Frjáls verslun - 01.05.2010, Qupperneq 55
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 1 0 55
Birna Einarsdóttir, forstjóri Íslandsbanka.
Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis.
Martha Eiríksdóttir, stjórnarmaður í Íslandsbanka.
Marianne Økland, stjórnarmaður í Íslandsbanka.
Una Steinsdóttir, frkvstj. viðskiptabankasviðs Íslandsbanka.
Sigrún Ragna Ólafsdóttir, frkvstj. fjármála og reksturs Íslandsbanka.
Monica Caneman, stjórnarformaður Arion banka.
Guðrún Johnsen, varaformaður stjórnar Arion banka.
Björk Þórarinsdóttir, frkvstj. fyrirtækjasviðs Arion banka.
Margrét Sveinsdóttir, frkvstj. eignastýringar Arion banka.
Lilja Steinþórsdóttir, frkvstj. innri endurskoðunar Arion banka.
Bryndís Jónsdóttir, frkvstj. starfsmannasviðs Arion banka.
Anna Bjarney Sigurðardóttir, frkvstj. viðskiptabankasviðs
Landsbankans.
Kristín Baldursdóttir, frkvstj. innri endurskoðunar Landsbanka.
Sigríður Hrólfsdóttir, varaformaður bankaráðs Landsbanka.
Guðríður Ólafsdóttir, bankaráði Landsbankans.
Þórdís Ingadóttir, bankaráði Landsbankans.
Lára V. Júlíusdóttir, formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands.
Kristín Rafnar, forstöðumaður OMX Nasdaq og formaður
valnefndar Bankasýslu.
Halla Tómasdóttir, starfandi stjórnarformaður Auðar Capital.
Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital.
Helga Valfells, frkvstj. Nýsköpunarsjóðs.
Elín Jónsdóttir, forstjóri Bankasýslu ríkisins.
Sonja María Hreinsdóttir, varaformaður Bankasýslu ríkisins.
Guðrún Ragnarsdóttir, frkvstj. Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
Helga Hlín Hákonardóttir, frkvstj. lögfræðisviðs Saga Capital.
FJÁRMÁLAFYRIRTÆKI
Birna Einarsdóttir,
forstjóri Íslandsbanka
– Finnur þú fyrir nýjum tímum og nýrri hugsun í þjóðfélaginu eða
finnst þér allt vera að fara í sama farveg aftur?
Mér finnst hugsunarháttur og áherslur um margt hafa breyst og ég veit
að við höfum lært heilmikið af biturri reynslu. Það er mikilvægt að draga
réttan lærdóm af fortíðinni.
– Ef þú yrðir forsætisráðherra í einn dag; hvert yrði þitt fyrsta verk?
Tryggja aðgerðir sem koma atvinnulífinu í gang – aðgerðir sem minnka
atvinnuleysi. Það sorglegasta sem getur komið út úr þessum ósköpum er
að við verðum þjóð sem festist í atvinnuleysi. Ég hef alltaf verið stoltust
af því sem Íslendingur hversu mikil atvinnuþátttaka er hér – það verður
hræðilegt ef við ölum upp kynslóðir atvinnulausra.
– Fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækja er mál málanna.
Hvernig geta bankarnir hraðað þessu ferli?
Ég hefði viljað sjá þetta ferli ganga hraðar fyrir sig, ég viðurkenni það. Við
þurfum að geta gengið vasklegar til verksins. Bankarnir eru og hafa verið
undir miklu beinu og óbeinu eftirliti stofnana, stjórnmálamanna og ann
arra aðila. Nýlegur dómur um erlendu lánin er ekki til að hjálpa.
– Sérðu einhver teikn á lofti um að það versta sé að baki í
atvinnulífinu?
Ég vil leyfa mér að halda það. Auðvitað er ennþá mikil óvissa, sem er ekki
góð, en þrátt fyrir það finnst mér hljóðið í fyrirtækjum og atvinnulífi
svolítið jákvæðara nú en það var fyrir ári.
– Er það ekki gömul klisja að það sé munur á konum og körlum
sem stjórnendum?
Æi, ég veit það ekki – held við konur tökum þetta aðeins meira inn á
okkur allt saman.
– Hvaða heilræði í stjórnun heldur þú mest upp á?
Einhenda sér í málin!
– Viðskiptalífið væri betra ef …
… við gætum endurheimt traustið á grunnstoðirnar hratt. Hluti af
þess um grunnstoðum eru bankarnir og okkar megináhersla er að endur
vinna traust viðskiptavina. Margt hefur áunnist í því en ef við gætum
hraðað því ferli yrði viðskiptalífið betra.
„Mér finnst hugsunarháttur og áherslur um
margt hafa breyst og ég veit að við höfum lært
heilmikið af biturri reynslu. Það er mikilvægt
að draga réttan lærdóm af fortíðinni.“
Martha
Eiríksdóttir,
stjórnarmaður
í Íslandsbanka.
Marianne Økland,
stjórnarmaður í Íslandsbanka.
– Hvaða árangur ertu ánægðust með innan þíns fyrirtækis?
Það sem skiptir okkur hjá Glitni mestu máli er að ég tel að
það hafi tekist að verja eins vel og mögulegt er þau verð mæti
sem eru í búi félagsins þannig að hægt verði að endur heimta
sem mest fyrir kröfuhafa bankans.
– Finnur þú fyrir nýjum tímum og nýrri hugsun í þjóðfél ag
inu eða finnst þér allt vera að fara í sama farveg aftur?
Við lifum á miklum umbrotatímum og það er of snemmt að
meta það nú að hve miklu leyti þeir atburðir sem hér hafa
orðið hafa áhrif á viðhorf fólks til lengri tíma litið. Ég hef
þó fulla trú á því að þjóðin og viðskipta og fjármálalífið,
einkum og sér í lagi, hafi lært sína lexíu.
– Ef þú yrðir forsætisráðherra í einn dag; hvert yrði þitt
fyrsta verk?
Það er ekki á stefnuskránni hjá mér að fara í pólitík þannig
að ég læt þessari spurningu ósvarað.
– Fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækja er mál
málanna. Hvernig geta bankarnir hraðað þessu ferli?
Vænlegasta leiðin til að hraða fjárhagslegri endurskipu lagn
ingu fyrirtækjanna er náið samstarf banka og fyrirtækja.
– Sérð þú einhver teikn á lofti um að það versta sé að
baki í atvinnulífinu?
Auðvitað vonum við að það versta sé að baki en ég geri
samt ráð fyrir að það muni taka okkur þó nokkurn tíma að
komast út úr þeim þrengingum sem þjóðin er nú í.
– Er það ekki gömul klisja að það sé munur á konum og
körlum sem stjórnendum?
Nei, ég held að það sé talsvert til í þessu. Konur og karlar
hafa ólíkan stjórnunarstíl. Þetta mun væntanlega breytast
eftir því sem konum fjölgar í stjórnum fyrirtækja og karlar
læra að tileinka sér það sem konur hafa fram að færa.
– Hvaða heilræði í stjórnun heldur þú mest upp á?
Heiðarleiki og sanngirni eru eiginleikar sem ég met mikils.
– Viðskiptalífið yrði betra ef …
… okkur tækist að endurheimta það traust sem tapaðist í
efnahagshruninu.
Steinunn situr í stjórn eigin fyrirtækis en það er lögmannsstofan Megin ehf.
Steinunn
Guðbjartsdóttir,
formaður slitastjórnar
Glitnis
NÁIÐ SAMSTARF BANKA
OG FYRIRTÆKJA