Frjáls verslun - 01.05.2010, Blaðsíða 123
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 1 0 123
300 HROSS FRÁ STUTTGART
Á næsta ári kemur á markaðinn nýr Mercedes-Benz CLS-sportskutbíll
sem á að keppa við Grand Tourismo-fimmuna frá BMW. Það eru margar
nýjungar íbílnum, meðal annars er þetta fyrsti bíllinn sem er með LED-
framljós sem beygjast og stillast eftir ökuhraða og vegi, stillt eftir GPS-
leiðarkerfinu. Hönnunin á nýja CLS-inum sýnir glöggt í hvaða átt Benz
er að fara í hönnun, framtíðin er núna. Aðalvélin sem bíllinn verður
boðinn með er ný 3,5 lítra V6-bensínvél með 60 gráða halla sem skilar
rétt rúmum 300 hestöflum. Bíllinn er hugsaður sem frábær ferðabíll. Í
honum er gott farangursrými og rúmt um farþegana. Það er bara pláss
fyrir þrjá. Enda eru sætin frábær, hálfgerðir lazyboy-stólar.
BRASILÍSKIR BÍLAR
Fíat og Volkswagen skipta bróðurlega á milli sín einum
stærsta bílamarkaði heims í Brasilíu. Nær helmingur allra
bíla kemur frá þessum tveimur framleiðendum, Fíat er með
23,3% markaðshlutdeild og Volkswagen með 23,1%. Mest
seldi bíllinn er Volkswagen Golf, númer tvö er Fíat Uno,
Chevrolet Corsa númer þrjú, Volkswagen Fox númer fjögur og
Fíat Palíó númer fimm. Allir þessir bílar eru framleiddir í knatt-
spyrnulandinu, en háir tollar hindra innflutning. Japönsku
fram leiðendurnir hafa enn ekki komið sér fyrir að neinu marki
í þessu stærsta og fjölmennasta landi Suður-Ameríku. Fyrsti
Japaninn er í fimmtánda sæti, Toyota Corolla.
GT-R
Það er saga til næsta bæjar þegar stærsta bílablað
heims, hið þýska Auto Motor und Sport, tekur Japani
fram yfir Þjóðverja. Þeir prófuðu og báru saman
Porsche 911 Turbo og Nissan GT-R. Nissaninn þótti
betri. Og snöggur er hann; 3,5 sekúndur í hundraðið og
11,7 í þrjú hundruð, sem er svipaður tími og tekur venju-
lega fjölskyldubíla að ná hundraðinu. GT-R er með 3,8
lítra V6, tvær túrbínur og hestöflin eru öðruhvoru megin
við fimm hundruð. Nurburger Nordschleife-hringinn fór
GT-Rinn á sjö mínútum og 35 sekúndum. Fimm sekúnd um
betri tími en Túrbó-Porsche-inn eða Mercedes SLR
McLaren. Ef maður er ekki spenntur fyrir súpersportbíl,
þá er Nissan að koma með fyrsta fjöldaframleidda raf-
magnsbílinn í heiminum, Nissan Leaf.
Bílar