Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2010, Blaðsíða 54

Frjáls verslun - 01.05.2010, Blaðsíða 54
54 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 1 0 – Fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækja er mál málanna. Hvernig geta bankarnir hraðað þessu ferli? Með því að hafa leikreglurnar einfaldar og skilvirkar. Huga þarf vel að rekstrarumhverfi fyrirtækja og gæta að því að hvorki bankar né hið opinbera skekki samkeppnisstöðu þeirra fyrirtækja sem eftir standa. Fjármögnun fyrirtækja og verkefna er torsótt sem er mikið áhyggjuefni ef hjólin eiga að fara að snúast. – Sérð þú einhver teikn á lofti um að það versta sé að baki í atvinnulífinu? Já, mér finnst að hugarfarið sé að verða jákvæðara en enn eru þó mörg mál óleyst og hlutirnir gerast hægt, sem er dýrt fyrir okkur sem þjóð. – Er það ekki gömul klisja að það sé munur á konum og körlum sem stjórnendum? Hver einstaklingur er einstakur en það er ekki klisja að okkur vantar meiri fjölbreytni í forystu atvinnu­ lífsins og því þarf að breyta hið fyrsta. – Hvaða heilræði í stjórnun heldur þú mest upp á? Að einbeita sér að því sem maður gerir best. – Viðskiptalífið yrði betra ef … … allir kepptu að sama marki og sæju að samvinna er allra hagur. Því öflugra sem atvinnulífið er, því meira leggst til samgæðanna. Hið opinbera þarf að setja leikreglurnar og tryggja að þær séu virtar en á aldrei að leika aðalhlutverkið í viðskiptalífinu. Áslaug situr í stjórnum eigin félaga sem eru AP almannatengsl, Port hönnun og ATH fjárfestingar. „Huga þarf vel að rekstrarumhverfi fyrirtækja og gæta að því að hvorki bankar né hið opinbera skekki sam ­ keppnisstöðu þeirra fyrirtækja sem eftir standa.“ Auður Þorgeirsdóttir, frkvstj. þjónustu Capacent. Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala. Birna Einarsdóttir, forstjóri Íslandsbanka. Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis. Martha Eiríksdóttir, stjórnarmaður í Íslandsbanka. Marianne Økland, stjórnarmaður í Íslandsbanka. Una Steinsdóttir, frkvstj. viðskiptabankasviðs Íslandsbanka. Sigrún Ragna Ólafsdóttir, frkvstj. fjármála og reksturs Íslandsbanka. Monica Caneman, stjórnarformaður Arion banka. Guðrún Johnsen, varaformaður stjórnar Arion banka. Björk Þórarinsdóttir, frkvstj. fyrirtækjasviðs Arion banka. Margrét Sveinsdóttir, frkvstj. eignastýringar Arion banka. Lilja Steinþórsdóttir, frkvstj. innri endurskoðunar Arion banka. Bryndís Jónsdóttir, frkvstj. starfsmannasviðs Arion banka. Anna Bjarney Sigurðardóttir, frkvstj. viðskiptabankasviðs Landsbankans. Kristín Baldursdóttir, frkvstj. innri endurskoðunar Landsbanka. Sigríður Hrólfsdóttir, varaformaður bankaráðs Landsbanka. Guðríður Ólafsdóttir, bankaráði Landsbankans. Þórdís Ingadóttir, bankaráði Landsbankans. Lára V. Júlíusdóttir, formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands. Kristín Rafnar, forstöðumaður OMX Nasdaq og formaður valnefndar Bankasýslu. Halla Tómasdóttir, starfandi stjórnarformaður Auðar Capital. Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital. Helga Valfells, frkvstj. Nýsköpunarsjóðs. Elín Jónsdóttir, forstjóri Bankasýslu ríkisins. Sonja María Hreiðarsdóttir, varaformaður Bankasýslu ríkisins. Guðrún Ragnarsdóttir, frkvstj. Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Helga Hlín Hákonardóttir, frkvstj. lögfræðisviðs Saga Capital. FJÁRMÁLAFYRIRTÆKI Birna Einarsdóttir, forstjóri Íslandsbanka VIÐ ÞURFUM AÐ GETA GENGIÐ VASKLEGAR TIL VERKS – Hvaða árangur ertu ánægðust með innan þíns fyrirtækis? Ég er mjög ánægð með allan þann árangur sem starfsfólk bankans á öllum sviðum hefur náð við uppbyggingu hans frá hausti 2008. Starfs­ fólk og viðskiptavinir bankans hafa þurft að starfa við mikla óvissu og í mjög erfiðu umhverfi en þrátt fyrir það hefur margt áunnist.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.