Frjáls verslun - 01.05.2010, Blaðsíða 48
48 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 1 0
Sigríður Benediktsdóttir, prófessor og í rannsóknarn. Alþingis.
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands.
Herdís Þorgeirsdóttir, prófessor á Bifröst.
Guðrún Högnadóttir, lektor Háskólanum í Reykjavík.
Björg Thorarensen, prófessor við Háskóla Íslands.
Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands.
Margrét Pála Ólafsdóttir, forstjóri Hjallamiðstöðvarinnar.
Bryndís Hlöðversdóttir, aðstoðarrektor á Bifröst.
SKÓLAR
– Hvaða árangur ert þú ánægðust með innan þíns fyrirtækis?
Það gleður mig að upplifa hina miklu sókn einstaklinga
og vinnustaða í aukna þekkingu hjá Opna háskólanum
á erfiðum tímum í vetur. Það er ljóst að við höfum trú á
þeim verðmætum sem liggja í auk inni menntun – og að
vinnustaðir eru tilbúnir að fjárfesta í þeim tækifærum sem
liggja í lífstíðarlærdómi (life long learning).
– Finnur þú fyrir nýjum tímum og nýrri hugsun í þjóðfélaginu
eða finnst þér allt vera að fara í sama farveg aftur?
Ég finn fyrir mjög breyttum viðhorfum í okkar samfélagi. Fólk
staldrar við og metur eigin gildi og hefur fundið kjarkinn til að
forgangsraða upp á nýtt. Vinnustaðir eru að skerpa á stefnu,
hafa mótað skýrari og raunhæfari fókus og vinna í einfaldara
skipulagi.
– Ef þú yrðir forsætisráðherra í einn dag; hvert yrði þitt
fyrsta verk?
Hefja markvissar aðgerðir til að verja og auka samkeppnis
hæfni Íslands til skemmri og lengri tíma m.a. með því að
fjárfesta í þekkingu á fjórum stoðum útflutnings: sjávar
útvegi, ferðaþjónustu, orku og hátækni.
FÓLK STALDRAR VIÐ
Sigríður Benediktsdóttir,
prófessor og í rannsóknarn. Alþingis.
Kristín Ingólfsdóttir,
rektor Háskóla Íslands.
Herdís Þorgeirsdóttir,
prófessor á Bifröst.
Björg Thorarensen,
prófessor við Háskóla Íslands.
Salvör Nordal,
forstöðumaður Siðfræðistofnunar
Háskóla Íslands.
Margrét Pála Ólafsdóttir,
forstjóri Hjallamiðstöðvarinnar
Bryndís Hlöðversdóttir,
aðstoðarrektor á Bifröst.
Guðrún Högnadóttir,
framkvæmdastjóri Opna háskólans í HR