Frjáls verslun - 01.11.2010, Side 22
22 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 1 0
ristinn segir markmið könn
unarinnar fyrst og fremst að
veita félagsmönnum aðstoð
og stuðning í baráttunni fyrir
bættum kjörum. „Niðurstöðurnar í fyrirtæki
ársins veita upplýsingar um starfskjör inn an
fyrirtækja en launakönnunin veitir upp
lýsingar um kaup og kjör svo félagsmenn
geti borið laun sín saman við laun sem
greidd eru í hliðstæðum starfsgreinum.
Könn unin er stjórnendun fyrirtækja einnig
afar mikilvæg. Niðurstöðurnar eru mæli
kvarði á frammistöðu fyrirtækja sem vinnu
staða, þær sýna hvað vel er gert og hvar
nauð synlegt er að gera breytingar. Ég hvet
stjórnendur til að taka þátt í þessari könnun
með alla sína starfsmenn, hvort sem þeir eru
í VR eður ei.“
Könnun meðal fleiri
en tvö þúsund stjórnenda
Nú er nýlokið könnun VR meðal rúmlega
tvö þúsund stjórnenda á almennum og
opinberum vinnumarkaði, í þriðja skipti
sem félagið gerir könnun meðal þessa hóps.
„Í könnuninni er áhersla lögð á að kanna
viðhorf stjórnenda til ýmissa þátta í starf inu,
líðan þeirra og væntingar. Heildar niður
stöður verða birtar í janúar en ljóst er að
ýmsar áhugaverðar breytingar hafa orðið
á viðhorfum stjórnenda á síðustu tveimur
árum.“
Að sögn Kristins hefur áhersla á síðasta ári
verið lögð á að efla grasrót VR og auðvelda
þátttöku félagsmanna í stefnumótun félags
ins í opnu og gegnsæju ferli. „Það var m.a.
gert með fjölmennum fundum og stefnu
þingi í anda þjóðfundarins árið 2009. Sömu
vinnubrögðum var beitt við kröfugerð fél
agsins vegna komandi kjaraviðræðna. Niður
stöðurnar eru mikilvægt framlag til þeirrar
umræðu og vinnu sem á sér stað innan
fél ags ins varðandi framtíðarhlutverk þess og
áherslur. Mikilvægi VR fyrir félagsmenn sína
hefur aldrei verið meira en nú þegar kreppir
að og það er undir okkur komið að vera í
stakk búin til að veita þá aðstoð og stuðning
sem þörf er á.“
„Síðastliðið ár hefur áhersla
verið lögð á að efla grasrót VR
og auðvelda aðkomu félags
manna að stefnumótun félags
ins í opnu og gegnsæju ferli.“
Langstærsta könnunin á vinnumarkaðnum
VR
Kristinn R. Jóhannesson, formaður VR.
K
Í upphafi næsta árs stendur VR fyrir vali á fyrirtæki ársins, fimmtánda árið í röð. Samhliða því er gerð launakönnun meðal félags
manna en VR hefur kannað kaup og kjör hjá félagsmönnum sínum frá árinu 1996. „Þessi könnun er orðin lang stærsta vinnu
markaðskönnun sem gerð er á Íslandi, segir Kristinn Örn Jóhannesson, formaður VR. Fleiri stéttarfélög hafa bæst í hópinn og
fjölmörg fyrirtæki og opin berar stofnanir taka þátt í könnuninni með alla sína starfsmenn, burtséð frá stéttarfélagsaðild. Könn unin
árið 2011 nær til um fjörutíu þúsund starfsmanna á almennum og opinberum vinnumarkaði.“