Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2010, Page 9

Frjáls verslun - 01.10.2010, Page 9
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 1 0 9 tagi sér vel,“ segir Auðjón. Jólakörfurnar eru af ýmsum gerðum og stærð u m, en í þeim er að finna kjötmeti eins og hamborgarhrygg og/eða hangi læri auk þess sem góðgæti af ýmsu tagi er bætt við, meðlæti, osti, konfekti, kryddpylsu og graflaxi, svo eitthvað sé nefnt. „Þetta er tiltölulega ódýr og hagkvæm gjöf og allir geta valið verðlag við hæfi,“ segir Auðjón. Kjarnafæði hefur sem fyrr segir verið starfandi í 25 ár, fyrirtækið hefur vaxið og dafnað í áranna rás og er harla ólíkt því sem var í upphafi. Aðalskrifstofur þess eru við Fjölnisgötu á Akureyri, en kjöt vinnslan hefur frá árinu 1993 verið á Svalbarðseyri þar sem fyrirtækið keypti húseignir, endurbætti þær og lagaði að starfsemi sinni. Hin síðari ár hefur fyrirtækið stækkað umtalsvert og á félagið í nokkrum öflugum matvælafyrirtækjum, má nefna sósu­ og salat gerðina Nonna í Mos­ fellsbæ, SAH­afurðir á Blönduósi og hlut í Sláturfélagi Vopn firðinga. Þá á félagið í Norðanfiski á Akranesi, með HB Granda og Brimi. Afurðir úr reyktu og söltuðu kjöti hafa í gegnum árin verið sér grein fyrirtækisins þótt framleiðsla þess sé afar fjölbreytt. „Við höf um lagt áherslu á vöruvöndun, gæðin eru í fyrirrúmi og hollusta mat væl­ anna, auk þess sem okkar leiðarljós er skjót og góð þjónusta,“ segir Auðjón. Tvíreykta húskarlahangikjötið vinsælt Sala á hangikjöti fyrir jólin hefur stóraukist hin síðari ár og nefnir Auðjón þar til sögunnar m.a. kofareykta hangikjötið sem er nokkurs konar hástökkvari undanfarinna ára. „Kofareykta hangikjötið hefur verið í mikilli sókn á liðnum árum og mér sýnist sem fólk vilji núna fá eitthvað sem er ekta og gamaldags og minnir fólk á gömlu góðu dagana,“ segir hann. Kjarnafæði hafi lagt áherslu á að reykja kjöt með gömlum aðferðum, útkoman sé sú að kjötið sé bragðmikið en léttsaltað og það hafi fallið neytendum vel í geð. „Almenningur horfir æ meira til hollustu matvælanna, við höfum lagt okkur fram um að mæta þeim kröfum og finnum að það kunna viðskiptavinirnir vel að meta.“ Önnur vörutegund hefur líka slegið í gegn og á æ meiri vinsældum að fagna, en þar er um að ræða tvíreykt húskarlahangikjöt sem fór að ryðja sér til rúms fyrir rúmum áratug. Það er almennt borið fram hrátt, enda fullverkað og þess neytt á áþekkan hátt og hráskinka. „Það þykir mörgum fylgja því sérstök jólastemning að fá sér húskarlahangikjöt yfir aðventuna, hengja það upp heima við og skera sér flís af og til. Það kemur sérstakur jólailmur í húsið,“ segir Auðjón. Hreinn Gunnlaugsson, annar aðaleigenda Kjarnafæðis, með hangilæri, en sala á hangikjöti frá fyrirtækinu hefur aukist mjög undanfarin ár. Sigurvin Jóhannesson reykmeistari er ánægður með jólakjötið. VINSÆLAR JÓLGJAFAKÖRFUR

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.