Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2010, Page 54

Frjáls verslun - 01.07.2010, Page 54
54 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 1 0 Þið þessir fjölmiðlamenn, sagði Ragnar Reykás, en aldrei var ég fullkomlega viss um hvort brandarinn var á kostnað fjölmiðlamanna eða Reykása þessa lands. Fjölmiðlar eru frekir til fjörsins, ágengir, fyrir­ferðarmiklir og stundum uppáþrengjandi. Það er því eðli legt að fólk hafi miklar skoðanir á þeim þótt manni finnist stund um að þar sé kastað steinum úr glerhúsi, sérstaklega þegar sömu vandlætarar vilja helst ekkert borga fyrir fjölmiðla og þá sér­ fræðiþekkingu sem þeir í hinu orðinu kalla eftir.  Þegar mikið liggur við eru fjölmiðlar gjarnan kall ­ aðir fjórða valdið, dálítið eins og ófríða systir þess þrígreinda valds sem Montesquieu reyndi að kenna okkur að meta. Þetta vald er í raun ekkert nema áhrifavald sem sumir taka sér í krafti þess að hafa betri aðgang að fólki en gengur og gerist. Það vald verður mjög auðveldlega af mönnum tekið og það varir stutt. Almennt eru menn sammála um að fjöl­ miðlar hafi ekki áhrif á það hvernig við hugsum en vissulega geta þeir haft áhrif á hvað við hugsum um. Vald fjölmiðla er ofmetið, rétt eins og geta fólks til að stýra eigin lífi. Um skeið hafa menn haft þá hugmund að það skorti laga setn ­ ingu um fjölmiðla á Íslandi. En á ný liggur fyrir al þingi laga frum­ varp um fjölmiðla þar sem reynt er að smíða heild stæða löggjöf sem væntanlega er ætlað að stuðla að heilbrigðu og skynsamlegu fjöl­ miðla umhverfi. Þetta er í þriðja sinn sem fjölmiðlafrumvarp birtist. Allir ættu að muna eftir fjölmiðlafrumvarpi því sem flestir eignuðu Davíð Oddssyni en í miðjum átökum við Baugsveldið vildi hann setja fjöl miðlum lög sem takmörkuðu eignarhald. Þar átti að tryggja að ekki yrði lengur heimilt fyrir sama aðilann að eiga ráðandi hlut í bæði ljósvakamiðli og dagblaði. Skynsamlegt fyrirkomulag myndu margir halda, en eigi að síður varð frumvarpið að gjá milli þings og þjóðar að dómi forsetans sem neitaði að skrifa undir. Það dagaði uppi, því af herkænsku ákvað Davíð að afturkalla lögin, sem voru fordæmalaus viðbrögð við fordæmalausri ákvörðun for­ setans. Á þeim tíma voru margir farnir að trúa því að við lifðum á for dæmalausum tímum en það átti eftir að breytast. Næst gerði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tilraun til að koma með fjölmiðlafrumvarp, að því er virtist með það að megin mark ­ miði að takmarka eigendavaldið. Endurskilgreining RÚV var síðan aukageta og vissulega tókst henni að breyta RÚV í ohf. þótt ávinn­ ingur þess liggi ekki í augum uppi. Frumvarp Þorgerðar Kat rínar dagaði uppi í miðju hruninu. Núverandi menntamálaráðherra er komin með sína eigin út ­ gáfu af fjölmiðlafrumvarpi og er stefnt að því að afgreiða það í vetur. Semsagt; þrjú mismunandi frumvörp, öll með ólíkar áherslur. Er það svona sem við viljum að lagasetning sé stunduð? Segj um sem svo að borgarar þessa lands séu sammála um að um fjöl miðla eigi að vera heildstæð löggjöf – væri þá ekki eðlilegt að halda að sú löggjöf kæmi eftir nokkuð vandaða yfir legu þar sem hagsmunaaðilar og löggjafinn sameinuðust um mark mið og framtíðarsýn og settu sér lög sem gætu dugað sem starfs grund völlur? Þess í stað eru sérfræðingar mennta mála ráðu neyti sins látnir kokka upp nýja uppskrift í hvert skipti sem nýr ráð herra stígur inn fyrir dyrnar. Á sama tíma eru starfsmenn fjár málaráðuneytisins að pukrast með hugmyndir um að hækka virðis aukaskatt á fjölmiðla úr 7% í 25,5% og þannig reka síðasta nagl ann í líkkistu fjölmiðlarekstrar á Íslandi. Rekstrarstaða fjöl miðla hefur verið þannig um langt skeið að þeir eiga erfitt með að stunda þá vöruvöndun sem nauð synleg er og almenningur virðist seint þreytast á að kalla eftir. Þótt það sé sjálfsagt lýjandi að hlusta á fjölmiðlamenn barma sér yfir eigin bókhaldi þá er þetta staðreynd sem ekki verður komist hjá að ræða. Það gengur ekki upp að setja rekstr inum marg vís legar skorður vegna menningarlegs hlut verks, svo sem með banni á áfengis auglýsingum, og setja nýjar álögur sem ekki verður komið út til neytenda, sem margir hverjir virðast telja að ókeypis fréttamiðlun sé nokkuð sem gengur fullkomlega upp. En nú er íslenskufræðingurinn og menntamála ráð­ herrann Katrín Jakobsdóttir komin fram með sitt frumvarp þar sem eignarhald á fjölmiðlum er ekki lengur þungamiðjan og staða RÚV siglir framhjá. Í stað útvarpsréttarnefndar er komin Fjölmiðlastofa. Stofnun, segja hægrimenn, og vissulega stendur það í fjölmiðla­ mönn um að þurfa að heyra undir eitthvert apparat enda erfitt að sjá hvernig það getur samrýmst því rúma tjáningarfrelsi sem fjölmiðlum er svo nauðsynlegt. Hægrimenn hafa sjálfsagt blend­ nar tilfinningar þegar kemur að eignarhaldi fjölmiðla. Þó að það væri að þeirra frumkvæði að farið var að fjalla um slíkt eiga margir erfitt með að sætta sig við slíkar skorður við atvinnufrelsi. Mætti jafnvel leyfa sér að halda að samkeppnislög gætu dugað. Það er reyndar forvitnilegt að skoða þann fjölbreytta kokkteil sem fjölmiðlafrumvarpið færir okkur. Í 64. grein er tiltekið að gerð ar verði breytingar á sex öðrum lögum samhliða samþykkt fjöl miðlafrumvarpsins. Þessi bandormur tekur til breytinga á lög­ um um prentrétt, höfundalaga, fjarskiptalaga, laga um RÚV (þó minna en margir vildu), laga um eftirlit með aðgangi barna að kvik myndum og tölvuleikjum og að síðustu lyfjalaga. Má vera að nú loksins verði tekið á ávanabindingu fjölmiðla. Sigurður Már Jónsson FJÖLMIÐLALÖG – ÞRIÐJA TILRAUN Sigurður Már Jónsson blaðamaður SIGURÐUR MÁR JÓNSSON Úr frumvarpi til laga um fjölmiðla: Sigurður Már Jónsson blaðamaður skrifar hér um fjölmiðlafrumvarp Katrínar Jakobsdóttur mennta mála - r áðherra þar sem sett verður á laggirnar Fjölmiðla stofa. Þetta er þriðja fjölmiðlafrumvarpið á nokkrum árum og nú er eignarhald á fjölmiðlum ekki lengur þungamiðjan.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.