Frjáls verslun - 01.05.2010, Blaðsíða 49
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 1 0 49
„Vinnustaðir eru að skerpa á stefnu, hafa
mótað skýrari og raunhæfari fókus og
vinna í einfaldara skipulagi.“
Koma hjólum atvinnulífsins aftur af stað með fullvissu sam
eiginlegra hagsmuna: Eftir því sem lífskjör heimila batna og
tekjur fyrirtækja aukast, þeim mun betur gengur að standa
undir sameiginlegri þjónustu og því velferðarkerfi sem við
Íslendingar sækjumst eftir.
Taka ákvörðun um framtíðarsýn lýðveldis ins: hafa kjarkinn
til að skerpa á stefnu, skipulagi og umgjörð stjórnsýslu. M.a.
með því að beita mér fyrir því að efnt verði til stjórnlagaþings
til að endurskoða grunnstoðir lýðræðisins, hrinda í fram
kvæmd Sóknaráætlun 2020 og sameinast um stöðug
leikaaðgerðir með fulltrúum at vinnu lífsins og launþega til
næstu fimm ára.
Taka ákvörðun um virði opinbers rekstrar út frá þrennum
forsendum í fjárlögum næstu fimm ára
Verðmæti verka – Hvert er framlag /raunvirði málaflokka til
þjóðarinnar?
Skammtímahagsmunir – Hversu áríðandi er þetta verkefni?
Langtímahagsmunir – Hversu mikilvægur er þessi mála
flokkur?
Efla tengsl atvinnulífs og menntastofn ana, t.d. með auknu
framlagi til nýsköp unar og leggja þannig grunninn að þekk
ingar samfélaginu Íslandi.
– Fjárhagsleg endurskipulagning fyrir tækja er mál
málanna. Hvernig geta bankarnir hraðað þessu ferli?
Með því að taka erfiðar ákvarðanir út frá skýrum ramma – og
taka þær hratt.
– Sérð þú einhver teikn á lofti um að það versta sé að baki
í atvinnulífinu?
Þegar rýnt er í macrohag mæli kvarða er því miður ekki að
finna marga óvænta glaðninga – til dæmis er atvinnuleysi og
hag vöxtur enn í takt við svart sýnisspár. Útkoma skýrslu rann
sókna rnefndar Alþingis var ákveð inn huglægur vendi punktur
og spár hagfræðinga lofa betra veðri 2011 og 2012.
– Er það ekki gömul klisja að það sé munur á konum og
körlum sem stjórnendum?
Ég deili þeirri skoðun með Charles Darwin að fjölbreytileiki
sé undirstaða stöðugleika. Ég tel mikilvægt að búa til öflug ar
liðsheildir úr ólíkum einstakl ing um hvort sem það varðar
aldur, kyn, skoðanir, reynslu eða menntun. Ég tel vera mun á
körl um og konum sem ber að virða og virkja!
– Hvaða heilræði í stjórnun heldur þú mest upp á?
Fólk, fókus, framtíðarsýn/gildi, festa og auðmjúk forysta hvers
og eins – þar liggur árangur. (Jim Collins – Good to Great)
– Viðskiptalífið yrði betra ef …
… við gætum sameinast um sýn um Ísland í fullkomnum
heimi.
Guðrún situr í stjórnum Vistors, Klaksins, Lífs og LeiðtogaAuðar.
Guðrún Högnadóttir,
framkvæmdastjóri Opna háskólans í HR
Hrefna Rós Sætran,
eigandi og yfirkokkur
Fiskmarkaðarins við Aðalstræti.
Aðalheiður Héðinsdóttir,
eigandi Kaffitárs og stjórnar-
formaður ÁTVR.
Helga Lára Hólm,
frkvstj. Ísfugls í Mosfellsbæ.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir,
eigandi og frkvstj. Pizza Hut.
– Hvaða árangur ertu ánægðust með innan þíns fyrirtækis?
Hér í Kaffitári er unnið vel og skynsamlega. Við erum hugmyndarík
og öguð í vinnubrögðum auk þess að hafa gaman af vinnunni og
ástríðu fyrir kaffi.
– Finnur þú fyrir nýjum tímum og nýrri hugsun í þjóðfélaginu eða
finnst þér allt vera að fara í sama farveg aftur?
Það er ný hugsun sveimandi yfir og vonandi fær hún að skjóta
rótum og dafna. Meiri ábyrgð og aðhald er það sem maður finnur
vel fyrir.
– Ef þú yrðir forsætisráðherra í einn dag; hvert yrði þitt fyrsta verk?
Ganga í ESB.
– Fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækja er mál málanna.
Hvernig geta bankarnir hraðað þessu ferli?
Eru þeir ekki að vinna vel í þessum málum? Þetta er örugglega ekki
auðvelt verk. Treystum þessu fólki til að gera það besta fyrir hvert
og eitt fyrirtæki. Mikilvægt er að þau fyrirtæki sem eru vel rekin fái
ekki ójafna samkeppni yfir sig frá fyrirtækjum sem er haldið á floti
af hagsmunaaðilum.
Aðalheiður Héðinsdóttir,
forstjóri Kaffitárs
FÓLK STALDRAR VIÐ