Frjáls verslun - 01.05.2010, Blaðsíða 10
10 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 1 0
H E L G I V I L H J Á L M S S O N Í G Ó U
TEXTI: HILMAR KARLSSON MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON
Helgi Vilhjálmsson í Góu byrjaði með eina karamelluvél árið 1968. Það voru Góu-karamellurnar.
Hann rekur núna Góu, Kentucky Fried og Taco Bell. Og síðustu árin hefur hann vakið athygli fyrir
að gagnrýna lífeyrissjóðina óspart.
FRAM YFIR HAMBORGARANA
TÓK KJÚKLINGINN
„Ég var ungur að árum þegar ég fór að vinna
í sælgætisgerðinni Nóa, hafði þá verið að
vinna við ýmislegt en festist í sælgætinu
enda mikill sælgætisgrís. Þegar ég fór svo að
huga að því að starfa sjálfstætt kom eiginlega
ekkert annað til greina en að halda áfram í
sæl gætinu,“ segir Helgi Vilhjálmsson, sem
rekið hefur sælgætisverksmiðjuna Góu síðan
1968. Helgi er einnig þekktur fyrir að vera
eigandi Kentucky Friedkjúklingastaðanna
og ekki síður þekktur af baráttu sinni fyrir
réttindum aldraðra og birtir reglulega aug
lýsingar í blöðum til að vekja athygli á
aðbúnaði aldraðra en hann vill að lífeyris
sjóð irnir leggi fé í hjúkrunarheimili. Í
síðustu auglýsingum sínum minnir hann
á að lífeyrissjóðirnir hefðu betur farið eftir
ráðleggingum sínum þar sem eftir glóru
lausa fjárfestingarstefnu hefur komið í ljós
að íbúðir fyrir aldraða eru eftir allt saman
arðsamasta fjárfestingin, en aftur að sæl
gætinu.
„Þegar ég ásamt Helga Ágústssyni stofn
aði Góu voru öðruvísi tímar og það var
meira en að segja það að stofna fyrirtæki á
þess um árum. Ég fór samt af stað með eina
karamelluvél til að byrja með. Góukara
mellurnar urðu vinsælar og lögðu grunn
inn að starfseminni. Í kjölfarið varð úrvalið
smátt og smátt meira og í kjölfarið kom m.a.
Hraunsúkkulaðið, sem alla tíð hefur verið
ein vinsælasta varan hjá okkur.“
Ameríka heillaði
En hvað kom til að Helgi fór að selja kjúkl
inga að amerískum sið? „Maður er nú að
nokkru leyti alinn upp í rokkinu, amer
ísk um bílum og amerískum kvikmyndum
og Ameríka heillaði unga menn þegar
ég var að alast upp. Þegar ég fór fyrst til
Ameríku fyrir fjörutíu árum var þetta eins
og að fá Hollywood beint í æð, sjá alla
glæsi legu bílana keyrandi á malbikuðum
hraðbrautum á sama tíma og við vorum
að keyra götótta vegi á ónýtum tíkum!
Ekki voru matsölustaðirnir sem þar birtust
manni síður mikil upplifun. Allt í einu
kynntist maður „take away“menningunni
sem ekki þekktist hér á landi og ég síðar
innleiddi á fyrsta frístandandi KFCstaðn um.
Í dag er ekki eins spennandi að fara til
Ame ríku. Við erum búnir að ná þeim í öll
um lúxusnum og gerum jafnvel enn betur
en þeir á sumum sviðum. Þeir eru að vísu
heppnari með veður og verðið á vörunum
er að mestu leyti það sama. Ég held að galla
buxurnar kosti enn $19.99 eins og þær gerðu
fyrir fjörutíu árum!
Ég valdi kjúklinginn, fannst hann vera
betri kostur en hamborgarinn, og stofnaði
fyrsta KFCstaðinn á Reykjavíkurvegi 72,
í 100 fermetrum, þar sem Skallasjoppan er
í dag. Ég átti það pláss og tel mig heppinn
að hafa fengið umboðið þar sem KFC hafði
farið illa út úr viðskiptum við nágranna
okkar í Svíþjóð og Danmörku og í dag er
Helgi Vilhjálmsson við nýjasta KFC-kjúklinga-
staðinn í Grafarvoginum.