Frjáls verslun - 01.11.2010, Blaðsíða 52
52 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 1 0
39. ROVIO ANGRY BIRDS
Tölvuleikur (ca. 115 kr., www.rovio.com). Frábær og stórundar
legur smátölvuleikur fyrir iPhone og Nokiasíma. Takmarkið er að
kasta pirruðum fuglum inn fyrir virkismúra eggjastelandi svínagengis
og hvað getur verið skemmtilegra en það?
40. INNERGIE MCUBE MINI
Rafmagnstengi (u.þ.b. 12.000 kr., www.myinnergie.com). Ef
þú ferðast mikið með fartölvu sem þarf ekki mikla orku er þetta ör
smáa rafmagnstengi fyrir bíla og flugvélar eitthvað fyrir þig. Það er
ekki stærra en tveir þumlar og getur haldið flestum hefðbundnum
fartölvum fullhlöðnum á ferðalaginu.
41. LOOKOUT MOBILE SECURITY
Farsímaforrit (ókeypis, www.mylookout.com). Þrefalt öryggi
fyrir Android, BlackBerry og Windows Mobilesíma. Lookout keyrir
veiruskönnun á hvert forrit sem sótt er í símann, hjálpar not and anum að
finna símann ef hann týnist og sér um öryggisafritun gagna á símanum.
42. ATI RADEON HD 5870
Skjákort (65.950 hjá www.att.is). Þetta skjákort skilar einhverri
bestu grafík sem hægt er að kreista út úr einum grafíkörgjörva þótt
samkeppnin sé vissulega hörð. Verðið er hins vegar betra en á flestum
sambærilegum kortum.
43. IVINA BULLETSCAN S300
Skanni (u.þ.b. 50.000 kr., www.bulletscan.com). Meðfærileiki,
fjölhæfni og frammistaða eru aðalsmerki þessa skanna, því hægt er að
skilja 20blaðsíðna arkamatarann eftir heima og taka einungis litla
skönn unareiningu sem fær rafmagn í gegnum USBtengi tölvunnar
með í ferðalagið.
44. DIMDIM
Netþjónusta (ókeypis, en Proútgáfa kostar um 3.000 kr. á mánuði,
www.dimdim.com). DimDim er netfundatól sem er einfalt í not kun
og krefst engrar sérstakrar uppsetningar. Með því má gera kann anir
meðal fundarmanna, deila skrám og vista þær og fjórir geta vídeó
spjallað í einu, svo eitthvað sé nefnt.
45. SMARTFISH ERGOMOTION MOUSE
Tölvumús (u.þ.b. 10.000 kr., www.getsmartfish.com). Einstök mús
sem notar sérstaka tækni til að laga sig að stöðu handarinnar og er
ótrúlega þægileg í notkun.
46. LENOVO THINKPAD X100E
Fartölva (verð frá 109.900 hjá www.netverslun.is). Þessar smáu
en knáu fartölvur státa kannski ekki af 8 klst. rafhlöðuendingu, en
AMD Athlon og Turionörgjörvarnir sem notaðir eru í þær gera þær
mun öflugri en fartölvur sem nota Atomörgjörva. Í kaupbæti fylgja
hin alþekktu gæði Lenovo í hönnun lyklaborða og snertimúsa.
47. FACEBOOK
Samfélagsvefur (ókeypis, www.facebook.com). Þrátt fyrir ýmsa
erfiðleika hvað varðar persónuvernd á árinu hefur Facebook tekist að
koma með nýjungar sem hafa eflt þennan vinsælasta samfélagsvef í
heimi og haldið honum inni á lista yfir bestu græjur ársins.
48. PLANTRONICS K100
Handfrjáls búnaður (verð u.þ.b. 15.000 kr., www.plantronics.
com). K100græjan tengist farsímanum gegnum Bluetooth, er fest
við sólhlífina í framrúðunni og er mun þægilegri í notkun við akst
urinn en hefðbundinn handfrjáls búnaður.
49. TAPTRIX BRUSHES
Farsímaforrit (u.þ.b. 1.000 kr., www.brushesapp.com). Þetta
teikniforrit fyrir iPhone og iPad er svo einfalt í notkun að flestir ættu
að geta notað það. Samt er það nógu öflugt til nýtast listamönnum
við störf sín – t.d. hafa forsíður tímaritsins New Yorker verið hann
aðar með Brushes.
50. CORSAIR 800D
Tölvukassi (63.950 kr. hjá www.att.is). Hér er á ferðinni frábær kassi
fyrir þá sem vilja smíða sínar eigin tölvur. Hliðarspjöldin detta af ef ýtt
er á takka og auðvelt er að skipta út íhlutum. Sérstök hliðargeymsla
fyrir kapla heldur öllu snyrtilegu, sem bæði eykur loftflæði og sér til
þess að allt líti vel út þegar gægst er inn um gluggann á hlið kassans.
40
Innergie mCube Mini er
minnsta fartölvu hleðslu
tækið á markaðnum.
50
Corsair 800D heillar tölvusmiðina,
enda er hann með flottari tölvu
kössum á markaðnum.
45Sérstök tækni Smartfish ErgoMotionmúsarinnar gerir
hana einstaklega þægilega.
39 Hvað getur verið skemmtilegra en að henda reiðum fuglum í svín?
SL
EN
SK
A
SI
A
.I
S
I
CE
5
27
59
1
2
/2
01
0
ER ÞITT FYRIRTÆKI MEÐ SAMNING?
Fyrirtæki sem eru með samning við Icelandair njóta þess í
hagkvæmari rekstri, betri tímanýtingu og ánægðara starfsfólki.
• Sérstakur ferðaráðgjafi hefur umsjón með hverju fyrirtæki.
• Neyðarnúmer sem er opið allan sólarhringinn – alla daga ársins.
• Afsláttur sem býðst af fargjöldum til áfangastaða Icelandair.
• Nákvæmt viðskiptayfirlit á vefnum.
+ Allar nánari upplýsingar á www.icelandair.is/fyrirtaeki
eða sendið fyrirspurnir á fyrirtaeki@icelandair.is
GLEÐILEGT NÝTT ÁR
OG ÞÖKKUM FYRIR SAMSTARFIÐ
Á LIÐNU ÁRI
ECONOMY COMFORT
Meiri þægindi, góð vinnuaðstaða,
rafmagnsinnstunga fyrir tölvu.