Frjáls verslun - 01.07.2010, Side 47
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 1 0 47
Næsta kynslóð
netbanka
Netbankar stökkbreyttu þjónustu banka og
eru nú hluti af daglegu lífi flestra. En hafa þeir
staðnað síðan þeir komu fyrst fram? Svo segir
Georg Lúðvíksson hjá hugbúnaðarfyrirtækinu
Meniga. Hægt sé að nýta miklu betur þær upp-
lýsingar sem liggja í færslum í netbönkum til
að hjálpa fólki að stjórna heimilisfjármálunum á
skilvirkari og skemmtilegri hátt.
Georg Lúðvíksson, frumkvöðull hjá
hugbúnaðarfyrirtækinu Meniga:
Heitið Meniga var ekki bara valið vegna þess að það rímar við peninga eins og í frægum texta Ólafs Hauks Símonar-sonar. Þetta er líka orð sem gengur vel á erlendum tungu-málum þótt það þýði svo sem ekkert. Og svo var lénið
www.meniga.com falt fyrir hóflegt verð. Þetta skiptir allt máli.
„Það er hægt að nýta netbankana miklu betur en gert er í dag,“
segir Georg Lúðvíksson. Að hans mati er „næsta kynslóð“ net banka
einmitt núna að koma fram og bankar víða um heim eru áhuga samir um
lausnir á borð við Meniga. Þetta er þróun sem hófst í Bandaríkjunum um
það bil sem fjármálakreppan fór að gera vart við sig.
Bankahrunið á Íslandi hefur stutt við þessa þróun. Í fyrsta lagi eru
meðstofnendur Georgs að Meniga tveir fyrrverandi bankastarfsmenn
og svo hefur eftirspurn eftir lausnum í heimilisfjármálum aukist
gríðar lega, enda margir sem þurfa að horfa í hverja krónu.
„Nýsköpun á Íslandi átti undir högg að sækja í góðærinu vegna
þess að gengið var of hátt og það var erfitt fyrir sprotafyrirtæki að
keppa við bankana um starfsfólk,“ segir Georg.
Meiri upplýsingar
Fyrirtækið var stofnað snemma árs 2009 en þá var Georg nýlega
kominn heim eftir nokkur ár í Bandaríkjunum þar sem hann stundaði
MBA-nám við Harvard Business School og stofnaði hlutabréfavefinn
UpDown.com. Meniga fór snemma í samstarf við Íslandsbanka
sem var annar bankinn í Evrópu til að bjóða upp á lausnir á borð
við þá sem Meniga þróar en vefurinn fór í loftið í byrjun þessa árs.
Viðtökurnar hafa verið frábærar og yfir 8.000 heimili nota nú hug-
búnað Meniga.
„Núna notar fólk netbanka fyrst og fremst til að borga reikninga,
millifæra og skoða stöðu reikninga,“ segir Georg. „Við erum að
útvíkka þjónustu netbankanna á ýmsan hátt, t.d. með notendavænu
og myndrænu heimilisbókhaldi sem byggist á sjálfvirkri flokkun allra
útgjalda. Við reynum líka að höfða til þeirra sem forðast bókhald,
t.d. með því að senda þeim regulega myndræn yfirlit yfir útgjöldin
ásamt einföldum ábendingum um hvað megi hugsanlega betur fara
eða hvar gætu verið tækifæri til að spara.
Margir eru forvitnir að sjá hvernig þeirra útgjöld eru í samanburði við
aðra með svipaðan efnahag – nafnlaust að sjálfsögðu,“ segir Georg.
„Áherslan er á að gera þetta notendavænt og skemmtilegt,“ segir
Georg minnugur þess að þegar heimilistölvur komu fram á sínum
tíma var sagt að þær mætti nota til að færa heimilisbókhald. Það
heyrir þó til undantekninga að nokkur geri það.
Í kynningu fyrirtækisins er fullyrt að heimilisfjármálakerfi Meniga
henti „jafnvel þeim sem hlaupa í felur þegar þeir heyra minnst á
orðið heimilisbókhald!“
Útrás
Georg segir að aðstæður fyrir sprotafyrirtæki séu á margan hátt
ákjósanlegar á Íslandi eftir hrun. Þó séu gjaldeyrishöftin til trafala
og geti leitt til flótta fyrirtækja úr landi hverfi þau ekki fljótlega.
„Það er mikil stemning fyrir nýsköpun á Íslandi nú um stundir og
við nýtum okkur það,“ segir Georg. Markið hefur þó frá upphafi
verið sett á alþjóðlega markaði en þar eru söluferli löng og það þarf
fjár magn í kraftmikið markaðsstarf. Meniga horfir helst til Norður-
landanna og Þýskalands og er í viðræðum við nokkra banka á
þessum mörkuðum.
Lengst af var fyrirtækið fjármagnað með vinnuframlagi og sparifé
stofn endanna ásamt tekjum af samstarfinu við Íslandsbanka. Nú er
þó komið inn hlutafé frá Frumtaki og styrkur frá Rannís sem hefur gert
fyrirtækinu kleift að setja aukinn kraft í þróun og sölustarf erlendis.
Starfsmenn eru orðnir sjö; bæði forritarar og markaðsfólk.
„Meniga er að þróa næstu kynslóð
netbanka.“