Frjáls verslun - 01.07.2010, Síða 79
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 1 0 79
það að hann á engin systkin sem sjá um
hann. Hann á þrjú eldri hálfsystkin sem
faðir hans, Earl Woods, átti með fyrri
eiginkonu sinni og eru þau á aldrinum 52
55 ára. Tiger hefur lítið haft af þeim að segja
og ekki sést á mynd með þeim.
Earl, faðir Tigers, sem var fyrrverandi
hermað ur og hafnaboltaleikmaður, ól son
sinn upp í að verða golfstjarna. Hann gaf
honum fyrstu kylfuna þegar hann var eins
árs og þá byrj uðu æfingarnar.
Þegar Tiger Woods var tveggja ára kom
hann fram í sjónvarpsþætti og fór þá í pútt
keppni við Bob Hope. Eftir það var fylgst
vel með honum og afrekin létu ekki á sér
standa. Átta ára gamall vann hann sitt fyrsta
stóra krakkamót og sex sinnum varð hann
krakkameistari Bandaríkjanna. Fimmtán ára
varð hann yngsti unglingameistari Banda
ríkjanna. Í öllum mótunum stóð faðir hans
á hliðarlínunni og hafði gát á syni sínum.
Earl réð ferðinni. Þótt Tiger eigi að
baki tvö ár í háskóla fer litlum sögum af
menntun hans. Þegar lífshlaup föður hans
er skoðað sést að Tiger hefur fetað í fótspor
hans hvað varðar kvensemi og spilafíkn.
Kunnugir segja að Tiger hafi lært allt sem
þurfti með því að fylgjast með hjákonum
föður síns. Hið eina sem vantar upp á er
drykkjuskapurinn. Earl þótti drykkfelldur
og hegðun hans æ undarlegri eftir því sem
sonurinn varð frægari.
Fræg er sagan af honum þegar honum
var veitt viðurkenningin Faðir ársins. Allir
voru mættir í sínu fínasta pússi nema Earl
Woods sem mætti blindfullur á svæðið í
stuttbuxum og golfbol. Hann drakk síðan
sleitulaust. Þegar kom að því að nafn hans
var kallað upp var hann steinsofandi. Hann
vaknaði við uppkallið og rauk til með þeim
afleiðingum að það helltist úr glasinu yfir
nærstadda.
Tigerliðið verður til
Áður en Tiger gerðist atvinnumaður var
búið að ákveða framtíðina hvað varðar fjár
málin og annað. Faðir hans og lögfræðingur
þeirra, John Merchant, gerðu samning við
IMG um að fyrirtækið tæki Tiger Woods að
sér. IMG er eitt stærsta batteríið í golfheim
inum. Það er með umboðsmenn kylfinga á
sínum snærum, heldur mót, teiknar velli og
kemur nánast að öllu sem viðkemur golfi.
Þess má geta að goðsögnin Arnold Palmer
er einn aðaleigenda IMG.
Það var við þessar aðstæður sem sterkt lið í
kringum Tiger var myndað; Tigerliðið. Frá
þeirri stundu var líf Tigers Woods verndað
frá öllum utanaðkomandi og enginn komst
nálægt honum nema Tigerliðið samþykkti.
Þetta átti m.a. við um viðtöl, fjárfestingar
og góðgerðarfjárveitingar. Það var einmitt
þetta lið sem byggði upp sterkan varnarmúr
í kringum kvennamál hans.
Leyndarmálin
Tigerliðið þurfti oft að vera á tánum og
beita ýmsum brögðum til að vernda orð
sporið. Það var ekki svo erfitt. Svo sterk
var goðsögnin Tiger Woods í huga fólks að
það vildi ekki trúa neinu illu um hann. En
sögur fóru að sjálfsögðu að leka.
Eitt viðhaldið, klámstjarnan Holly Samp
son, kom fram í sjónvarpsþættinum Naughty
America og sagði frá kynlífi sínu með Tiger
Woods. Fáir horfðu á þáttinn og enginn trúði
henni. Þetta var sex mánuðum fyrir bílslysið.
Þau kynntust í piparsveina partí Tigers rétt
fyrir brúðkaup hans.
Las Vegas
Eftir áreksturinn fyrir utan heimili Tigers
og allt komst upp gekk betur að halda
spilafíkninni leyndri. Leyndarmálin í Las
Vegas eru ekki á lausu. Oft var sagt í frétt
um að á leið heim af móti eða á leið í mót
hefði Tiger komið við á einkaþotu sinni í
Las Vegas. Ekkert meira um það sagt.
Þekktir spilafélagar Tigers í Las Vegas eru
Michael Jordan og Charles Barkley. Þeir
spila yfirleitt á Mainson eða MGM Grand
þar sem háar fjárhæðir eru í húfi. Einn
sjónarvottur segir svo frá: „Þegar þeir hafa
spilað dágóða stund fara þeir á næturklúbb
þar sem þeir eru umvafðir kvenfólki, eru
ekkert að leyna hver tilgangurinn er og
yfirleitt er það svo að allra augu beinast að
Tiger Woods.“
Á erfitt með að skilja mótlætið
Strax eftir umferðarslysið og sjúkrahúsvist
ina í kjölfarið skrifaði Tiger á vefsíðu sína
að hann hefði gert mistök. Hann hélt að
það væri nóg, allir myndu fyrirgefa honum.
Þegar annað kom í ljós fór hann á taugum
og skildi í raun ekki af hverju allir væru á
móti sér, leit ekki í eigin barm. Tiger, sem
var miðdepill í eigin lífi og lífi annarra, varð
allt í einu að horfast í augu við það að hann
var hafður að háði og spotti og brandararnir
flugu um hann.
Tiger er enn stórt fyrirtæki. Honum
hefur ekki gengið sem best í golfíþróttinni
á árinu. Hann vann sig ekki inn í Ryder
lið Bandaríkjanna heldur var hann einn
fjögurra sem fyrirliðinn valdi.
Tiger á örugglega eftir að vinna nokkur
mót – þar af nokkur stórmót. En hann
vant ar ennþá sjálfstraustið sem einkenndi
hann þegar stjarna hans skein skærast.
Ímynd fyrirtækisins hefur skaðast og tekj
u r nar minnkað. Tiger virðist samt sækja í
sig veðrið jafnt og þétt. Hann kemur enn
vel fyrir og sýnist rólegur og yfirvegaður í
viðtölum.
Allir hugsa þó það sama; hér hefur illa
farið fyrir góðum manni. Hann á sér enn
marga aðdáendur og framlag hans til
golfíþrótt arinnar hefur gert hana að einni
allra vinsælustu íþrótt í heimi. Öll golfmót
fá meiri vigt og áhorf ef Tiger er á meðal
keppenda.
Í Hávamálum segir: Orðstír deyr aldrei
þeim er sér góðan getur. Það verður erfitt
fyrir Tiger að öðlast sama sess og virðingu
og áður.
Nokkur af viðhöldum Tigers sem hafa á síðustu
mánuðum verið að tjáð sig við fjölmiðla um
samband sitt við hann.
Tiger Woods ásamt föður sínum Earl Woods,
sem lést 2006.
„Hann er alltaf í vissri fjar
lægð frá okkur eins og hann sé
yfir okkur hafinn, samt alltaf
kurteis og vina legur þegar við
ræðum saman en gefur aldrei
neitt af sér.“