtæki þurfa að geta
sýnt fram á jafn launastefnu sem virkar í
raun. Það er nefni lega ekki nóg að tala um
jafnréttismál, þótt orð séu til alls fyrst.
Það er fyrir löngu orðið tímabært að fylgja
orðum eftir með gerðum. Það gerum við
með því að greiða sömu laun fyrir sömu
vinnu, aðilar hafi sömu möguleika og það
getum við séð með hlutfalli stjórnenda.
Önnur nýjung hjá okk ur er stofnun PwC
Legal, sem við settum á fót í fyrra. Það
er til að mæta síaukinni eftirspurn eftir
lögmannaþjónustu. Það virðast allir vera að
stefna öllum þessa dagana svo ekki veitir af
góðum lögmönn um til að sinna þessu. Þar
er kona við stjórn, Elísabet Guðbjörnsdóttir
hdl., og hefur gefist vel. Mest er að gera hjá
okkur í sambandi við gengistryggðu lánin,
útreikninga á þeim og úrvinnslu, vinnu við
nauðasamninga, greiðslustöðvanir, þrota
meðferðir og svo við endurskipulagningu
fyrirtækja.“
konur eru eftirsóttir verkefnisstjórar
„Því er oft haldið fram að konur gefi ekki kost á sér til stjórnarsetu en það er
ekki rétt, margar konur og félög kvenna birta lista yfir konur sem eru hæfar
og reiðubúnar til stjórnarsetu.“
PwC
Elín Árnadóttir er héraðsdómslögmaður hjá PwC og situr í stjórn fyrirtækisins.