Frjáls verslun - 01.05.2010, Blaðsíða 88
88 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 1 0
ausasölulyf eru ekki hefðbundnar
neyslu vörur heldur vörur sem fólk
tekur tímabundið til að hjálpa sér við
að leysa vandamál eða stuðla að betri
líðan. Að sögn Báru Einarsdóttur, sölu- og
markaðsstjóra lausasölulyfjasviðs hjá Vistor,
skyldi hafa hugfast að þótt gott geti verið að
nota lyf þegar fólk þarf á því að halda, þá
sé jafnframt afar mikilvægt að lyf séu ekki
ofnotuð:
„Það er því lykilatriði að starfsfólk apó teka
sé vel upplýst um eðli lyfjanna, verk unar-
máta þeirra og aukaverkanir, svo það geti
ráð lagt viðskiptavininum sem best.
Að selja lausasölulyf snýst um fræðslu
Hér á lausasölulyfjasviði hjá Vistor starfa
tveir lyfjatæknar sem sinna fræðslu og
ráðgjöf til apóteka. Þeirra hlutverk er m.a.
að tryggja að starfsfólk apóteka sé vel upplýst
um þær vörur sem við vinnum með og vel
í stakk búið til að veita viðskiptavinum
upplýsingar eða ráðgjöf.
Nicorette er stærsta varan sem við vinnum
með og eitt stærsta lyfið á lyfjamarkaði hér
á landi. Þar er um tiltölulega flókna vöru
að ræða þótt verkunarmátinn sé í sjálfu
sér ekki svo flókinn. Nicorette fæst í fimm
mis munandi lyfjaformum; sem tyggi -
gúmmí, plástur, innsogslyf, nefúði og
tungu rótartöflur. Mikilvægt er að lyfið sé
rétt notað, í nægilegu magni og nægilega
lengi, svo árangurinn til reykleysis verði sem
bestur. Auk þess má fara mismunandi leiðir
með aðstoð Nicorette til að ná árangri í að
hætta að reykja. Margir hætta bara strax og
nýta Nicorette sem uppbótarmeðferð til að
draga úr vanlíðan og fráhvarfseinkennum.
Einnig er hægt að draga úr reykingum með
því að skipta annarri hverri sígarettu út fyrir
t.d. Nicorette-tyggjó og fara þetta þannig í
smáskrefum. Árangursríkasta leiðin er hins
vegar samsetta meðferðin. Hún felur í sér
að notaður er Nicorette-plástur í grunninn
og síðan notar maður Nicorette-tyggjó
eða innsogslyfið með þegar mesta þörfin
hellist yfir. Það hefur sýnt sig að samsetta
meðferðin gefur bestan árangur til lengri
tíma litið.“
„Það er því lykil atriði að
starfsfólk apóteka sé vel
upplýst um eðli lyfjanna,
verk unarmáta þeirra og auka
verkanir, svo það geti ráðlagt
viðskiptavininum sem best.“
Anna Bjarnadóttir, lyfjatæknir
og sölu- og markaðsfulltrúi,
Bára Einarsdóttir, sölu- og mark-
aðsstjóri, og Guðný Traustadóttir,
lyfjatæknir og sölu- og markaðs-
fulltrúi.
FRÆÐSLA OG RÁÐGJÖF
TIL APÓTEKA
L
VISTOR