Frjáls verslun - 01.05.2010, Blaðsíða 14
14 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 1 0
Ný
forgangs-
röðun
Hreyfing hittir beint í mark. Frábær aðstaða,
notalegt umhverfi, góð þjónusta og afslappað
andrúmsloft. Fagfólk sem gulltryggir árangur,
ánægju og vellíðan.
Þinn sælureitur, ótæmandi uppspretta
andlegrar og líkamlegrar orku.
www.hreyfing.is
Sími: 414 4000
hreyfing@hreyfing.is
www.hreyfing.is
www.bluelagoon.is
Fyrst þetta ...
SALKA
FAGNAR 10 ÁRUM
Eftir 15 góð ár sem ritstjóri hjá
Máli og menningu langaði Hildi
Hermóðsdóttur til að spreyta
sig við eigin útgáfu og leggja
áherslu á bækur fyrir og eftir
konur. Ævintýrið hófst og Hildur
stofn aði Sölku ásamt Þóru
Sigríði Ingólfsdóttur en keypti svo
hennar hlut tveimur árum síðar.
Einn af skáldsagnahöfundum
Sölku er Auður Ava Ólafsdóttir
en bækur hennar, Rigning í
nóvember og Afleggjarinn, náðu
miklum vinsældum og hafa verið
seldar víða erlendis. Einnig má
nefna nýjan barnabókahöfund
forlagsins, Hendrikku Waage,
en bók hennar, Rikka og töfra-
hringurinn á Íslandi, er í met sölu
um þessar mundir og var nýlega
tilnefnd af Sameinuðu þjóðunum
til að vekja athygli á menntunar-
og umhverfismálum barna um
allan heim.
Nýstárleg dagatalsbók, Konur
eiga orðið, er eitt af flaggskipum
Sölku en þar eiga konur um
allt land smellnar setningar um
hvaðeina sem þeim dettur í hug.
Einkunnarorð Sölku eru forlag
með sál.
Afraksturinn eftir 10 ár eru
rúmlega 250 titlar auk þess
sem hún er orðin ein af stærri
útgáfum á Íslandi.
Starfsfólk Sölku, Embla, Halldór, Nanna, Hildur, Hlín, Sigrún og Kristín.
Kristín Birgisdóttir, Hildur Hermóðsdóttir og Thor Vilhjálmsson.
Steinunn Þorvaldsdóttir, Ragnhildur Gísladóttir og Hildur Hermóðsdóttir.