Frjáls verslun - 01.11.2010, Side 24
24 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 1 0
TEXTI: HILMAR KARLSSON MYNDIR: RAGNAR TH.
Ragnar Th. Sigurðsson á
gosstöðvunum.
Fyrst þetta ...
M
Myndir Ragnars Th. Sigurðssonar ljós myndara af eldgosinu í Eyjafjallajökli eru meðal mest
birtu ljósmynda ársins í erlendum fjölmiðlum
yndin sem Time til
nefndi sem eina
af bestu myndum
ársins var tekin 16.
apríl kl. 22.40,“ segir Ragnar,
sem heldur ná kvæmt bók
hald um allar sínar myndir og
tók um tíu þúsund ljós myndir
af eldgosinu í Eyja fjalla jökli
og Fimmvörðuhálsi. „Þennan
dag var ég að mynda á gos
stöðv unum og í lok dagsins
hringir myndritstjóri New York
Times í mig og spyr hvort ég
sé ekki á svæðinu, ég játti því
og þá spyr hann hvort ég geti
tekið fyrir hann forsíðumynd,
ég sá að sjálfsögðu ekkert því
til fyrirstöðu og spurði hvað
hann vildi og hann svaraði að
ég réði því en það þyrfti að
vera eitthvað krassandi. Þetta
var eitthvað um fimmleytið og
ekkert sér stakt að gerast í
gosinu enda var öskufallið með
mesta móti. Þessi dag ur var
einnig sá dagur þegar birti til en
skýjað hafði verið undan farna
daga. Ég vissi að það myndi
birta enn meira þegar líða færi
á kvöldið og ég ákvað því að
eyða nóttinni á gosstöðvunum
í þeirri von að ég næði góðri
mynd með eldingum.
Ásdís eiginkona mín var með
mér og við biðum því eftir myrkr
inu og hafði ég góðan tíma til
að velja mér stað en eldingarnar
sjást ekki hvar sem er og við
fórum að bænum Dalseli í
AusturLandeyjum og Dalsel
er bærinn sem er í forgrunni
á myndinni sem birtist í Time.
Hugs unin á bak við myndina
var að tengja bæinn saman
við gosið, sýna áhrif gossins á
byggðina. Ég var þarna í dálítinn
tíma og myndaði en það voru
samt ekki eins miklar eldingar
og ég hafði gert mér vonir um.
Ég fór því síðar um nóttina fyrir
fjallið inn í Fljótshlíð og þar náði
ég myndinni sem fór á forsíðu
New York Times og forsíður fleiri
erlendra blaða.“
Eftir að New York Times hafði
birt myndina og birt myndaseríu
á vefnum sínum og CNBCsjón
varpsstöðin, sem einnig fékk
myndir hjá Ragn ari, birti þær
á sínum vef má segja að allt
hafi orðið vitlaust. „Ég fékk
eitthvað 500 til 600 tölvupósta
frá fjölmiðlum og einstaklingum
strax fyrsta daginn eftir birt ingu
myndarinnar og eftir að mynd
irnar birtust á vefsíðum og fleiri
fjölmiðlar fóru að birta myndir
fjölgaði tölvupóstum enn meira.
Flestir sem báðu um mynd vildu
fá myndina sem var á forsíðu
New York Times, en aðrir eins
og Time völdu aðrar myndir.
Síðan hafa margir fjölmiðlar birt
myndir úr þessari seríu og enn
er verið að panta myndir.“
Í Lapplandi þegar gosið á
Fimmvörðuhálsi hófst
Þegar gosið á Fimmvörðuhálsi
hófst í janúar var Ragnar
ekki á landinu. „Ég og Ásdís
vorum nýkomin til Lapplands
til að taka myndir af Íshótelinu
sem er 400 km fyrir norðan
heimskautsbaug, búin að vera
sólarhring á ferðalagi og vorum
að leggja okkur dauðþreytt til
svefns þegar ég fæ sms um að
gos sé hafið á Fimmvörðuhálsi.
Eftir það stopp aði síminn varla
hjá mér og ég fékk nánast
beina útsendingu af eldgos inu
frá vinum og ættingjum alla
nóttina. Næstu fjóra daga var
mikil vinna hjá mér en ég var
í raun friðlaus, að vera með
verkefni í útlöndum og eldgos
heima. Segja má að forsjónin
hafi verið mér hliðholl í þetta
skiptið því gosið sást lítið fyrstu
fimm dagana og það er ekki fyrr
en ég kem heim að það birtir
til og ég fór að sjálfsögðu strax
á gosstöðvarnar og sinnti því
gosi vel og myndirnar sem ég
tók í Lapplandi mátti ég ekkert
vera að því að vinna, þær urðu
að bíða.
Svo kom stóra gosið í Eyja
fjalla jökli og það var eins með
það og fyrra gosið að það náðist
lítið af góðum myndum í upphafi
vegna þess hve skýjað var, en
ég fór á gosstöðvar dag eftir
dag og þvældist um og tók fullt
af myndum og á það verður að
líta að þegar aðstæður eru ekki
góðar er samt alltaf verið að
reyna þannig að myndafjöldinn
er mikill þó svo aðeins brot
að því séu góðar og nothæfar
ljósmyndir.“
Svartur veggur
Ragnar er spurður hvað sé
eftirminnilegast frá gosinu.
Við meginhlaupið úr Gígjökli 14. apríl náði ísskriða að hvolfast yfir
hábrúnir vestan við Gígjökul og niður fjallið langleiðina að Steins holtsá.
Skriðan reif með sér möl, grjót og björg úr hömrunum allra efst og
hlíðinni fyrir neðan. Stærsta grjótið stendur eins og minnismerki um
sjónleik náttúrunnar. Að sögn Ragnars er það hald manna að grjót ið sé
um 1.300 tonn að þyngd þótt aðeins hafi verið gefið upp að það sé rúm
1.000 tonn. Stærð grjótsins má vel sjá þegar miðað er við eiginkonu
Ragnars, Ásdísi Gissurar dóttur, sem rétt grillir í í horninu hægra megin.
Ljósmynd þessi rataði fyrir nokkrum dögum í breska blaðið The Sun.
ERLEND STÓRBLÖÐ
KAUPA MYNDIR AF
RAGNARI TH.
Í kjölfarið fékk Ragnar hundruð tölvupósta á dag með
beiðnum um myndir frá eldgosinu og ein þeirra var
síðan í uppgjöri hjá Time valin ein af bestu myndum
ársins og birt á heilli opnu.