Frjáls verslun - 01.05.2011, Qupperneq 130
130 FRJÁLS VERSLUN 5.tbl.2011
jafnréttisstEfna fyrirtækja
Mismunun vegna kyns er óheimil, í hvaða formi sem hún birtist, og er það stefna N1 að gæta fyllsta jafnréttis
milli kvenna og karla. Samkvæmt Ingunni
Sveinsdóttur, Framkvæmdastjóra sölu og
markaðssviðs N1., er hver starfsmaður
met inn að verðleikum óháð kyni. „Þannig
er tryggt að mannauður fyrirtækisins nýtist
sem best.“ „Þótt meginþungi starfsemi
N1 sé á sviðum þar sem karlmenn hafa
jafn an verið ráðandi hefur fyrirtækið mjög
skýra stefnu í jafnréttismálum. Við höfum
fylgt henni vel eftir því við viljum vera
þátttakendur í því að efla konur, skapa
tækifæri fyrir þær og auka þátt þeirra í
at vinnulífinu. Við vinnum meðal annars
að fullgildingu skilmála jafnréttisstofnunar
Sameinuðu þjóðanna, UN Woman, um
jafn rétti innan fyrirtækja auk þess sem kon
um hefur fjölgað jafnt og þétt í stjórnenda
hópi fyrirtækisins.
jafnréttiSStefna n1
Jafnframt er mismunun vegna kynþáttar,
trúar eða stjórnmálaskoðana, kynhneigðar,
þjóðernis eða annars slíks óheimil.
Hverjum starfsmanni ber að stuðla að því
að jafnréttisstefnunni sé fylgt, meðal annars
með því að koma fram við samstarfsmenn,
starfsumsækjendur og viðskiptavini af rétt
sýni og óhlutdrægni.“
Hvert er hlutfall kvenna á meðal stjórn
enda hjá N1?
„Í framkvæmdastjórn okkar sitja fimm
stjórnendur, þar af ein kona. Deildar stjór
arn ir eru 14, þar af tvær konur, og stöðv ar
stjórar eru 23, þar af níu konur. Verslunar
stjórar eru 15, þar af ein kona.
Stefnumið n1
Jafnréttis skal gætt við ráðningar, stöðu
hækkanir og tilfærslur í starfi
Jafnréttis skal gætt ef grípa þarf til upp
sagna af fjárhagslegum ástæðum
Tekið skal tillit til frammistöðumats óháð
kyni
Allir starfsmenn hafi jafnan rétt til starfs
menntunar og þjálfunar
Greiða skal jöfn laun og veita sömu kjör
fyrir sambærileg störf
Stefnt skal að því að jafna hlutfall kvenna
og karla í hinum ýmsu störfum innan
fyrirtækisins
Gæta skal jafnréttis hvað varðar ábyrgð
og þátttöku starfsmanna í starfshópum og
nefndum
Starfsskilyrðum skal þannig háttað að þau
henti jafnt körlum sem konum
Gera skal starfsmönnum kleift að sam
ræma einkalíf og atvinnu
Einelti og kynferðisleg áreitni er ekki liðin
75.000 vegabréf
Hvað er efst á baugi í starfi fyrirtæki
sins um þessar mundir?
„Markaðsstarfið hjá N1 hefur á undan
förnum mánuðum að mestu snúist um
N1kortið. Við höfum minnt neytendur
á að það borgar sig að leita til okkar með
allt sem varðar einkabílinn og margt fleira.
N1kortið er eitt af öflugustu vildarkerfum
landsins og ávinningur viðskiptavina felst
bæði í beinum afslætti og N1punktum sem
hægt er að nota hvenær sem er.
Í sumar snýst starfsemin mikið um
þjón ustu við fólk sem ferðast um landið,
bæði Íslendinga og erlenda gesti. Við
höf um í mörg ár staðið fyrir svokölluðum
Vegabréfa leik sem fólk safnar stimplum í
um allt land. Í fyrra voru um 75 þúsund
Vegabréf í umferð og hefur þátttakan aldrei
verið meiri.
Meðal hápunktanna hjá okkur í sumar er
hið árlega N1mót á Akureyri sem er haldið
í 25. skipti í ár, auk þess sem við erum í
samvinnu við Landsmót hestamanna og á
þjóðhátíð í Eyjum.“
kynjahlutfall tryggt eins og kostur er
„Hverjum starfsmanni ber að stuðla að því að jafnréttisstefnunni sé fylgt,
meðal annars með því að koma fram við samstarfsmenn, starfsumsækj-
endur og viðskiptavini af réttsýni og óhlutdrægni.“
N1
Ingunn Sveinsdóttir, Framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs N1.
Nýtt félag
á traustum grunni
BDO ehf. er nýtt endurskoðunarfyrirtæki sem veitir alhliða þjónustu á sviði endurskoðunar
og ráðgjafar.
BDO ehf. er aðili að alþjóðlegu neti sérfræðifyrirtækja sem öll starfa undir merkjum BDO.
www.bdo.is
BDO ehf. | Köllunarklettsvegi 1 | 104 Reykjavík | Sími: 531 1111