Frjáls verslun - 01.07.2010, Blaðsíða 73
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 1 0 73
BUGATTI ER BESTUR
Fyrir tæpar 400 milljónir króna verður hægt að kaupa dýrasta og
flott asta bíl allra tíma, hinn fernra dyra Bugatti Galibier. Hann
er nokk uð yfir fimm metra langur, vélin 16 strokka, nálægt þúsund
hestöfl um, og hámarkshraðinn tæplega 400 kílómetrar á klukkustund.
Bugatti-verksmiðjurnar voru stofnaðar árið 1909 af Ettore Bugatti,
ítölskum innflytj anda og bílasnillingi, í bænum Molsheim rétt sunnan við
Strassborg í þáverandi Þýskalandi. Frá 1919 hefur bærinn verið hluti af
Frakklandi. Fram undir seinna stríð voru Bugatti dýrustu og flottustu
bifreiðir þess tíma. Fyrir hálfri öld var framleiðslu á bílnum hætt en fyrir
tólf árum keypti Volkswagen merkið, byggði verksmiðju í Molsheim og
hefur síðan framleitt þar dýrustu og flottustu sportbíla samtímans.
GRÆNN OG VÆNN
Á næsta ári kemur Infinity með súpersportbíl, Essence, í
tilefni tuttugu ára afmælis merkisins. Infinity er lúxusmerki
Nissan-samsteypunnar og keppir fyrst og fremst við BMW.
Standardvélin verður 3,7 lítra, fjögur hundruð og fjörutíu
hestafla V6, með tveimur túrbínum. Á þarnæsta ári kemur
sex hundruð hestafla ofurvetnisbíll. Hann verður kraftmesti
græni bíllinn sem ekur um á jörðinni. Í þeim bíl verður þó
ekki mikið pláss fyrir farangur, því litíum-íon-rafhlöðurnar
fylla farangursrýmið að mestu. Essence er hannaður af
Takashi Nakajima, og gefur hann fyrirheit um þá stefnu sem
Infinity-merkið er að taka í hönnunarmálum. Flottur bíll, en
því miður aðeins fyrir tvo.
TÖLUR FRÁ ÚKRAÍNU OG VÍÐAR
Zaparozhets seldi hvorki meira né minna en 3,4 mill-
jónir bíla í Úkraínu á árunum 1960 til 1994; langmest
seldi bíllinn þar. Á svipuðum tíma, eða frá 1965 til
dagsins í dag, hefur Mercedes Benz framleitt yfir 5,1
milljón bíla af sínum stærsta og flottasta bíl, Benz S-
línunni. Mest seldi Ferrari allra tíma er 360-bíllinn, en
hann var framleiddur í rúmlega 17 þúsund eintökum frá
1999 til 2004. Volkswagen hefur framleitt yfir 27,2
milljónir VW Golf-bíla frá 1974, fimm milljónum fleiri
en VW-bjallan sem var framleidd frá 1938 til 2003.
Lada Sport er enn framleidd bæði í Rússlandi og
Egyptalandi, en frá 1980 hafa yfir 13,6 milljón Lödur
runnið af færibandinu, nokkru fleiri en „bestsellerinn“
Lamborghini Gallardo en 4.702 bílar voru
framleiddir af honum 2004 til 2007.
Bílar