Frjáls verslun - 01.05.2010, Page 30
30 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 1 0
Guðbjörg Matthíasdóttir, eigandi Ísfélags Vestmannaeyja.
Guðrún Lárusdóttir, eigandi og frkvstj. Stálskipa.
Rakel Olsen, stjórnarformaður Agustson í Stykkishólmi.
Laufey Eyjólfsdóttir, frkvstj. Toppfisks.
SJÁVARÚTVEGUR
-Hvaða árangur ertu ánægðust með
innan þíns fyrirtækis?
Ég fagna því að hafa getað staðið í
skilum með skuldbindingar okkar
síðustu misserin og haldið sjó.
– Finnur þú fyrir nýjum tímum og
nýrri hugsun í þjóðfélaginu eða
finnst þér allt vera að fara í sama
farveg aftur?
Þetta er erfið spurning en vonandi
verða menn ábyrgari þegar framboð á
fjármagni minnkar.
– Ef þú yrðir forsætisráðherra í einn
dag; hvert yrði þitt fyrsta verk?
Ég myndi draga umsókn okkar
um aðild að ESB til baka, blása
út af borðinu hugmyndina um
fyrningarleiðina í sjávarútvegi, fækka
ríkisstarfsmönnum verulega og láta
30-40 þingmenn duga.
– Fjárhagsleg endurskipulagning
fyrirtækja er mál málanna. Hvernig
geta bankarnir hraðað þessu ferli?
Með því að hjálpa þeim fyrirtækjum
sem geta bætt við sig skuldum um
aukið rekstrarfé. Önnur fyrirtæki
fari í gjaldþrot og verði seld nýjum
rekstraraðilum.
– Sérð þú einhver teikn á lofti
um að það versta sé að baki í
atvinnulífinu?
Því miður held ég að margt sé ógert
áður en atvinnulífið fer að blómstra á
nýjan leik.
– Er það ekki gömul klisja að það
sé munur á konum og körlum sem
stjórnendum?
Ég hef haldið því fram að konur og
karlar bæti hvert annað upp og því sé
heppilegra að þau í sameiningu komi
að stjórnun, þar sem slíkt er hægt.
– Hvaða heilræði í stjórnun heldur
þú mest upp á?
Góð samskipti við starfsmenn
og viðskiptavini, heiðarleika og
reglusemi.
– Viðskiptalífið yrði betra ef …
… heiðarleiki, traust og meiri jákvæðni
væri fyrir hendi í umhverfi okkar.
Rakel situr í stjórn Agustson A/S í Danmörku
og í stjórn Minjaverndar.
FÆKKA ÞINGMÖNNUM UM HELMING
Guðbjörg Matthíasdóttir,
eigandi Ísfélags Vestmannaeyja.
Laufey Eyjólfsdóttir,
frkvstj. Toppfisks.
Rakel Olsen,
stjórnarformaður Agustson
í Stykkishólmi