Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2010, Blaðsíða 55

Frjáls verslun - 01.05.2010, Blaðsíða 55
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 1 0 55 Birna Einarsdóttir, forstjóri Íslandsbanka. Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis. Martha Eiríksdóttir, stjórnarmaður í Íslandsbanka. Marianne Økland, stjórnarmaður í Íslandsbanka. Una Steinsdóttir, frkvstj. viðskiptabankasviðs Íslandsbanka. Sigrún Ragna Ólafsdóttir, frkvstj. fjármála og reksturs Íslandsbanka. Monica Caneman, stjórnarformaður Arion banka. Guðrún Johnsen, varaformaður stjórnar Arion banka. Björk Þórarinsdóttir, frkvstj. fyrirtækjasviðs Arion banka. Margrét Sveinsdóttir, frkvstj. eignastýringar Arion banka. Lilja Steinþórsdóttir, frkvstj. innri endurskoðunar Arion banka. Bryndís Jónsdóttir, frkvstj. starfsmannasviðs Arion banka. Anna Bjarney Sigurðardóttir, frkvstj. viðskiptabankasviðs Landsbankans. Kristín Baldursdóttir, frkvstj. innri endurskoðunar Landsbanka. Sigríður Hrólfsdóttir, varaformaður bankaráðs Landsbanka. Guðríður Ólafsdóttir, bankaráði Landsbankans. Þórdís Ingadóttir, bankaráði Landsbankans. Lára V. Júlíusdóttir, formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands. Kristín Rafnar, forstöðumaður OMX Nasdaq og formaður valnefndar Bankasýslu. Halla Tómasdóttir, starfandi stjórnarformaður Auðar Capital. Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital. Helga Valfells, frkvstj. Nýsköpunarsjóðs. Elín Jónsdóttir, forstjóri Bankasýslu ríkisins. Sonja María Hreinsdóttir, varaformaður Bankasýslu ríkisins. Guðrún Ragnarsdóttir, frkvstj. Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Helga Hlín Hákonardóttir, frkvstj. lögfræðisviðs Saga Capital. FJÁRMÁLAFYRIRTÆKI Birna Einarsdóttir, forstjóri Íslandsbanka – Finnur þú fyrir nýjum tímum og nýrri hugsun í þjóðfélaginu eða finnst þér allt vera að fara í sama farveg aftur? Mér finnst hugsunarháttur og áherslur um margt hafa breyst og ég veit að við höfum lært heilmikið af biturri reynslu. Það er mikilvægt að draga réttan lærdóm af fortíðinni. – Ef þú yrðir forsætisráðherra í einn dag; hvert yrði þitt fyrsta verk? Tryggja aðgerðir sem koma atvinnulífinu í gang – aðgerðir sem minnka atvinnuleysi. Það sorglegasta sem getur komið út úr þessum ósköpum er að við verðum þjóð sem festist í atvinnuleysi. Ég hef alltaf verið stoltust af því sem Íslendingur hversu mikil atvinnuþátttaka er hér – það verður hræðilegt ef við ölum upp kynslóðir atvinnulausra. – Fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækja er mál málanna. Hvernig geta bankarnir hraðað þessu ferli? Ég hefði viljað sjá þetta ferli ganga hraðar fyrir sig, ég viðurkenni það. Við þurfum að geta gengið vasklegar til verksins. Bankarnir eru og hafa verið undir miklu beinu og óbeinu eftirliti stofnana, stjórnmálamanna og ann­ arra aðila. Nýlegur dómur um erlendu lánin er ekki til að hjálpa. – Sérðu einhver teikn á lofti um að það versta sé að baki í atvinnulífinu? Ég vil leyfa mér að halda það. Auðvitað er ennþá mikil óvissa, sem er ekki góð, en þrátt fyrir það finnst mér hljóðið í fyrirtækjum og atvinnulífi svolítið jákvæðara nú en það var fyrir ári. – Er það ekki gömul klisja að það sé munur á konum og körlum sem stjórnendum? Æi, ég veit það ekki – held við konur tökum þetta aðeins meira inn á okkur allt saman. – Hvaða heilræði í stjórnun heldur þú mest upp á?  Einhenda sér í málin! – Viðskiptalífið væri betra ef … … við gætum endurheimt traustið á grunnstoðirnar hratt. Hluti af þess um grunnstoðum eru bankarnir og okkar megináhersla er að endur­ vinna traust viðskiptavina. Margt hefur áunnist í því en ef við gætum hraðað því ferli yrði viðskiptalífið betra.  „Mér finnst hugsunarháttur og áherslur um margt hafa breyst og ég veit að við höfum lært heilmikið af biturri reynslu. Það er mikilvægt að draga réttan lærdóm af fortíðinni.“ Martha Eiríksdóttir, stjórnarmaður í Íslandsbanka. Marianne Økland, stjórnarmaður í Íslandsbanka. – Hvaða árangur ertu ánægðust með innan þíns fyrirtækis? Það sem skiptir okkur hjá Glitni mestu máli er að ég tel að það hafi tekist að verja eins vel og mögulegt er þau verð mæti sem eru í búi félagsins þannig að hægt verði að endur heimta sem mest fyrir kröfuhafa bankans. – Finnur þú fyrir nýjum tímum og nýrri hugsun í þjóðfél ag­ inu eða finnst þér allt vera að fara í sama farveg aftur? Við lifum á miklum umbrotatímum og það er of snemmt að meta það nú að hve miklu leyti þeir atburðir sem hér hafa orðið hafa áhrif á viðhorf fólks til lengri tíma litið. Ég hef þó fulla trú á því að þjóðin og viðskipta­ og fjármálalífið, einkum og sér í lagi, hafi lært sína lexíu. – Ef þú yrðir forsætisráðherra í einn dag; hvert yrði þitt fyrsta verk? Það er ekki á stefnuskránni hjá mér að fara í pólitík þannig að ég læt þessari spurningu ósvarað. – Fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækja er mál málanna. Hvernig geta bankarnir hraðað þessu ferli? Vænlegasta leiðin til að hraða fjárhagslegri endurskipu lagn­ ingu fyrirtækjanna er náið samstarf banka og fyrirtækja. – Sérð þú einhver teikn á lofti um að það versta sé að baki í atvinnulífinu? Auðvitað vonum við að það versta sé að baki en ég geri samt ráð fyrir að það muni taka okkur þó nokkurn tíma að komast út úr þeim þrengingum sem þjóðin er nú í. – Er það ekki gömul klisja að það sé munur á konum og körlum sem stjórnendum? Nei, ég held að það sé talsvert til í þessu. Konur og karlar hafa ólíkan stjórnunarstíl. Þetta mun væntanlega breytast eftir því sem konum fjölgar í stjórnum fyrirtækja og karlar læra að tileinka sér það sem konur hafa fram að færa. – Hvaða heilræði í stjórnun heldur þú mest upp á? Heiðarleiki og sanngirni eru eiginleikar sem ég met mikils. – Viðskiptalífið yrði betra ef … … okkur tækist að endurheimta það traust sem tapaðist í efnahagshruninu. Steinunn situr í stjórn eigin fyrirtækis en það er lögmannsstofan Megin ehf. Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis NÁIÐ SAMSTARF BANKA OG FYRIRTÆKJA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.